Rit Mógilsár - jun. 2002, Side 5

Rit Mógilsár - jun. 2002, Side 5
5 3 INNGANGUR Í byrjun áttunda áratugarins var framkvæmd af Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá fyrsta heildstæða landsúttekt á skógræktarskilyrðum hérlendis (Haukur Ragnarsson 1977). Í ljósi breyttra áherslna í skógrækt og aukins fjölda mælanlegra skógarreita þótti tímabært að endurtaka slíka landsúttekt með það að leiðarljósi að geta lagt fram nákvæmari niðurstöður um vaxtarskilyrði helstu trjátegunda í skóg- og trjárækt hér á landi. Einn þáttur úttektar á skógræktarskilyrðum er að afla upplýsinga um vöxt og viðgang trjátegunda, en það er gert með trjámælingum. Alls voru mældir 1940 reitir á öllu landinu og tóku trjámælingarnar þrjú sumur. Undirbúningur og mótun verkefnisins hófst veturinn 1997-98. Þá var meðal annars ákveðið að takmarka úttektina við eftirfarandi trjátegundahópa en innan þeirra eru allar þær trjátegundir sem mestu máli skipta í nútíma skógrækt og skjólbeltarækt hér á landi. Þeir eru: 1. Ilmbjörk (Betula pubescens Ehrh.). 2. Alaskaösp (Populus trichocarpa Torr. & Gray). 3. Ilmreynir (Sorbus aucuparia L.). 4. Hraðvaxta víðir (alaskavíðir (Salix alaxensis Cov.) og viðja (S. myrsinifolia Salisb.)). 5. Grenitegundirnar sitkagreni (Picea sitchensis (Bong.)Carr.), blágreni (P. engelmannii (Parry), hvítgreni (P. glauca (Moench) Voss.) og rauðgreni (P. abies (L.) Karst.). 6. Stafafura (Pinus contorta Dougl.). 7. Síberíulerki (Larix sibirica Ledeb) (þ.e. rússa- og síberíulerki). 4 EFNI OG AÐFERÐIR 4.1 Forúttekt Sumarið 1998 var hafist handa við að safna almennum upplýsingum um skógræktarreiti, trjáreiti og trjágróður í görðum utan stærri bæja. Safnað var upplýsingum um allan trjágróður sem var gróðursettur fyrir 15 árum eða fyrr, þ.e. fyrir 1985 eða var búinn að ná um 2 m hæð eða meira. Fyrir skjólbelti með hraðvaxta víðitegundum voru mörkin sett við 5 ára aldur frá gróðursetningu, þ.e. fyrir árið 1995 auk sömu hæðarmarka. Auk starfsmanna á Mógilsá tók fjöldi annarra starfsmanna Skógræktar

x

Rit Mógilsár

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.