Fréttablaðið - 30.04.2021, Síða 20
Samfélags- og umhverfisleg
sjónarmið hafa lengi verið
ofarlega á baugi hjá ELKO sem
á dögunum gaf út sína fyrstu
samfélagsskýrslu þar sem farið
er ítarlega yfir stefnu, árangur
og markmið fyrirtækisins tengd
málaflokkunum.
„Með samfélagsskýrslunni hefur
ELKO tekið þessi málefni enn
fastari tökum og sett sér stefnu til
framtíðar um að leggja áherslu á
sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð
þar sem loforð fyrirtækisins er:
„Það sem skiptir þig máli, skiptir
okkur máli“,“ segir Óttar Örn
Sigurbergsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri ELKO.
Óttar segir umhverfismál gríðar-
lega mikilvæg í starfsemi ELKO.
„Við höfum lagt áherslu á að
minnka kolefnisfótspor okkar,
meðal annars með markvissri
flokkun úrgangs ásamt ýmsum
sértækum aðgerðum tengdum
kjarnastarfseminni. Má þar nefna
móttöku á notuðum búnaði, endur-
vinnslu, rafræna reikninga, flokkun
og orkusparnað,“ upplýsir Óttar.
Leitast er við að valda umhverf-
inu sem minnstum skaða með
starfsemi ELKO og fram undan er
að setja frekari markmið um að
draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda til ársins 2030. Samtals
var losun gróðurhúsalofttegunda
hjá ELKO 27,9 tC02, en móðurfélag
ELKO hefur til nokkurra ára kol-
efnisjafnað beina losun frá kjarna-
starfsemi allra dótturfélaganna
og hefur kolefnisjafnað samtals
20 tonn af C02 á árinu 2020 með
gróðursetningu sem samsvarar
270 trjáa í gegnum Kolvið fyrir
ELKO.
„Í dag, með breyttri neyslu-
hegðun viðskiptavina, er mikil-
vægt að ELKO bregðist við með
aukinni vitund um neyslu- og
umhverfismál þar sem umhverfis-
vernd er orðin stór þáttur í kaup-
ferli raftækjaneytandans. Þau
atriði sem ELKO hefur og getur lagt
áherslu á, er líftími raftækja og að
auka vitund starfsmanna um sóun
almennt, en við leggjum okkur
fram við að minnka sóun og auka
flokkun,“ segir Óttar og bætir við:
„Starfsstöðvar ELKO flokka
úrgang frá starfsemi sinni og
heildarhlutfall f lokkaðs úrgangs
fyrir 2020 var 80,6 prósent. Um 78
prósent af úrgangi fara í endur-
vinnslu og 22 prósent til urðunar.“
Endurnýting mikilvæg
Framleiðsla á hátæknibúnaði
krefst hágæða og sérhæfðra
málma og mörg raftæki innihalda
ekki aðeins hættuleg, eitruð og
umhverfisskaðleg efni – heldur
innihalda þau einnig dýrmæt efni
sem ætti að endurnota.
„Til er takmarkað magn af þess-
um dýrmætu efnum í heiminum
og þar sem uppsprettur sumra
þeirra eru ekki endurnýjanlegar
þurfum við að tryggja að þessi efni
séu endurnýtt. Því skiptir miklu
máli að þeim sé skilað rétt,“ segir
Óttar og heldur áfram:
„ELKO hefur í nokkur ár boðið
viðskiptavinum að koma með
gömul raftæki í verslanir undir
formerkjunum „Fáðu eitthvað
fyrir ekkert“ þar sem við kaupum
snjallsíma, fartölvur, leikjatölvur og
spjaldtölvur til að gefa þeim nýtt líf
í formi endurvinnslu. Í gegnum það
ferli greiddum við viðskiptavinum
rúmlega 10 milljónir króna fyrir tvö
þúsund notuð raftæki á árinu 2020.“
Nýir endurvinnsluskápar
ELKO kappkostar í sífellu að gera
betur í umhverfismálum og segir
Óttar fyrirtækið stefna enn hærra
á þessu ári.
„ELKO er til dæmis að bæta
aðgengi í verslunum til að auð-
velda viðskiptavinum að koma
eldri raftækjum í endurvinnslu,
með því markmiði að lengja líf-
tíma varanna. Það verður gert
með því að verða enn betri í
endurnýtingu og endurvinnslu og
tryggja að ELKO verði fyrsta val
þegar kemur að skilum á notuðum
raftækjum. Við kynnum því glöð
til leiks nýja endurvinnsluskápa.
Með því að setja aukna áherslu á
umhverfismál og endurvinnslu
notaðra raftækja höfum við tekið
endurvinnsluna skrefinu lengra,
og hafa verslanir okkar í Lindum
og á Akureyri fengið glænýja,
rúmgóða og snyrtilega endur-
vinnsluskápa í anddyrin,“ upp-
lýsir Óttar. Endurvinnsluskápar
bætast svo fljótlega við í ELKO
Skeifunni og Granda.
„Í þessum skápum er tekið við
smærri raftækjum, rafhlöðum,
blekhylkjum, ljósaperum og flúr-
perum. Við hvetjum því viðskipta-
vini okkar til að koma þessum
hlutum í ábyrga endurvinnslu um
leið og þeir kíkja næst í heimsókn
í ELKO.“
Heimsmarkmiðin og ELKO
ELKO hefur valið að leggja sérstaka
áherslu á fjögur Heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna af sautján.
Voru þar valin áhersluatriði sem
snerta kjarnastarfsemi félags-
ins hvað mest, til að stuðla að
sjálfbærni og ábyrgum viðskipta-
háttum.
l ELKO leggur áherslu á jafnrétti
með jafnlaunavottun og jafn-
launastefnu og styður þannig
við Heimsmarkmið 5 um jafn-
rétti kynjanna.
l ELKO leggur áherslu á Heims-
markmið 8 um góða atvinnu og
hagvöxt með því að hjálpa við-
skiptavinum að njóta ótrúlegrar
tækni.
l ELKO vill halda áfram að draga
verulega úr úrgangi með for-
vörnum, meiri endurvinnslu og
endurnýtingu og styðja þannig
við Heimsmarkmið 12 um
ábyrga neyslu og framleiðslu.
l ELKO styður við Heimsmark-
mið 13 um aðgerðir í lofts-
lagsmálum og hefur sett sér
loftslagsmarkmið þar sem
markmiðið er að draga mark-
visst úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda og kolefnisjafna eigin
starfsemi félagsins.
Loftslagsmarkmið ELKO eru:
l Að minnka myndun úrgangs
með meiri endurvinnslu og
endurnýtingu.
l Að draga úr óflokkuðum
úrgangi um 2 prósent á ári til
ársins 2010.
l Að a.m.k. 90 prósent sorps frá
ELKO verði flokkuð árið 2030.
l Að veita upplýsingar um
árangur og aðgerðir með útgáfu
sjálfbærniskýrslu.
l Að kolefnisjafna notkun eigin
bíla með gróðursetningu trjáa.
l Að koma notuðum búnaði í
hringrásarkerfið.
Umhverfisvernd skiptir miklu máli hjá ELKO
Óttar Örn Sigurbergsson, aðstoðarframkvæmdastjóri ELKO.
Svona líta nýju endurvinnsluskáp-
arnir í ELKO út. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Iðnhönnuðurinn Sunna Ósk
Þorvaldsdóttir hannaði og
smíðaði bókastólinn Málfríði
árið 2013. Stóllinn hefur verið
til sýnis á Borgarbókasafni
Reykjavíkur frá upphafi en
leitar nú að nýju heimili.
sandragudrun@frettabladid.is
Sunna Ósk smíðaði stólinn þegar
hún var á listnámsbraut í Iðn-
skólanum í Hafnarfirði. Síðan
þá hefur hún lokið námi í bæði
umhverfisskipulagsfræði og iðn-
hönnun og er nú búsett í Dan-
mörku. Sunna hefur þó reglulega
heimsótt bókastólinn sinn og er
annt um að hann komist í góðar
hendur.
„Ég smíðaði stólinn í skólanum
og fór svo beint með hann á einka-
sýningu mína á HönnunarMars
sem var á Borgarbókasafninu.
Hann hefur verið í láni þar síðan,“
segir hún.
„Hugmyndin bak við stólinn
var bæði sú að endurnýta og halda
í það gamla. Þú átt kannski mikið
af bókum sem eru farnar að taka
pláss en þú ert ekki tilbúin að losa
þig við þær.“
Stóllinn Málfríður er stálgrind
sem Sunna raðaði bókum á.
„Það var svolítill hausverkur
að setja stólinn saman en það var
góð áskorun. Ég kíki reglulega á
hann og skoða hvernig bókunum
er raðað og dytta að honum. Ég
hef talað við þau á bókasafninu og
fengið að skipta út bókum ef þau
eru með f leiri afskrifaðar bækur.
Svona til að fegra hann aðeins,“
segir Sunna og hlær.
„Þau á bókasafninu sögðu mér
að stóllinn hefði hjálpað til við að
selja afskrifaðar bækur. Mér fannst
mjög gaman að heyra það. En núna
er verið að endurskipuleggja á
bókasafninu og því miður er ekki
pláss fyrir hann lengur.“
Sunna segist ekki vera með
neinn draumastað í huga fyrir
stólinn. Hún vill bara að hann
verði einhvers staðar þar sem hann
er vel metinn.
„Ég hef heyrt í nokkrum bóka-
söfnum en þar er því miður ekki
pláss, en vonandi finnst sama-
staður fyrir hann,“ segir hún.
Sunna hefur ýmislegt gert síðan
hún bjó til bókastólinn góða en
þessa dagana er hún að sækja um
að vera með innsetningu á arki-
tektahátíð og hönnunarhátíð.
„Ég er sjálfstætt starfandi, en
þessi innsetning er tengd lands-
lagsarkitektúr. Hátíðirnar sem
Bókastóll leitar að heimili
Sunna býr núna og starfar í Dan-
mörku. MYND/AÐSEND
Stóllinn er
stálgrind sem
bókum er raðað
á. MYND/BJÖRGVIN
SIGURÐARSON
Bókastóllinn Málfríður óskar núna eftir nýju heimili eftir að hafa verið í
átta ár í láni á Borgarbókasafninu í góðu yfirlæti. MYND/BJÖRGVIN SIGURÐARSON
ég er að sækja um á eru í október
og verða líklega bæði á netinu
og á staðnum. Ég tók þátt síðasta
október í hollensku hönnunar-
vikunni í Eindhoven en hún var
bara á netinu. En það verður bara
að koma í ljós hvað verður núna.“
Ef einhverjar hugmyndir vakna
um tilvalinn stað fyrir stólinn má
hafa samband við Sunnu á soskde-
sign@gmail.com.
4 kynningarblað A L LT 30. apríl 2021 FÖSTUDAGUR