Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2013, Page 41
41
Pink Singers og Hinsegin kórinn
Breski kórinn Pink Singers var stofnaður í London árið 1983.
Hann hefur síðan getið sér frægðarorð og heiðrað fjölmargar
hátíðir hinsegin fólks með söng sínum á liðnum árum. Nú er
komið að Hinsegin dögum í Reykjavík! Pink Singers telur rúmlega
80 söngvara og tónlist kórsins er einstaklega fjölbreytt – popp,
klassík, söngleikjatónlist og fleira – og kórinn hikar heldur ekki við
að taka nokkur dansspor ef svo ber undir. Hinn íslenska Hinsegin
kór þarf vart að kynna. Hann var stofnaður árið 2011 og hefur
getið sér gott orð undir stjórn Helgu Margrétar Marzellíusardóttur.
Kórarnir tveir sameinast á tónleikum í Gamla bíói föstudaginn
9. ágúst kl. 18:30. Miðaverð: 2400 kr. í forsölu í Kaupfélagi
Hinsegin daga og gegn framvísun Pride-passa; 2900 kr. við
innganginn án Pride-passa.
Pink Singers and Reykjavík Queer Choir
The Pink Singers is a mixed, four-part, London community choir
made up of lesbians, gay men, bisexual and transgendered
people. Formed in 1983, they are united by a passion for
singing great choral music and their mission is to produce
exciting and diverse performances for the general public – in
support of community organisations. The Reykjavík Queer
Choir was founded in 2011, and aims to create a prejudice-free
environment where queer people can meet and enjoy singing
together. The two choirs perform in Gamla bíó, Friday 9 August
at 6:30 p.m. Admission: 2400 ISK at the Pride Service Center and
to Pride Pass holders. At the entrance: 2900 ISK.