Fréttablaðið - 30.04.2021, Qupperneq 14
3 0 . A P R Í L 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Valur fær ÍA í heimsókn á
Origo-völlinn að Hlíðarenda í kvöld
í fyrsta leik keppnistímabilsins á
Íslandsmótinu í knattspyrnu karla.
Liðunum er spáð ólíku gengi. á
meðan f lestir telja að Valur, sem
er ríkjandi Íslandsmeistari, muni
berjast um titilinn eru margir á því
að Skagamenn verði í fallbaráttu.
Leikmenn ÍA eiga reyndar góðar
minningar frá ferð sinni að Hlíðar-
enda frá því í fyrra þegar gestirnir
af Skaganum unnu góðan 4-1 sigur.
Sumarið 2019 vann svo ÍA, 2-1,
í leik liðanna á Valsvellinum. Frá
árinu 2000 hafa liðin mæst 26 sinn-
um í efstu deild. Valur hefur haft
betur 12 sinnum, fjórum sinnum
hafa liðin gert jafntefli og ÍA sigrað
10 sinnum.
Tryggvi Hrafn Haraldsson, sem
skoraði 12 mörk fyrir Skagamenn í
deildinni síðasta sumar, gekk til liðs
við Val síðasta haust. Tryggvi fót-
brotnaði fyrr á þessu ári og verður
ekki með í upphafi tímabilsins.
Skagamaðurinn Arnór Smárason,
sem kom til Vals frá Lilleström fyrir
þetta tímabil, verður einnig fjarri
góðu gamni í þessum leik.
Í herbúðum ÍA eru allir klárir
í slaginn fyrir en Sindri Snær
Magnússon er þó tæpur vegna
ökklameiðsla. Skagaliðið hefur auk
Tryggva misst Stefán Teit Þórðarson
frá síðustu leiktíð. Tryggvi Hrafn og
Stefán Teitur skoruðu 20 af 39 mörk-
um ÍA í deildinni síðustu sumar. – hó
Valsmenn hefja
titilvörn sína
Valur vann titilinn síðasta haust.
DÓMSMÁL Christopher Metzelder,
fyrrverandi landsliðsmaður Þýska-
lands í fótbolta, var í gær dæmdur
í tíu mánaða skilorðsbundið fang-
elsi fyrir vörslu og dreifingu barna-
kláms.
Metzelder, sem lék til að mynda
með Borussia Dortmund, Real
Madrid og Schalke á ferli sinum, var
hnepptur í varðhald haustið 2019.
Við húsleit á heimili Metzelder
fundust um það bil þrjú hundruð
myndir og myndbönd sem inni-
héldu barnaklám. Dómur þessa fer-
tuga manns var mildaður þar sem
hann var með hreinan sakaferil.
Metzelder, sem hefur síðustu 15
ár rekið eigin samtök sem styðja
við börn í Þýskalandi sem eiga við
félagslega erfiðleika að etja, kveðst
ekki hafa brotið gegn börnum
sjálfur.
Varnarmaðurinn tapaði í úrslita-
leik HM með þýska liðinu árið 2002
og vann síðan brons 2006. – hó
Dæmdur fyrir
að eiga og dreifa
barnaklámi
KÖRFUBOLTI Martin Hermannsson
snéri aftur inn á körfuboltavöllinn
með liði sínu, Valencia, þegar liðið
lagði RETAbet Bilbao í spænsku
úrvalsdeildinni um síðustu helgi.
Martin tognaði á kálfavöðva í leik
Valencia gegn Barcelona um miðjan
mars og hefur landsliðsmaðurinn
verið fjarri góðu gamni síðan þá.
„Það var mjög góð tilfinning að
komast aftur inn á völlinn. Ég var
búinn að vera heill vikuna áður en
að þessum leik kom en þar sem það
var góður taktur í liðinu og það gekk
vel í leikjunum á þeim tímapunkti
þá var ákveðið að bíða aðeins með
endurkomuna hjá mér.
Ég kom svo inn í leikinn gegn
Bilbao þar sem við byrjuðum rólega.
Ég náði að koma inn með krafti og
innkoma mín átti þátt í að snúa
leiknum okkur í hag sem var bara
hið besta mál,“ segir Martin um
fyrsta leikinn hjá sér í rúman mánuð.
„Við höfum verið helst til sveiflu-
kenndir á þessu tímabili og það
svíður ennþá að hafa ekki náð að
komast í úrslitakeppnina í Euro
League. Það var markmiðið að
komast þangað og 19 sigurleikir
duga vanalega til þess að gera það.
Það var bara einn sigur sem skildi
að og maður hefur verið að fara yfir
nokkra leiki í huganum þar sem við
hefðum getað gert betur. Við náðum
að vinna öll liðin í Euro League
einu sinni í vetur og sýndum að
við eigum klárlega heima í þessari
sterkustu félagsliðadeild Evrópu.
Forráðamenn Valencia hækkuðu
launakostnaðinn og fengu til sín
leikmenn síðasta sumar með það að
leiðarljósi að gera sig gildandi í Euro
League. Ég held að árangur okkar
í vetur skili okkur sæti í deildinni
á næstu leiktíð og þá mætum við
reynslunni ríkari,“ segir hann.
Valencia hefur ekki áður náð að
komast alla leið í Euro League en
liðið hefur aftur á móti unnið Euro
Cup fjórum sinnum, árin 2003, 2010,
2014 og 2019. Þá hefur Valencia einu
sinni orðið spænskur meistari en
það var árið 2017.
„Eftir að við féllum úr leik í Euro
League höfum við haft betur í sex
deildarleikjum í röð. Við höfum náð
nokkrum sigurhrinum yfir leiktíð-
ina og náð nokkrum góðum köflum.
Það hefur hins vegar vantað upp
á stöðugleika en margir tapleikir í
deildinni hafa komið í kjölfar leikja
í Euro League. Nú er einbeitingin
bara á deildinni hjá landa og við
sleppum við ferðalögin milla landa.
Ég finn það alveg að við erum
ferskari og svo eru leikmenn sem
hafa verið meiddir í vetur að ná
sér af þeim meiðslum. Það eru allir
klárir í slaginn fyrir lokasprettinn
og ég er bara bjartsýnn á að við klár-
um þetta með stæl,“ segir Martin.
„Það lítur út fyrir að við mætum
Baskonia, sem var einnig í Euro
League, í átta liða úrslitum og svo
Barcelona eða Real Madrid ef við
klárum það einvígi. Þetta eru sömu
andstæðingarnir og Valencia mætti
þegar liðið fór alla leið vorið 2017.
Við erum með svipað lið og Bas-
konia og við höfum lagt Barcelona
og Real Madrid að velli á þessu
tímabili. Við getum alveg farið í
úrslitaviðureignina en það ræðst
bara á gamla góða dagsforminu og
hvernig málin þróast með meiðsli
og annað,“ segir bakvörðurinn.
„Spænska efsta deildin er sterk-
asta landsdeildin í Evrópu og ólíkt
því sem var í Þýskalandi þá getur
þú aldrei slakað á án þess að vera
refsað. Þeir leikmenn sem spila í
liðunum í neðri hlutanum vilja spila
fyrir Valencia og freista þess að sýna
sig og sanna í leikjum á móti okkur.
Það er mjög gaman að spila í
þannig umhverfi og ég hlakka til
að spila í úrslitakeppninni. Gengi
okkar í deildarkeppninni er undir
væntingum og stefnan er að bæta
upp fyrir það í úrslitakeppninni,“
segir þessi 26 ára gamli leikmaður.
Valencia situr í f immta sæti
spænsku úrvalsdeildarinnar þegar
liðið á eftir að spila fimm leiki í
deildinni.
Martin og félagar mæta UCAM
Murcia í deildarleik í kvöld. hjorv-
aro@frettabladid.is
Ætla að nýta svekkelsið í rétta
átt á lokaspretti tímabilsins
Martin Hermannsson og samherjar hans hjá Valencia eru með óbragð í munninum eftir að hafa verið
grátlega nærri því að komast í úrslitakeppni Euro League. Þá hefur gengið í spænsku deildinni verið
undir pari. Markmiðið er að hysja upp um sig buxurnar og gera atlögu að spænska meistaratitlinum.
Skagamenn hafa misst
úr sínum röðum tvo leik-
menn sem skoruðu 20 mörk
í deildinni síðastliðið sumar.
Martin Hermannsson er að spila á sínu fyrsta keppnistímabili með spænska liðinu Valencia. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Það er mjög gaman
að spila í þannig
umhverfi og ég hlakka til að
spila í úrslitakeppninni.
Martin Hermannsson
HANDBOLTI Forráðamenn Hand-
boltasambands Íslands, HSÍ, þurfa
að fresta því um nokkra daga að
panta f lug og hótel í Slóvakíu og
Ungverjalandi þar sem Ísland tap-
aði, 29-27, fyrir Litháen þegar liðin
mættust í Vilníus í gær.
Íslenska liðið byrjaði afar illa en
þegar rúmur stundarfjórðungur var
liðinn af leiknum var staðan 11-4
Litháen í vil. Varnarleikur Íslands
var afskaplega slakur og Aidenas
Malasinskak, sem skoraði 12 mörk
í leiknum, átti trekk í trekk greiða
leið í gegnum miðja vörn íslenska
liðsins.
Hægt og bítandi náðu leikmenn
Íslands hins vegar að koma sér inn í
leikinn og minnkuðu muninn í eitt
mark. Munaði þar miklu um inn-
komu Ágústs Elís Björgvinssonar í
íslenska markið en hann varði níu
skot í leiknum.
Tapaðir boltar komu aftur á móti
í veg fyrir að íslenska liðið næði í
stigið sem þarf til þess að tryggja
sætið á 12. lokakeppni Evrópu-
mótsins í röð.
Vinstri vængur íslenska liðsins
skilaði sínu verki sómasamlega í
þessum leik en Aron Pálmarsson
var markahæstur með átta mörk,
Bjarki Már Elísson kom næstur með
sex mörk og Ólafur Andrés Guð-
mundsson bætti fjórum mörkum
við í sarpinn.
Auk þess að skora mest skapaði
Aron sex færi fyrir samherja sína
og fimm af þeim sendingum urðu
að mörkum. Ólafur Andrés skap-
aði svo fjögur færi og gaf þrjár stoð-
sendingar.
Sveinn Jóhannsson átti góða inn-
komu á báðum endum vallarins en
hann lék vel í miðri vörninni og skil-
aði þremur mörkum hinum megin
á vellinum.
Farseðillinn í lokakeppni Evrópu-
mótsins er ennþá í höndum íslenska
liðsins en liðið þarf jafntef li eða
sigur þegar Ísraelar koma í heim-
sókn á Ásvelli í lokaumferð undan-
keppninnar á sunnudaginn kemur.
Toppsætið veltur hins vegar á því
hvort Litháen tekst að leggja Portú-
gal að velli í lokaumferðinni eður
ei. – hó
Íslenska liðinu tókst ekki að sýna sitt rétta andlit
Íslenska liðið átti í erfiðleikum með vörn Litháen í leiknum. MYND/AÐSEND
Ísland þarf eitt stig til
þess að gulltryggja sæti sitt
á EM.