Fréttablaðið - 30.04.2021, Page 25

Fréttablaðið - 30.04.2021, Page 25
felur í sér kröfu um rekjanleika, meira rými í kvíum fyrir hvern fisk, náttúruleg hráefni í fóðri og enga lyfja- eða efnanotkun. Félagið undirgengst eftirlit af hálfu Whole Foods og vottunaraðila árlega til staðfestingar á að framleiðslan uppfylli framleiðsluskilmála og gæðakröfur. Við fylgjum þessum ströngu kröfum Whole Foods til hins ítrasta, en mjög fáir framleiðendur í heiminum hafa burði til þess að uppfylla alla gæðastaðla Whole Foods. Einnig erum við með fjölda annarra viðskiptavina sem greiða hærra verð en gengur og gerist, vegna meiri gæða framleiðslunnar. Ástæðan fyrir því að við erum ekki að horfa til íslenska markaðarins er sú að hér hefur ekki verið mark- aður fyrir dýrari hágæða lax.“ Fiskeldi Austfjarða er einnig með Aqua Gap umhverfis- og sjálfbærnivottun. „Líkt og á við um Whole Foods vottunina tryggir Aqua Gap það fyrir viðskiptavini okkar að engin efni séu notuð við framleiðsluferlið, allt frá hrognum til viðskiptavinar. Einnig erum við með í framleiðslu lífrænt vottaðan lax sem verður kominn inn á markað innan tveggja ára. Þar er fóðrið úr lífrænt ræktuðu hráefni og aukin krafa um rými sem hver fiskur hefur í kvínni, en annars er um sambærilega staðla að ræða og við uppfyllum hjá Aqua Gap. Það að fá vottun fyrir lífrænt alinn lax er mikil viðurkenning fyrir okkur og okkar starf.“ Sjálfbærni og umhverfisvöktun Að sögn Guðmundar starfar Fiskeldi Austfjarða samkvæmt áhættumati sem Hafró fram- kvæmir og óskað var eftir af hálfu veiðimanna. „Áhættumatið segir til um hversu mikið má framleiða miðað við lágmörkun á að hætta skapist fyrir villtan lax í ám lands- ins. Einnig er umhverfisvöktun á eldissvæðum þar sem fylgst er með gæðum sjávar og botns en mæl- ingar þar hafa komið mjög vel út og staðfesta sjálfbærni laxeldisins. Mengun undir eða við kvíar er því vel undir viðmiðunarmörkum sem sett eru af Umhverfisstofnun. Heil- brigði sjávar og botns er lykillinn hjá okkur að hágæða vöru til okkar viðskiptavina.“ Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni icefishfarm.is. Fiskeldi Austfjarða sérhæfir sig í framleiðslu og eldi á úrvals laxi. Allt ferlið, frá hrognum, uppeldi seiða á landi, eldi í sjókvíum, til slátrunar og sölu um heim allan, er án allra efna og lyfja og er hvert skref umhverfisvottað. „Rík umhverfisvöktun og áhættumat skilar okkur ábyrgri framleiðslu sem er metið við okkur af okkar viðskiptavinum,“ segir Guðmund- ur Gíslason hjá Fiskeldi Austfjarða. Fyrirtækið hefur stækkað mikið síðustu ár sökum síaukinnar eftir- spurnar eftir íslenskum hágæða eldislaxi. „Mikil vinna hefur farið í að auka framleiðsluna og ná stærðarhagkvæmni. Fjöldi starfs- manna hefur aukist mikið og í dag vinna um 120 manns hjá fyrirtæk- inu víða um landið, í Reykjavík, Þorlákshöfn, Djúpavogi, Fáskrúðs- firði, Kópaskeri og Kelduhverfi. Að auki verður til mikið af afleiddum störfum hjá fag- og tæknimennt- uðu fólki. Að meðaltali má segja að fyrir hvert beint starf hjá fyrirtæk- inu skapist tvö önnur störf þannig að mikilvægi starfseminnar er gríðarlegt.“ Hollari og fallegri „Laxinn okkar er alinn á hágæða fóðri úr náttúrulegu hráefni sem inniheldur engin aukefni eða erfðabreytt efni (GMO). Engin lyf eða eiturefni eru notuð við fram- leiðsluna. Laxinn er einstaklega hollur og að auki er hann bæði lit- og áferðarfagur að eðlis- fari. Ástæðan fyrir staðsetningu eldisins á Austfjörðum er einkum tvíþætt. Í fyrsta lagi eru Austfirðir langt frá villtum laxveiðiám og skapar staðsetningin því minni hættu gagnvart villtum laxi, og í öðru lagi þá hægir kaldi sjórinn á Austfjörðum á vexti laxins sem eykur gæði fisksins, bætir þéttleika í holdi, fiskurinn verður fallegri á litinn og inniheldur mun meira Omega3 en annar eldislax. Niður- stöður úr samanburðarkönn- unum, þar sem þátttakendur fá ekki að vita um uppruna vörunnar, hafa sýnt að laxinn frá okkur ber höfuð og herðar yfir lax frá sam- keppnisaðilum hvað varðar bragð, útlit og ilm.“ Uppfyllir alla gæðastaðla Fiskeldi Austfjarða slátrar um 400-800 tonnum af laxi á mánuði og selur til viðskiptavina um allan heim. Laxinn er verkaður með ofurkælingu þar sem hann er kældur niður í mínus 2°C sem heldur honum ferskum í allt að 20 daga. „Stærsti viðskiptavinur okkar er Whole Foods í Banda- ríkjunum en verslanakeðjan er þekkt fyrir að framfylgja ströngu gæðaeftirliti og umhverfisstöðlum á þeim vörum sem þar eru seldar. Listinn er langur yfir þá staðla sem framleiðslufyrirtæki þarf að upp- fylla til að geta selt vörur í hillum Whole Foods-keðjunnar. Þar má til dæmis nefna Aqua Gap sem Vottaður hágæða eldislax um allan heim Fjöldi starfsmanna hefur aukist mikið og í dag vinna um 120 manns hjá fyrirtækinu víða um landið. Fiskeldi Austfjarða starfar sam­ kvæmt ströngustu gæðakröfum og útkoman er hágæða eldislax. Kaldi sjórinn á Austfjörðum hægir á vexti laxins sem eykur gæði fisksins. Fyrirtækið er með í framleiðslu lífrænt vottaðan lax sem verður kominn á markað innan tveggja ára. Í þeirri framleiðslu er fóðrið úr lífrænt ræktuðu hráefni og er einnig aukin krafa um rými sem hver fiskur hefur í kvínni. Laxinn frá Fiskeldi Austfjarða er allt í senn litfegurri, þéttari og áferðarbetri en annar eldislax. Þá er hann hollari og inniheldur meira magn af Omega3. Guðmundur Gíslason, stjórnar­ formaður hjá Fiskeldi Austfjarða. Laxinn frá Fiskeldi Austfjarða lýtur ströngustu vott­ unum og gæðakröfum sem skilar sér í hágæða vöru sem neytendur kunna að meta að verðleikum. Ice Fish Farm eða Fiskeldi Aust- fjarða hf. sem var stofnað árið 2012 er með sjókvíaeldi á hágæða eldislaxi á Austfjörðum. kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 30. apríl 2021 LÍFR ÆN VOTTUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.