Fréttablaðið - 30.04.2021, Síða 13

Fréttablaðið - 30.04.2021, Síða 13
Í DAG Þórlindur Kjartansson Í upphafi vikunnar bárust þær ánægjulegu fréttir frá Umhverf­isstofnun að losun gróðurhúsa­ lofttegunda á beinni ábyrgð Íslands hefði dregist saman um 2% milli 2018 og 2019 sem er mesti sam­ dráttur milli ára frá 2012. Þróun í bindingu í skóglendi er líka mjög jákvæð en hún jókst um 10,7% frá 2018 til 2019 og hefur nú náð sögu­ legu hámarki frá 1990. Þessar tölur hvetja okkur til frekari dáða í loftslagmálum. Þó að við höfum hugsað um fátt annað en kórónuveiruna undanfarin miss­ eri þá er loftslagsváin enn okkar stærsta áskorun og brýnt að halda áfram á sömu braut. Í stjórnarsátt­ mála núverandi ríkisstjórnar eru loftslagsmálin í algjörum forgangi. Fyrsta aðgerðaáætlun ríkisstjórn­ arinnar í loftslagsmálum var lögð fram 2018 og uppfærð aðgerðaáætl­ un í loftslagsmálum sem stjórnvöld lögðu fram í fyrra varðar leiðina að frekari árangri. Í henni eru settar fram fjölmargar aðgerðir á öllum sviðum sem í fyrsta sinn eru metn­ ar með tilliti til árangurs. Þá hefur aldrei verið veitt meira fjármagni til málaflokksins en á þessu kjörtíma­ bili. Og til að mæta nýjum og metn­ aðarfyllri skuldbindingum okkar í loftslagsmálum sem kynntar voru í desember síðastliðnum bættum við enn frekar í aðgerðir og fjármagn til málaflokksins í nýrri fjármálaáætl­ un sem nú er til meðferðar á Alþingi. Nýjar aðferðir í bindingu Í vikunni heimsóttu ráðherrar í rík­ isstjórninni Carbfix sem er dóttur­ félag Orkuveitu Reykjavíkur. Carbfix byggist á íslensku hugviti sem geng­ ur út á að fanga koldíoxíð og aðrar vatnsleysanlegar gastegundir eins og brennisteinsvetni úr útblæstri og binda í steindir í bergi á umhverfis­ vænan hátt. Aðferðafræðin er ein­ stök á heimsvísu og getur orðið mikilvægt framlag í baráttunni gegn loftslagsvánni. Munurinn á þessari aðferð og því að geyma koldíoxíð í stórum gasgeymum – sem margar þjóðir gera nú tilraunir með – er sá að með henni er koldíoxíðinu fargað varanlega á mun öruggari hátt með því að umbreyta því í berg. Þetta er í raun náttúrulegt ferli sem einfald­ lega er flýtt með aðstoð tækninnar. Við hlið Carbfix á Hellisheiði hefur svo svissneska nýsköpunarfyrir­ tækið Climeworks hafið uppbygg­ ingu á nýrri verksmiðju sem byggir á þeirri tækni að fanga kolefni beint úr andrúmsloftinu. Það nýtir sér svo íslenska hugvitið hjá Carbfix til að farga kolefninu með því að binda það í basaltberg. Þessi merkilega nýsköpun er viðbót við aðrar aðferðir sem við Íslendingar höfum beitt til að binda kolefni en við höfum staðið framar­ lega í náttúrulegum lausnum til kol­ efnisbindingar eins og landgræðslu og skógrækt og höfum verið óþreyt­ andi við að tala fyrir þeim á alþjóða­ vettvangi. Samstarf stjórnmála og vísinda Kolefnisbinding ásamt samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda mun verða lífsnauðsynleg til að sporna gegn loftslagsbreytingum á næstu áratugum. Við höfum sýnt það í þessum heimsfaraldri að mann­ kynið er fullfært um að ná ótrú­ legum árangri þegar hætta steðjar að. Við þurfum að ná sama árangri gegn loftslagsvánni og læra af því sem við höfum gert í faraldrinum – vísindamenn, fagfólk, stjórnmála­ menn, atvinnulíf og almenningur – við þurfum öll að vinna saman til að ná markmiðum okkar og tryggja öruggan, sjálf bæran heim fyrir komandi kynslóðir. Loftslagsmálin voru eitt af stóru málunum í stefnuskrá Vinstri grænna fyrir síðustu kosningar. Þau munu áfram verða það og ég er sannfærð um að sú stefna sem nú hefur verið mörkuð og þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til, byggi mikilvægan grunn að árangri Íslands í loftslagsmálum. Verkefnið er hins vegar gríðarstórt og meira mun þurfa til – en ef við höldum áfram á sömu braut mun það skila frekari árangri og Ísland leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn loftslagsvánni – stærsta verk­ efni samtímans. Stærsta verkefnið Þó að við höfum hugsað um fátt annað en kórónuveir- una undanfarin misseri þá er loftslagsváin enn okkar stærsta áskorun og brýnt að halda áfram á sömu braut. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra Ef kapítalisminn hefði samvisku þá hefði hann sitthvað á henni. Hann hefur til að mynda séð okkur fyrir botnlausum aðgangi að sjónvarpsefni um innihalds­ rýrt líf eiginkvenna auðmanna í ýmsum borgum og úthverfum Bandaríkjanna en finnur ekki út úr því að síminn manns tengist við rétt bluetooth tæki. Þetta hefur leitt til þess að helmingur allra símtala nú til dags fer í ein­ hvers konar gól um það hvort fólk heyri í viðmælandanum. „Heyrirðu núna? Já ok. Sorrí, var að setjast inn í bíl. En núna? Halló? Í hvaða tæki á ég að tala? Ertu þarna ennþá?“ En þetta eru auðvitað smá­ atriði. Kapítalistar hafa vitaskuld framið margfalt stærri glæpi en að sjá almenningi ekki fyrir nægilega snurðulausum samskiptum við jaðartæki. Dæmin eru fjölmörg um heim allan þar sem græðgi og skammsýni hafa leitt fjármagns­ eigendur og fyrirtæki út í alls konar vafasama og jafnvel glæp­ samlega hegðun. Samt er líklegt að kapítalisminn standist sama próf og lýðræðið — að vera versta efnahagskerfið sem fundið hefur verið upp fyrir utan öll hin. Afl fjármagnsins Hugtakið kapítalismi þýðir ef til vill ekki það sama í hugum allra. Ein leið til þess að skilgreina kapítalisma er að það sé kerfi þar sem fjármagn hefur afgerandi áhrif á það hvaða verkefni eru framkvæmd í samfélaginu og hver ekki. Peningar eru af l þeirra hluta sem gera skal í kapítalísku samfélagi — og í þeirri setningu felst líka ágæt áminning um hvað peningar eru ekki. Þeir hafa ein­ ungis gildi fyrir þær sakir að hægt er að nota þá til þess að láta hluti gerast, en eru að öðru leyti eins og hver önnur mælieining. Rétt eins og það er hitinn sem yljar okkur á sumardögum, en ekki hitastigið — þá eru það vörurnar, þjónustan og upplifanirnar sem fyrir hann fást sem hafa gildi en ekki sjálfur peningurinn. Það er þess vegna í raun máttur peninganna, en ekki aurinn sjálfur, sem gerir það að verkum að miklir fjármunir geta gert menn að öpum. Mikil völd eru vandmeðfarin, hvernig svo sem þau völd eru fengin. Þeir sem hafa mikil völd af því þeir hafa eignast mikla fjármuni geta reynst skeinuhættir samfélagi sínu og það er mikilvægt að umgjörð laga og reglna sé með þeim hætti að slíkum einstaklingum og fyrir­ tækjum sé markaður eðlilegur rammi. Vald ríkisins Það eru aðrar leiðir en fjármagn til að ákveða hvernig forgangs­ raða eigi verkefnum í samfélag­ inu. Stundum á vel við að notast við lýðræðið eða einhvers konar pólitískan vilja. Í því leynast þó líka hættur. Því fyrir þá sem hafa miklar áhyggjur af misnotkun valda er því ekki endilega nær­ tækast að hafa áhyggjur af mis­ notkun ríka fólksins á áhrifum sínum — þótt sannarlega sé tilefni til þess að hafa varann á gagn­ vart því. Miklu meiri hætta stafar nefnilega af misbeitingu ríkis­ valdsins sjálfs gagnvart borgur­ unum. Ríkisvald hefur einkaleyfi til að beita löglega of beldi til þess að ná sínu fram. Þess vegna eru stærstu og mikilvægustu skrefin í mannrétt­ indaþróun síðustu alda að veita einstaklingum og einkaaðilum sjálfstæð og algjör réttindi gagn­ vart hinu yfirþyrmandi ríkis­ valdi. Kóngafólk og landshöfðingjar fyrri tíma gátu farið fram gagn­ vart almenningi þannig að þeir þyrftu aldrei að hafa áhyggjur af því að standa reikningsskil gjörða sinna. Sá sem stóð eftir niður­ lægður, rændur og laminn eftir fantaskap embættismanna á fyrri öldum gat lítið annað gert en að bíta á jaxlinn. Því miður er staðan enn þannig víða um heim. Varnarleysi gagnvart yfirvaldi Anga af svona hegðun má reglu­ lega sjá í framferði lögreglunnar í Bandaríkjunum. Fjölmörg dæmi eru um að lögreglan komist upp með jafnvel mjög augljós of beldis­ brot gagnvart varnarlausum almenningi. Þar í landi var lög­ regluþjónn nýverið dæmdur fyrir morð, en um niðurstöðu réttar­ haldanna var mikill efi þótt öll heimsbyggðin hafi séð upptökur af fantabrögðunum sem leiddu til dauða George Floyd, mannsins sem verið var að handtaka. Því er haldið fram að ef ekki hefði verið fyrir þessa upptöku, sem ungl­ ingur tók á símann sinn, sé nánast óhugsandi að lögregluþjónninn hefði fengið dóm fyrir vald­ beitinguna. Það er áhugavert að í Bandaríkjunum er ekki aðeins til staðar umræða um valdbeitingu lögreglunnar, heldur eru einn­ ig háværar raddir á hinum enda rófsins sem telja að löggæslan þar sé vængstýfð vegna ótæpilegra möguleika almennra borgara til kvartana og lögsókna yfir fram­ ferði lögregluþjóna. Og þótt fréttir af lögreglu­ of beldi í Bandaríkjunum séu algengar þá er hinn sorglegi sann­ leikur að mjög víða í heiminum tíðkast að laganna verðir misbeita aðstöðu og valdi og víða geta almennir borgarar ekkert annað gert en að bíta á jaxlinn. Allt vald spillir Vandinn við valdamikla kapítal­ ista er ekki að þeir séu kapítalistar heldur að þeir séu valdamiklir. Hið sama má segja um valdamikla embættismenn — hættan felst ekki í því að þeir séu embættis­ menn, heldur í því að þeir geti orðið of valdamiklir. Réttarríkið og mannréttindi eru vörn venjulegs fólks fyrir þeim sem fara með mikil völd eða geta beitt valdi og of beldi. Þetta eru þær stoðir sem allt frelsi, jafn­ rétti og bræðralag meðal manna byggist á. Vangaveltur um að gera embættismenn ábyrgðarlausa gagnvart lögum — þannig að ekki sé hægt að leita réttar síns gagnvart þeim ef þeir misbeita valdi sínu — er mjög slæm. Hún er í raun jafnslæm, eða verri, heldur en hugmyndir (sem enginn hefur) um að auðmenn geti raunverulega keypt sig fram hjá réttarríkinu. Þegar kemur að því að bera saman tjónið sem valdagírugir kapítalistar geta valdið innan ramma réttarríkis við skaðann sem handhafar ríkisvaldsins geta gert ef þeir eru staðsettir fyrir ofan lögin, þá er himinn og haf þar á milli. Ríkisvald utan réttarríkisins mun ætíð enda í martröð, sama hversu vel það kann að vera meint í upphafi. Ríkisvald utan réttarríkis S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F Ö S T U D A G U R 3 0 . A P R Í L 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.