Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2013, Side 22

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2013, Side 22
22 Þjóðsaga Hljómsveit, kór og einsöngvarar í Gamla bíói Frumflutningur nýs tónverks er einn af stórviðburðum Hinsegin daga 2013. Þjóðsaga er tónverk í átta köflum við frumsamda sögu sem byggð er á persónunni Barna-Þórði úr þjóðsögunni Systkinin í Ódáðahrauni. Sagan gerist norðan Vatnajökuls í Drekagili, Ódáðahrauni og við Herðubreið þar sem sögur fara af útilegumönnum, álfum, tröllum og óþekktum vættum. Hafsteinn Þórólfsson kom fyrst fram á Hinsegin dögum 2003 þegar hann söng „Ég er eins og ég er“ sem síðan hefur ómað á hverri hátíð. Hann lauk mastersnámi í söng frá Guildhall School of Music & Drama í London 2005 og hóf þá feril sem atvinnusöngvari. Hafsteinn lauk BA-námi í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands vorið 2011 og stefnir á framhaldsnám í haust. Hannes Páll Pálsson lauk mastersnámi við Central St. Martins í London 2005 og hefur síðan unnið við viðburðahönnun, ráðgjöf, markaðsmál og sjónvarpsskrif. Hljómsveitin Caput flytur verkið undir stjórn Guðna Franzsonar, einsöngvarar eru Hafsteinn Þórólfsson og Heiða Árnadóttir en sögumaður er Ragnhildur Gísladóttir. Verkið er flutt í Gamla bíói, miðvikudaginn 7. ágúst kl. 20 og hæfir öllum aldurshópum. Miðaverð: 2800 kr. Pride-passi gildir. Miðasala í Kaupfélagi Hinsegin daga, Hidden People Hidden People, a new musical composition by Hafsteinn Þórólfsson and Hannes Páll Pálsson, tells an original story based on a character found in Icelandic folklore called Thordur The Spellbreaker. The story takes place north of the Vatnajökull glacier in an area infused with stories of elves, trolls and otherworldly creatures. The musical composition echoes traditional Icelandic folk music where each of the work’s eight parts describes a single event in the narrative. Performed by Caput Ensemble, conducted by Guðni Franzson, with soloists Hafsteinn Þórólfsson and Heiða Árnadóttir. Performed in Gamla bíó, Ingólfsstræti, Wednesday 7 August at 8 p.m. Admission: 2800 ISK or a valid Pride Pass. 22

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.