Fréttablaðið - 30.04.2021, Síða 10
HEILBRIGÐISMÁL „Ég hef leitað
til læknisins en það hefur ekki
tekist að ná sambandi, segir Lilja
Guðmundsdóttir, sem er ein
þeirra kvenna sem bíður niður-
staðna eftir í skimun fyrir legháls-
krabbameini.
Lilja fór í skimunina 2. febrúar
síðastliðinn hjá kvensjúkdóma-
lækni. Hún hafði áður farið í keilu-
skurð vegna frumubreytinga, eða í
ágúst í fyrra, þar sem hún var með
svonefndar hágráðu frumubreyt-
ingar.
„Ég fylgist líka daglega með hvort
póstur komi inn á Heilsuveru eða á
island.is en ekkert kemur,“ segir
Lilja, sem hefur því beðið niður-
staðna í þrjá mánuði. Hún bendir
á að óvissan sé enn meiri því hún
hafi ekki greinst með HPV-veiruna
í ágúst heldur aðra tegund og sjald-
gæfari. Hins vegar stóð bara til boða
að kanna með HPV í febrúar, eftir að
skimunin fór frá Krabbameinsfélag-
inu.
Aldurshópurinn 30 til 59 ára
er bara skimaður fyrir HPV en ég
var með aðra tegund, svo ég skil
ekki hvernig á að finna þess háttar
frumubreytingar eftir að skimun
var breytt fyrir þennan aldurshóp,“
segir Lilja, sem kveður óvissuna
slæma.
„Ég fór úr engum breytingum í
skimun árið 2018 í hágráðu breyt-
ingar 2020 svo ég þekki hvað þetta
getur breyst hratt. Ég hef misst
traust á þessu kerfi, það er eins og
öllum sé sama og benda bara hver
á annan. Það tekur enginn ábyrgð
og heilsu okkar er stefnt í hættu á
meðan. Ég spyr mig að því hvort að
karlmenn í áhættuhópi fengju sömu
meðferð í kerfinu? segir Lilja.“
Sýnin hafa verið send til Dan-
merkur í greiningu frá og með síð-
ustu áramótum þegar skimanir og
greining færðist á hendur ríkisins.
Sagt að vera bara róleg
Margrét Hildur Ríkharðsdóttir er
ein af 350 konum sem þurftu að
endurtaka sýnatöku þar sem rann-
sóknarglösin voru af rangri tegund
fyrir dönsku rannsóknarstofuna.
Hún fór í skimun þann 24. nóvem-
ber hjá Krabbameinsfélaginu og
bárust niðurstöður 24. febrúar þess
efnis að hún væri með HPV-veiruna
sem veldur frumubreytingum. Um
leið fékk hún að vita að hún þyrfti
að fara aftur í skimun þar sem ekki
væri hægt að vinna áfram með upp-
haf lega sýnið vegna rannsóknar-
glasanna.
„Ég gat fengið tíma eftir fjórar
vikur hjá Heilsugæslunni en ég
gat ekki beðið svo lengi og náði að
troða mér inn hjá kvensjúkdóma-
lækni í sýnatöku þann 1. mars,“
segir Margrét, sem enn bíður eftir
niðurstöðum og hefur tvisvar
hringt í samhæfingarstöð krabba-
meinsskimana. „Svörin voru mjög
dónaleg og mér var sagt að vera bara
róleg og þolinmóð.“
Margrét segist hafa spurt hvort
hún væri í forgangi þar sem keilu-
skurður var gerður þegar hún var 24
ára en lítil svör fengust. „Ég held þú
sért í forgangi, þú ættir að vera það
en ég veit það ekki,“ var svarið sem
hún kveðst hafa fengið frá hjúkr-
unarfræðingnum.
Þórdís Björg Björgvinsdóttir beið
í yfir fjórtán vikur. Hún fór í skimun
hjá sínum kvensjúkdómalækni
þann 13. janúar og fékk svar núna
á mánudaginn.
„Læknirinn minn sagði mér í
janúar að hann vissi ekkert um
hvenær niðurstaða kæmi og var
mjög hreinskilinn með það,“ segir
Þórdís. Hún hafi svo tvisvar hringt í
heilsugæsluna sem alltaf hafi reynst
henni vel.
„Í þetta sinn átti að hafa samband
við mig til baka en það var aldrei
gert,“ segir Þórdís. Hún segir að eftir
færslu sína inn á Facebook-hópinn
Aðför að heilsu kvenna og tölvu-
póst á samhæfingarstöð Heilsu-
gæslunnar, hafi borist símtal með
niðurstöðunni. Þórdís, sem er fjög-
urra barna móðir fór í keiluskurð
vegna HPV árið 2006 og greindist
líka fyrir fimm árum með frumu-
breytingar. „Ég hefði ekki boðið í
að vera í þeim sporum núna þegar
allt er svona ótryggt.“
Enginn hafði samband
Anna Mjöll Eldheims fór í skimun
3. mars hjá Heilsugæslunni í Drápu-
hlíð, Reykjavík og bíður enn svars
nú, tæpum tveimur mánuðum síðar.
Frumubreytingar fundust hjá Önnu
Mjöll fyrir rúmu ári þegar hún fór
í sína fyrstu leghálsskimun. Þá var
henni tjáð að hún fengið boð eftir
sex mánuði í eftirlit og skimun. Það
hefði átt að vera í byrjun febrúar en
enginn hafði samband við Önnu
Mjöll sem svo bókaði tíma sjálf á
heilsugæslunni.
Sýni týndust
Kristný Maren Þorvaldsdóttir er ein
þeirra sem fékk svar á miðvikudag-
inn, eftir skimun þann 13. desember
sem gerð var á Landspítalanum.
Hún dvaldi á spítalanum vegna
annarra meina en æskilegt þótti að
taka leghálssýni fyrir krabbameini.
„Ég fékk svar fyrst í fyrradag og
ég þarf að fara aftur,“ segir Kristný.
Þau svör sem hún hefur fengið
eftir mikla umleitan var að sýnið
hefði týnst, það hafi ekki verið
skráð. „Ég var ekkert látin vita.“
Hún segist til dæmis hafa hringt í
Krabbameinsfél agið sem hafði ekki
fengið sýnið til sín.
Fjöldamargar frásagnir kvenna
má lesa á spjalli í f jölmennum
Facebook-hópi sem nefnist „Aðför
að heilsu kvenna.“
Fljótlega komnir gæðastaðlar
Í tilkynningu frá Heilsugæslunni
á miðvikudag stendur meðal ann-
ars: „Fljótlega, þegar verður búið að
vinna upp töf og lausnir á skráningu
í skimunarskrá verða komnar til
framkvæmda, verður hægt að upp-
fylla alþjóðlega gæðastaðla.“ Með
þeim eiga allt að 80 prósent kvenna
að fá niðurstöðu innan fjögurra
vikna og allar konur innan sex
vikna.
Konur misstu traust á krabbameinsleit
Margar konur lýsa um þessar mundir stórgölluðu kerfi og óskilvirkri þjónustu þegar kemur að leghálsskimunum. Niðurstöður úr
leghálssýnum berast konum seint og illa og upplýsingum er ábótavant. Fréttablaðið ræddi við konur sem lýsa persónulegri reynslu.
Lilja Guðmundsdóttir. Margrét Hildur Ríkharðsdóttir. Þórdís Björg Björgvinsdóttir.
Linda Blöndal
linda@frettabladid.is
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tók í mars við undirskriftum frá hópnum „Aðför að heilsu kvenna“. Kallað var á breytingar til að endurheimta traust kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
3 0 . A P R Í L 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð