Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2013, Qupperneq 32
32
Hinsegin Grænland
Þerraðu aldrei tár án hanska
Norræna húsið Reykjavík
Í tilefni hátíðar Hinsegin daga bjóða Ráðhús Reykjavíkur
og Norræna menningarstofnunin NAPA á Grænlandi til
ljósmyndasýningar í Norræna húsinu. Þar má sjá 61 ljósmynd
eftir Jørgen Chemnitz, en Hinsegin Grænland er fyrsta myndræna
heimildasöfnun sem sögur fara af um samkynhneigð þar í landi.
Áður ósýnilegur minnihluti í grænlenskri sögu hefur eignast andlit
og orð. Hinum ósamkynhneigðu borgurum Nuuk var raunar einnig
boðið að birtast á mynd og afraksturinn má sjá í Norræna húsinu
– 61 sterk manneskja sem er tilbúin að segja heiminum sögu sína.
Nú í vor gengu Grænlendingar sína fjórðu gleðigöngu í Nuuk og
því er Hinsegin dögum í Reykjavík heiður að því að kynna þessa
ljósmyndasýningu á hátíð sumarsins.
Sýningin verður opnuð í Norræna húsinu miðvikudaginn 7.
ágúst kl. 17. Aðgangur er ókeypis.
Gay Greenland
Gay Greenland is an inspiring exhibition of new photography,
documenting for the first time gay experiences in Greenland
through visual medium. By juxtaposing images of faces and
words, the exhibition exposes a silent, but strong minority
that has remained hidden throughout Greenland’s history.
Jonas Gardell er einn fremsti rithöfundur Svía á okkar dögum.
Um þessar mundir sendir bókaforlagið Draumsýn frá sér
fyrstu skáldsöguna í þríleik hans Þerraðu aldrei tár án hanska
og nefnist hún Ástin. Draumey Aradóttir þýðir söguna. Saga
Jonasar Gardell fjallar um líf nokkurra homma á fyrstu árum
alnæmis á Norðurlöndum, áhrifamikið verk og magnað uppgjör við
tíma sem engum líða úr minni sem lifðu þá. Sagan var kvikmynduð
á liðnu ári og sýnd í sænska sjónvarpinu við mikla hrifningu. Öllum
þjóðum er nauðsyn að gera upp sakir við fortíð sína!
Í tilefni af útgáfu bókarinnar efna Hinsegin dagar í
Reykjavík og bókaforlagið Draumsýn til viðburðar í Norræna
húsinu í samvinnu við HIV Ísland og Reykjavík, bókmenntaborg
UNESCO. Þar les Viðar Eggertsson upp úr bókinni og Vilhjálmur
Ingi Vilhjálmsson syngur ljóð Jonasar Gardell, „Mitt eina
líf“. Kynningin fer fram í fyrirlestrasal Norræna hússins,
miðvikudaginn 7. ágúst kl. 18, í beinu framhaldi af opnun
ljósmyndasýningarinnar Hinsegin Grænland. Aðgangur ókeypis.
Leise Johnsen initiated the project and worked together with
photographer and director of NAPA, Jørgen Chemnitz, to
capture 61 portraits during Greenland Gay Pride 2011 and 2012.
The Nordic House Reykjavík, Wednesday 7 August at
5 p.m. Free admission.
Never Wipe Tears Without Gloves
Jonas Gardell is one of Sweden’s most renowned contem-
porary novelists, and his latest work is the trilogy Never Wipe
Tears Without Gloves. To celebrate the publication of the first
volume of the trilogy – Love – in Icelandic, Reykjavík Pride
and Draumsýn Publishers will hold a reading event at the
Nordic House, where songs to poetry by Gardell will also be
performed. The Nordic House, Wednesday 7 August at 6 p.m.
Free admission.
Lifðu lífinu lifandi og
lát hjartað ráða för. Það
hljómar vel. Elskaðu
sjálfan þig svo eftir sé
tekið.
Inuunerit atorluaruk
uummatillu
malillugu. Inuunerit
isumaqarnerulissaaq.
Imminut asagit
tamanullu takutillugu.
Live your life and follow
your heart. It makes
sense. Love yourself
and show it.
32