Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2013, Page 24
24
Ég fæ ekki af mér að
flýja af hólmi
Í tilefni hátíðar Hinsegin daga í Reykjavík efnir Þjóðminjasafn
Íslands til sýningar á Torginu á neðstu hæð safnsins. Þar er brugðið
upp brotum úr lífi og baráttu hinsegin fólks á Íslandi á liðinni tíð.
Á veggnum má lesa orð sem eitt sinn voru látin falla á ýmsum
vettvangi, orð um það að glíma við eigin tilfinningar og horfast í
augu við þær, orð til að leggja mannréttindum lið. Hér lítur hver
manneskja heiminn sínum augum, ólíkar raddir – en þó einnar ættar
– mætast á einum vegg og brugðið er upp ljósmyndum af því fólki
sem tekur til máls.
Sýningin er unnin í samvinnu Þjóðminjasafns Íslands,
Samtakanna ´78 og Hinsegin daga í Reykjavík. Hún verður opnuð í
safninu fimmtudaginn 8. ágúst kl. 16. Allir eru velkomnir. Sýningin
stendur til loka september. Aðgangur ókeypis.
Snapshots of Queer History
The National Museum of Iceland offers up insightful details into
the past struggles of LGBT people in Iceland. This display brings
together the many voices of a single cause and matches them with
images of their inner struggles and their fight for human rights.
The exhibit is created in collaboration between The National
Museum of Iceland, The National Queer Organization and
Reykjavík Pride. It opens in the museum, 1st floor, on Thursday 8
August at 4 p.m. Free admission.
Hinsegin fólk í máli og mynd á Torginu í Þjóðminjasafni
samtökin eru ekki sýnd á neinu korti
samt eru þau hugsanlega til
á ugg-vænar dyr í bakhúsi ég banka
og bíð þess sem ég hræðist og vil
ég fæ ekki af mér að flýja af hólmi
enda forskotið helst til of lítið
þegar fyrir opnum dyrum dolfallinn ég stend
og dáfagur piltur segir: þú! en skrýtið!
ég fæ mér sæti sjúkur af ótta
mig sundlar þegar ég brosi og aftur brosi
bara að áhyggjunum af mér létti fljótt
og eitthvað út mig tosi og aftur tosi
Böðvar Björnsson
24