Fréttablaðið - 30.04.2021, Side 8
BANDARÍKIN „Ég get tilkynnt þjóð-
inni að Ameríka er komin á skrið á
ný,“ sagði Joe Biden, forseti Banda-
ríkjanna, í ræðu sinni fyrir báðum
deildum Bandaríkjaþings í fyrri-
nótt. Þá voru liðnir hundrað dagar
síðan Biden var svarinn í embættið.
Þar sagði Biden að hann stefndi
að miklum breytingum á velferðar-
og hagkerfi Bandaríkjanna, meðal
annars með umbótum á samfélags-
stoðum á borð við menntakerfið og
barnabætur. Hann sagði faraldur-
inn hafa opinberað glufur í innvið-
um landsins og að besta leiðin til að
efla hagvöxtinn væri að skattleggja
þá ríku.
Þá sagði hann að Bandaríkin
þyrftu að sanna fyrir heiminum að
lýðræði virkaði ennþá svo landið
væri samkeppnishæft við alræðis-
ríki á borð við Kína.
„Það þekkir enginn innviði
Bandaríkjaþings betur en Joe Biden,
svo hann er ekki að setja þetta fram
að gamni sínu,“ segir Kristján Guy
Burgess alþjóðastjórnmálafræð-
ingur um fyrirætlanir forsetans.
„Nú þarf að koma í ljós hvort
hann fái stuðning meirihluta fyrir
nákvæmlega þessum tillögum eða
hvort þær muni breytast í meðferð
þingsins. Biden ákvað að gefa engan
afslátt og setja tillögurnar fram eins
og hann taldi þær vera bestar.“
Enn hefur enginn Demókrati sett
sig gegn tillögunum en Kristján
segir það þó geta gerst.
Þegar Biden tók við embætti for-
seta Bandaríkjanna lofaði hann
hundrað milljón bólusetningum
þegar hann hefði starfað í hundrað
daga. Það markmið náðist fyrir
miðjan mars, og 21. apríl höfðu 200
milljón bólusetningar farið fram í
Bandaríkjunum.
Í dag hefur rúmlega helmingur
Ba nd a r ík ja ma nna feng ið að
minnsta kosti einn skammt af bólu-
efni, alls um 235 milljón skammta.
„Biden erfir versta bú sem nokkur
Bandaríkjaforseti hefur tekið við,“
segir Kristján og nefnir heimsfar-
aldur, kreppu og harðar innanrík-
isdeilur á borð við vantraust á lög-
reglu sem dæmi. „Það að finna leið
til að snúa faraldrinum við er fyrsta
stóra afrek hans sem forseta og nú
taka við þessir viðspyrnupakkar til
að koma efnahagnum aftur á réttan
kjöl.“
Kristján segir Biden sækja ýmis-
legt í smiðju forvera sinna og hafa
til að mynda kynnt sér vel hvernig
Roosevelt tók á kreppunni á fjórða
áratugnum. Þá segir Kristján Biden
einnig hafa lært mikið af því að
starfa sem varaforseti Obama sem
hafi líka tekið við embætti í erfiðu
ástandi.
„Það sem Biden lærði af tíma
sínum sem varaforseti er að það
þarf að vinna miklu hraðar,“ segir
Kristján. Koma þurfi málunum sem
fyrst af stað.
„Biden hefur til að mynda tekið
ýmsar ákvarðanir í krafti síns
embættis án þess að láta það fara í
gegnum þingið fyrst. Hann stendur í
dag frammi fyrir stórum verkefnum
og það verður auðvitað ekki allt vin-
sælt sem hann ákveður að gera,“
segir Kristján Guy Burgess.
arnartomas@frettabladid.is
Biden lofar stórum aðgerðum
eftir hundrað daga í embætti
Á hundraðasta degi sínum í embætti sagðist Joe Biden stefna að miklum breytingum á velferðar- og hag-
kerfi Bandaríkjanna, meðal annars með því að skattleggja þá ríku. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir
Biden hafa lært af reynslunni að hlutirnir þurfi að gerast hratt. Nýi forsetinn erfi versta bú nokkru sinni.
Biden spjallar við þingmenn að lokinni ræðu sinni á Bandaríkjaþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Nýju fingurnir keisarans
Fróðleiksfúsir virða fyrir sér risavaxna bronsstyttu af rómverska keisaranum Konstantínusi á Capitolini-safninu í Róm. Hægt var að setja hönd stytt-
unnar aftur saman eftir að Louvre-safnið í París sendi þangað fingur sem vantaði. Ætli keisarinn taki upp á því að læra að hekla? FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Það þekkir enginn
innviði Bandaríkja-
þings betur en Joe Biden, svo
hann er ekki að setja þetta
fram að gamni sínu.
Kristján Guy
Burgess,
alþjóðastjórn-
málafræðingur
PÓLLAND Pólskir vísindamenn hafa
komist að því að egypsk múmía sem
áður var talin karlkyns prestur, var
í raun og veru kona sem gekk með
barn. Þetta er í fyrsta skipti sem
uppgötvað hefur verið að múmía
hafi verið barnshafandi.
Rannsakendurnir, sem tóku þátt í
svokölluðu Múmíuverkefni í Varsjá,
gerðu grein fyrir uppgötvuninni
í tímariti um fornleifafræði í gær.
Verkefnið hófst árið 2015 þar sem
skoða átti ýmsa muni sem hýstir eru
á Þjóðminjasafninu í Varsjá.
Samkvæmt rannsakendum var
múmían að öllum líkindum efri
stétta kona á milli tvítugs og þrítugs
sem lést á fyrstu öld fyrir Krist. Með
athugun á höfuðummáli fóstursins
er áætlað að hún hafi verið komin
26 til 30 vikur á leið þegar hún lést.
– atv
Egypsk múmía
var með barni
BANDARÍKIN Stjórnvöld í Banda-
ríkjunum hafa ráðlagt Bandaríkja-
mönnum á Indlandi að yfirgefa
landið eins fljótt og auðið er.
Í tilkynningu bandaríska sendi-
ráðsins á Indlandi var varað við að
aðgangur að heilbrigðisþjónustu
væri afar takmarkaður. Þá voru
bandarískir þegnar hvattir til að
ferðast ekki til landsins, eða yfirgefa
það, við fyrsta mögulega tækifæri.
Um 379 þúsund greindust með
smit á Indlandi í gær, sem er mesti
daglegi fjöldi greindra tilfella á
heimsvísu. Meira en 18 milljón til-
felli hafa greinst í landinu og um 204
þúsund látist af völdum veirunnar.
– atv
Bandaríkjamenn
hvattir til að
yfirgefa Indland
Ástandið á Indlandi er bágborið.
JAPAN Borið hefur á óánægju í veit-
ingageiranum í Japan eftir að stjórn-
völd tóku upp á að senda dulbúið
eftirlitsstarfsfólk á veitingastaði
til að athuga hvort þeir framfylgdu
grímuskyldu.
Fjöldi veitingastaða í Japan
hefur hlotið leyfi til að hafa opið
fyrir rekstur, að því gefnu að þeir
framfylgi sóttvarnareglum á borð
við grímuskyldu. Komist eftirlits-
starfsfólkið á snoðir um að það sé
ekki gert, eiga þeir á hættu að missa
rekstrarleyfið.
Nokkrir staðir hafa lýst yf ir
óánægju með aðgerðirnar sem
þeir kalla yfirdrifnar og jaðra við
njósnir af hálfu stjórnvalda. Ríkis-
stjóri Kanagawa-héraðsins þar sem
eftirlitið hefur verið sett á fót segir
hins vegar að um mikilvægt starf
sé að ræða til að gæta þess að allir
séu að gera sitt besta gegn faraldr-
inum. – atv
Dulbúið eftirlit
á veitingastöðum
Eftirlitið er misvinsælt.
3 0 . A P R Í L 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð