Rit Mógilsár - jun. 2002, Page 10

Rit Mógilsár - jun. 2002, Page 10
10 Fyrir stafafuru: V = 0,1424*H2,0786 * D1,3 1,9028 * (H-1,3)-1,0259 * (D1,3 +100)-0,264 Þessi jafna er gerð fyrir skógarfuru í Vestur-Noregi (Bauger 1995). Hana notaði Gunnar Freysteinsson í mælingum á viðarvexti á Suðurlandi árið 1996 (Gunnar Freysteinsson 1996). Fyrir lerki: V = e-2,5079 * D1,3 1,7574 * H0,9808 Jafnan er gerð fyrir lerki (bæði rússa- og síberíulerki) í Hallormsstaðaskógi (Norrby 1990). Bolrúmmál standandi trjáa á flatareiningu var síðan reiknað með því að margfalda fjölda trjáa á flatareiningu með leiðréttu rúmmáli GMtrés. Með leiðréttu rúmmáli er átt við að búið er að taka tillit til fráviks grunnflatar GMtrés frá meðaltalsgrunnfleti mæliflatarins. Einnig er búið að taka tillit til annarra trjátegunda sem vaxa á mælifletinum. Meðalársvöxtur bolrúmmáls standandi trjáa er síðan reiknaður út með því að deila bolrúmmáli með aldri. Hér er notaður gróðursetningaraldur sem er skilgreindur sem fjöldi ára frá og með gróðursetningarári. Þar sem samband er á milli meðalgrunnflatar (gmeðal) og heildargrunnflatar á ha (G/ha) er hægt að áætla G/ha, þar með talið fjölda stofna á ha og þ.a.l. bolrúmmál á ha. Þetta var gert í þeim tilvikum þar sem aðeins voru mæld stök tré án þess að það flatarmál sem þau stóðu á væri mælt. Þar sem þessi aðferð er notuð verður að túlka niðurstöður mjög gætilega þar sem þær eru eðlilega mun lakari að gæðum en þar sem mælt var á fleti með þekktu flatarmáli. Innan hverrar tegundar er gerðir meðaltalsferlar fyrir samband yfirhæðar og aldurs og bolrúmmáls standandi trjáa og aldurs. Notuð er jafna sem lýsir S-laga (sigmodial) sambandi en það er viðurkennt samband aldurs við bæði hæð og bolrúmmál (Strand 1968). Eftirfarandi jafna er notuð: Y = a/(1+e-((X-Xo)/b))) þar sem Y er annað hvort yfirhæð eða bolrúmmál standandi trjáa, X er gróðursetningaraldur og a, b og Xo eru fastar.

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.