Fréttablaðið - 30.04.2021, Síða 2

Fréttablaðið - 30.04.2021, Síða 2
Við fylgjumst vel með hvernig þetta þróast en það er alltaf óþægilegt að fá skjálfta upp á 3,8 sem fannst víða. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvár- sérfræðingur hjá Veðurstofu íslands Slysalömbin mæta fyrst Sauðburður er ekki formlega hafinn á bænum Flekkudal í Kjós, en þó hafa nokkur lömb mætt á undan áætlun því foreldrarnir þjófstörtuðu fengi- tímanum. Búast má við að stóraukið fjör færist í leikinn í Flekkudal um miðja næstu viku, að sögn heimilisfólksins þar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR NÁTTÚRUVÁ Jarðskjálfti að stærð 3,8 fannst vel víða á höfuðborgarsvæð­ inu í gær. Samkvæmt skráningu Veðurstofunnar átti hann upptök sín um 2,6 kílómetra suðaustur af Eiturhóli á Mosfellsheiði. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúru­ vársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að skjálftinn sé hluti af hrinu sem hófst í fyrrinótt og þegar Fréttablaðið náði í hann höfðu mælst um 300 skjálftar, f lestir litlir og á miklu dýpi. Það er því ekki að hefjast eldgos í Eiturhól. „Það er búin að vera virkni við Eiturhól síðustu tvær vikurnar. Það eru búnir að vera nokkur hundruð skjálftar þar og ef maður skoðar til baka alla leið til janúar er tölu­ verð virkni þarna. Það er samt pínu óalgengt að það séu svona margir í einu,“ segir hann. Hann bendir á að ekkert bendi til þess að skjálftavirknin tengist eldsumbrotunum í Geldingadölum. „Við fylgjumst vel með hvernig þetta þróast en það er alltaf óþægi­ legt að fá skjálfta upp á 3,8 sem fannst víða. Við sjáum til með fram­ haldið þó engin merki séu um gos­ óróa.“ Upptök stóra skjálftans voru aðeins austan við Bláfjallasvæðið en jarðskjálftahrinur eru ekki óalg­ engar á þessu svæði. Engin hætta sé í byggð en eftir rólega tíð í kjölfar eldgossins sé þetta áminning um að þarna sé virkt jarðskjálftasvæði og að það þurfi að gæta að vörnum. Bjarki segir að nú sé gaman að vera náttúruvársérfræðingur enda nóg að gerast í vinnunni. Jafnvel sé of mikið að gera. „Við erum tveir á vaktinni á daginn og tveir veður­ fræðingar og á næturnar er einn af hvorum,“ segir Bjarki sem hefur haft í nógu að snúast undanfarið. „Þegar jarðskjálftahrinan varð, áður en gosið byrjaði í Geldinga­ dölum, var svolítill hasar en það er ekki alltaf sem maður fær eldgos til að horfa á. Ég fæ að fara af og til heim.“ benediktboas@frettabladid.is Verið talsverður hasar á jarðskjálftavaktinni Margir fundu vel fyrir 3,8 stiga jarðskjálfta með upptök suðaustur af Eitur- hóli um hádegisbil í gær. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir gaman hjá sérfræðingum í náttúruvá þessa dagana. Frá Hengilssvæðinu þar sem jarðskjálftar eru tíðir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU AFMÆLISKRINGLUNNI - fyrir 25-30 manns SUM RTILBOÐ PAVLOVA 1.950 KR.- Tilboð gildir frá 22. apríl til 2. maí COVID-19 Í gær lágu fjórir á sjúkra­ húsi vegna COVID­19 hér á landi. 191 var í einangrun með virkt smit og sólarhringinn á undan greindust tíu ný smit. Sjö voru í sóttkví við greiningu. Alls var 421 einstaklingur í sóttkví í gær og yfir þúsund manns voru í skimunarsóttkví. Aldrei hafa fleiri verið bólusettir gegn COVID­19 en í þessari viku, en stefnt var að því að bólusetja yfir 25 þúsund manns í vikunni. Alls hafa nú yfir 100 þúsund manns verið bólusettir með að minnsta kosti fyrri sprautunni hér á landi. – bdj Yfir hundrað þúsund bólusett Mikill skriður er í bólusetningum hérlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Borhola er á svæðinu sem hefur ekki verið í notkun síðan í október og því ólíklegt að skjálftarnir tengist niðurdælingu. UMHVERFISMÁL Starfs hóp ur sem gera á til lög ur um upp bygg ingu eld gosssvæðis ins í Geld inga döl um skilar af sér minnisblaði í dag. „Ljóst er að svæðið mun koma til með að verða vin sæll áfanga­ staður,“ segir á vef Grindavíkur, um hópinn sem skipaður var af Þór dísi Kol brúnu Reyk fjörð Gylfa dóttur ferðamálaráðherra. Í hópn um eiga sæti bæjarstjóri Grinda vík ur bæj­ ar, full trú ar land eig enda fé lag anna tveggja á svæðinu, Um hverf is stofn­ un ar, Veður stof unn ar, al manna­ varna deild ar rík is lög reglu stjóra og lög regl unn ar á Suður nesj um, auk ferðamála stjóra, sem leiðir hópinn. „Skoða þarf hvernig tryggja megi ör yggi ferðamanna sem og upp lýs­ inga miðlun til þeirra, auk þess sem huga þarf að aðgangs stýr ingu,“ segir á grindavik.is. – gar Tillögur um framtíð Geldingadala Eldstöðvarnar eru fjölsóttar, enda aðdráttaraflið mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Á sama tíma og smit eru að koma upp hér og þar um landið ganga bólusetningar gegn COVID-19 afar vel þessa dagana. 3 0 . A P R Í L 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.