Fréttablaðið - 30.04.2021, Page 48
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
BAKÞANKAR
Hið einstaka bláköfl ótta Hästens-áklæði er táknrænt fyrir heimspeki
okkar: að búa til svo fullkomið rúm að það haldi þér meira vakandi.
Tilfi nningin sem þú færð þegar gormar, hrosshár, ullartrefjar, bómull,
hör og viður vinna saman er í raun ávöxtur nærri 170 ára linnulausrar
vinnu. Því það er það sem þarf til að leggja grunn að betri degi.
ICONIC?
CHECK.
Hästens Blue Check
Since 1978
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
HÄSTENS VERSLUN
Faxafeni 5, Reykjavík
588 8477
433.IS
ÞRIÐJUDAGA KL. 21.30
Hörður Snævar, ritstjóri 433.is,
fer yfir það helsta í fótbolta-
heiminum með helstu spark-
sérfræðingum landsins.
Þátturinn er sýndur samtímis á
Hringbraut og 433.is
Þrátt fyrir augljósa annmarka hefur mannkyninu tekist, í gegnum aldirnar, að koma sér
upp mikilli þekkingu á óteljandi
sviðum. Allar okkar ákvarðanir,
allt sem við framkvæmum, byggir
að meira leyti á þessari aldagömlu
uppsöfnuðu þekkingu, sem færist á
milli heila kynslóðanna.
Skáldið Einar Benediktsson
sagði að orð væri á Íslandi til um
allt sem er hugsað á jörðu. Að
sama skapi má segja að Google geti
fundið skrár um allt sem mann-
kynið hefur nokkurn tímann
hugsað – að samansafn heila
genginna kynslóða sé einfald-
lega hægt að gúgla. Gervigreind
er tilraun sem er innblásin af því
hvernig heili okkar starfar, tölvu-
kerfi með getu til að taka ákvarð-
anir og framkvæma fjölda þess sem
áður krafðist mannlegrar greindar.
Hún á það sameiginlegt með heila
mannsins að það er ekki til einfalt
svar við því hvað gervigreind er og
hvar takmörk hennar liggja.
Gervigreind flokkar heiminn
niður í hólf en flokkunin er langt
í frá hlutlæg. Ef gervigreind er til
dæmis notuð til að skanna andlit
umsækjenda um störf, í því skyni
að sía þau sem eru ótraustvekjandi
í burtu, er hætt við því að mat
gervigreindar á því hvers konar
andlitsfall er traustvekjandi verði
hlaðið fordómum. Gervigreind
býður upp á endalausa möguleika,
en hún hefur ekki siðferðisvitund.
Hún getur því fest alla okkar
hvimleiðu fordóma enn frekar í
sessi og staðfest stigveldin sem við
höfum unnið gegn öldum saman.
Gervigreind tekur ekki endilega
bestu ákvarðanir allra mögulegra
ákvarðana. Ekki frekar en heili
mannsins. En gervigreind mun
opna okkur tækifæri sem okkar
villtustu hugmyndir sjá ekki fyrir,
eins og tölvur og snjallsímar gerðu.
Við skulum reyna að nýta þau til
hagsbóta fyrir mannkynið.
Gervigreint
mannkyn