Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2013, Page 49
49
Ungmennapartí
PRIDE-PASSINN 2013
Við kynnum PRIDE-PASSANN – fyrir alla þá sem ekki vilja missa
af neinu! Hann kostar 7900 kr og veitir aðgang að eftirtöldum
viðburðum:
• Þjóðsaga, tónleikar í Gamla bíói, miðvikudaginn 7. ágúst (Verð 2800 kr)
• Opnunarhátíð Hinsegin daga í Hörpu fimmtudaginn 8. ágúst
(Verð 2500 kr)
• Landleguball á KIKI föstudaginn 9. ágúst (Verð 1000 kr)
• Hinsegin hátiðardansleikur á RÚBÍN laugardaginn 10. ágúst
(Verð 2500 kr í forsölu og 3500 kr við hurð)
• Plús – Reykjavík Pride-poki með regnbogavarningi að andvirði 2000 kr fylgir öllum Pride pössum.
Pride-passinn veitir einnig afslátt hjá ýmsum samstarfsaðilum
Hinsegin daga, m.a. kaffihúsum, skemmtistöðum og verslunum
(sjá nánar á vefsíðu hátíðarinnar). Pride-passinn verður til sölu í
Kaupfélagi Hinsegin daga, IÐU, Lækjargötu 2a.
Pride-passinn sparar þér tíma og peninga og þú styður
starfsemi Hinsegin daga í Reykjavík
Að kvöldi laugardagsins 10. ágúst, KLUKKAN 20:00 stendur
Ungliðahreyfing Samtakanna ´78 fyrir partíi í Regnbogasalnum,
Laugavegi 3, 4. hæð, sem þetta kvöld breytist í dúndrandi
skemmtistað með glæsilegu ljósa- og hljóðkerfi. Plötusnúður
stendur vaktina frá klukkan 21 til miðnættis. Vinir, foreldrar
og forráðamenn eru velkomin í heimsókn og áfengi er með
öllu óleyfilegt. Samtökin '78, Hinsegin dagar í Reykjavík og
Ungliðahreyfingin leggja mikla áherslu á öruggt og vímuefnalaust
umhverfi fyrir hinsegin ungmenni og hvetja foreldra og
forráðamenn til að hafa samband ef frekari upplýsinga er óskað.
Partíið er aðeins ætlað 20 ára og yngri. Aðgangur ókeypis.
Ungliðahreyfingin er fyrir ungt hinsegin fólk, 20 ára og
yngra. Þau hittast hvern sunnudag kl. 19.30–22.30 á Laugavegi
3. Næstkomandi vetur eiga 13 ára og yngri kost á því að hittast
fyrsta sunnudag í mánuði kl. 18–20. Ungliðarnir kjósa sjálfir sína
eigin stjórn en eiga dyggan stuðning og umsjón „eldra fólks“ sem
stjórn Samtakanna '78 skipar.
Queer Youth Party
The Queer Youth Organization will throw on a fabulous party,
with lights, music and a DJ, Saturday 10 August, from 8 p.m.
till midnight. Location: Laugavegur 3, 4th floor. Parents and
guardians welcome to visit. The event is alcohol free and only
for those 20 years old and younger. Free admission.
PRIDE PASS 2013
Proudly introducing THE PRIDE PASS – for those who don’t
want to miss a thing. For only 7900 ISK you’ll be granted
access to the following events:
• Hidden People, concert in Gamla bíó, 7 August (2800 ISK)
• Opening Ceremony in Harpa Concert Hall, 8 August (2500 ISK)
• Pride Party at KIKI, Friday 9 August (1000 ISK)
• Pride Ball at RÚBÍN, 10 August (3500 ISK)
• Plus – Reykjavík Pride Goodie Bag (2000 ISK)
The Pride Pass also gets you discounts with various Reykjavík
Pride partners, including cafés, bars, clubs and shops (see
www.reykjavikpride.com). The Pride Pass is sold at the
Reykjavík Pride Service Center in IÐA, Lækjargata 2a.