Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2013, Qupperneq 6
6
Opnunarhátíð Hinsegin daga
í Silfurbergi Hörpu fimmtudaginn 8. ágúst kl. 21
Opnunarhátíð Hinsegin daga hefur lengi verið einn vinsælasti
viðburður hátíðarinnar. Þar er ekki aðeins um að ræða glæsilega
skemmtun þar sem snjallir skemmtikraftar koma fram, heldur
er opnunarhátíðin einnig sannkallað ættarmót hinsegin fólks,
fjölskyldna þeirra og vina.
Í ár er opnunarhátíðin með öðru sniði en áður og miklar
væntingar bundnar við það sem verða vill fimmtudagskvöldið
8. ágúst. Ásdís Þórhallsdóttir leikstjóri annast listræna stjórn
dagskrárinnar þetta kvöld en þema þess er HEY ÞÚ SYKUR! og
þar mun ástin leika öll aðalhlutverk – í tónlist, sjónlist, myndlist,
leiklist. Á stokk stíga ýmsir þjóðþekktir gestir sem á einn eða
annan hátt tengjast sögu hinsegin fólks, baráttu þess og
listsköpun.
Að skemmtiatriðum loknum bjóða Hinsegin dagar í Reykjavík
upp á drykk í Silfurbergi. Síðan eru regnbogatilboð á barnum.
Tónlistarfólk sér um létta tónlist en gestir njóta veitinga og
samveru fram eftir kvöldi.
Aðgangseyrir: 2500 kr. Pride-passi gildir.
Opening Ceremony
For over a decade, the Reykjavík Pride Opening Ceremony has
been one of the most popular events of the festival. Not only
is it a spectacular concert showcasing the talents of a variety
of artists, but also a yearly gathering of the extended queer
family in Iceland. The theme for the 2013 opening ceremony
is “HEY YOU SUGAR!” centered around the theme of love and
its various expressions. The event is directed by the Icelandic
theater instructor Ásdís Þórhallsdóttir. After the show the
evening continues with joyful atmosphere and complimentary
drink, as the guests catch up with old friends. Rainbow offers at
the bar.
Harpa Concert Hall, Silfurberg Auditorium, Thursday 8
August at 9 p.m.
Price of admission: 2500 ISK or a valid Pride Pass.