Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2013, Side 9
9
orðsins gæti móðgað suma hlustendur en
engu að síður væri niðurstaða þeirra sú að
kynnirinn hefði ekki haft í huga að móðga
samkynhneigt fólk og notkun hans á orðinu
hefði ekki verið hómófóbísk, þar sem orðið
gay væri einnig oft notað í merkingunni
,hallærislegt‘ eða ,vitleysa‘ án þess að
það fæli í sér tengingu við samkynhneigð.
Nefndin lagði þó til að fólk íhugaði vandlega
notkun orðsins gay í þessu samhengi þar
sem þessi margþætta merking orðsins gæti
„óvart valdið særindum“.
„Ég er ekki með fordóma“
Aðrir hafa hins vegar bent á að ekki sé
hægt að aðskilja þessa merkingu orða á
borð við gay og fag frá samkynhneigðri
merkingu þeirra. Frá upphafi vega hefur
samkynhneigð karla verið rædd í tengslum
við karlmennsku (eða skort á henni) og það
er kannski fyrst nú þegar réttindi hinsegin
fólks eru víða orðin nokkuð góð að fólk
er farið að gera greinarmun á því hvort
faggi og gay þýði ,samkynhneigð‘ eða
,heimskulegt‘, ,ókarlmannlegt’ o.s.frv. Það
þýðir þó ekki að tengsl þessara orða við
samkynhneigð séu ekki lengur til staðar −
þvert á móti. Þegar gert er lítið úr öðru fólk
eða fyrirbærum með því að nota orð sem
þýðir líka ,samkynhneigð‘ er viðkomandi
manneskja að bregða fyrir sig hómófóbískri
orðræðu, hvort sem hann eða hún áttar sig
á því eða vill horfast í augu við þá staðreynd
eða ekki.
„En ég er ekki með neina fordóma; ég á
vin sem er hommi,“ segja margir. „Ég meina
ekki ,hommi‘ þegar ég segi gay; voðaleg
viðkvæmni er þetta,“ segja aðrir. Ýmsir skýla
sér á bak við málfrelsi og halda því fram að
þeir eigi rétt á að tala hvernig sem þeir vilja.
Hér er mikilvægt að hafa í huga að þótt við
teljum okkur búa við málfrelsi þá þýðir það
ekki að við getum notað hvaða orð sem við
viljum í hvaða samhengi sem er án þess að
hugsa um það hvaða áhrif þau hafa á aðra –
allavega ekki ef við aðhyllumst jafnrétti og
umburðarlyndi gagnvart náunganum. Við
eigum ekki tungumálið ein; við deilum því
með öðrum og þó að það sem við meinum
þegar við segjum eitthvað sé kannski ekki
fordómafullt getur orðalagið engu að síður
sært aðra og gert lítið úr þeim. Þegar orð
sem notað er yfir hinsegin fólk er notað í
niðrandi tilgangi, sama hvort sá eða sú sem
talar ætlar sér að vísa til samkynhneigðar
eða ekki, má alltaf gera ráð fyrir því að
hinsegin fólk sem heyrir eða les þessi orð
taki þau til sín. Því getur enginn breytt.
Kærustufaggar
Orðið kærustufaggi er áhugavert í þessu
sambandi vegna þess að það virðist vera
íslensk samsetning en ekki bein þýðing á
samsvarandi enskum frasa. Kærustufaggi
er skilgreindur þannig í Slangurorðabókinni
á vefnum slangur.snara.is: „Vanalega
notað yfir stráka sem að sleppa því að
hanga með vinum sínum til að vera með
kærustunni og/eða hang[a] alltof mikið
með kærustunni.“ Þó virðist orðið einnig
vera notað yfir hvaða einstaklinga sem er,
óháð kyni og kynhneigð, sem eru „ástsjúkir“
eða taka ástarsambönd fram yfir önnur
vinasambönd. Merking orðsins kærustufaggi
er því neikvæð og virðist vera svipuð og
orðsins gay; um er að ræða fólk sem þykir
væmið, leiðinlegt og hallærislegt. Í notkun
þessa orðs felst því hómófóbía, rétt eins og í
notkun orðanna gay og faggi.
upp og notaði á jákvæðan hátt um eigin
sjálfsmynd og tilveru. Þegar hinsegin fólk
segir að eitthvað sé svo gay eða að einhver
sé kærustufaggi er merkingin aftur á móti
yfirleitt neikvæð og þar með er verið að
ýta undir hómófóbíska notkun orðsins,
jafnvel þótt aðilinn sem talar sé hinsegin.
Annað væri til dæmis uppi á teningnum ef
hinsegin fólk talaði um að eitthvað væri svo
gay í merkingunni ,frábært‘, ,töff‘ o.s.frv.
Þá mætti segja sem svo að búið væri að
snúa upp á merkingu orðsins og losna við
hómófóbíuna.
Kæru lesendur – hér er ekki ætlunin
að banna neinum neitt, enda er vald þeirrar
sem þetta skrifar til að setja slík boð og
bönn afar takmarkað. Aftur á móti vil ég
biðja ykkur að hugleiða orðin sem þið
notið – ekki bara orðin gay og faggi heldur
öll orð. Í orðum felst vald og við verðum
að gangast við þeirri ábyrgð sem fylgir því
að nota þau. Líkt og öll önnur tungumál
er íslenskan rík af orðum sem ekki eiga sér
hómófóbíska eða annars konar fordómafulla
sögu og það er auðvelt að finna viðeigandi
orð fyrir hvert tilefni. Það eina sem þarf
er vilji til að koma vel fram og sýna öðrum
virðingu.
Choosing words responsibly
“This is so gay!” – “Don’t be a fag!”
Are these expressions homophobic?
Some people argue that the words gay
and fag have double meaning, and
that in this context they do not refer
to homosexuality but to something or
someone who is ‘stupid’, ‘naïve’ or ‘weak’.
It is nevertheless difficult and often
impossible to distinguish between the
meaning “gay as in gay” and “gay as in
stupid.” As Ásta Kristín Benediktsdóttir
argues: when words like gay or fag are
used in a negative way they are always
offensive to many LGBT people, regardless
of the speaker’s intention. With words
comes responsibility, and although they
are not meant to do so, words can hurt.
Heimildir
„BBC accepts new meaning of ,gay‘“. Mail Online.
6. júní 2006. Sótt 19. maí 2013 á
http://www.dailymail.co.uk/news/article-389318/
BBC-accepts-new-meaning-gay.html
Einar Björn Magnússon og Guðlaugur Jón Árnason
(ritstj.). 2011. Slangurorðabókin.
„Kærustufaggi“. 13. júlí. Sótt 19. maí 2013 á
http://slangur.snara.is/
Gillan, Stephen. 2010. „Survival instincts.“ Antics.
5. nóvember. Sótt 19. maí 2013 á
http://www.anticscomic.com/?p=678
Indiojokes. 2012. „Homophobic seal strikes again.“
9GAG. Sótt 19. maí 2013 á
http://9gag.com/gag/2960864.
Kim, Brad (ritstj.). 2013. „Homophobic seal.“
Know your meme. Sótt 19. maí 2013 á
http://knowyourmeme.com/memes/homophobic-seal
Pascoe, C.J. 2005. „,Dude, you’re a fag‘:
Adolescent masculinity and the fag discourse.“
Sexualities 8 (3): 329−346.
Orðum fylgir ábyrgð
Þá vaknar spurningin: „Má“ hinsegin fólk
nota orð eins og faggi og gay? Skiptir
máli hver talar? Þetta er umdeilt mál og
sitt sýnist hverjum. Minnihlutahópar hafa
oft tekið upp niðrandi orð, notað þau og
snúið þeim við þannig að merkingin sé
ekki lengur eingöngu neikvæð, samanber
enska orðið queer og íslenska orðið
hinsegin. Þessi orð hafa ekki lengur þá
gríðarlega neikvæðu merkingu sem þau
höfðu áður af því að hinsegin fólk tók þau
Svo Gaaayyyy!“