Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2013, Page 53

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2013, Page 53
53 vagninum sat svo föruneyti þeirra – álfaprins og álfaprinsessa sem ætla mátti að konungshjónin héldu til að gleðja hinsegin hvatir sínar. Nú hafði væntanlegur álfaprins skyndilega forfallast og þar sem ég stóð þarna var ég beðinn um að hlaupa í skarðið. Eftir stutta umhugsun sagði ég já og var þegar í stað settur í hlutverkið og upp á vagninn. Tíminn var naumur og ég var allt annað en undirbúinn. Ég passaði þó í leikhúsbúninginn sem var úr þykku flaueli en þurfti að mála mig sjálfur. Ég hafði ekki mikla reynslu af slíku og var ótæpilega lengi að því verki. Það fannst að minnsta kosti þáverandi formanni Samtakanna ´78, Þorvaldi Kristinssyni („Karlmenn eiga að vera fljótir að mála sig“), sem var nærri búinn að læsa mig inni í húsakynnum Samtakanna þegar allir aðrir voru farnir út úr húsinu og upp á Hlemm. Ég hefði að vísu viljað hafa lengri tíma til að mála mig en náði samt á Hlemm á síðustu stundu og upp á vagninn. Ingólfstorg, Nelly’s og Spotlight Þetta var sólríkur og spennandi dagur – ögrandi og afhjúpandi. Það var óvenju hlýtt í veðri og ekki var búningurinn til að kæla mig, úr þykku flaueli, en álfaprinsinn naut engu að síður ferðarinnar niður Laugaveg, Bankastræti og Austurstræti þar sem hann sat sveittur á vagninum. Þegar gangan kom á áfangastað hófust skemmtiatriði á Ingólfstorgi og þar ávarpaði álfakóngurinn gesti – og auðvitað með prinsinn dygga sér við hlið. Mér hafði verið kastað út í djúpu laugina, en það var bara hressandi og eftir þetta þurftu engir minna vina, kunningja, vinnufélaga og skólafélaga að velkjast í vafa um kynhneigð mína. Þegar ég var búinn að koma búningnum í geymslu og kæla mig niður tóku við kokteilar og kaffi hér og þar um miðborgina, og eftir stutta viðkomu á Nelly’s var endað á Spotlight sem þá átti sitt blómaskeið á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis. Þar var hvorki sparaður engisprettu- né kosmókokteillinn. Ekki finnst mér langt síðan þetta var, en samt eru liðin þrettán ár og margt getur gerst – og hefur gerst – á þrettán árum. Ég hef tekið þátt í ófáum gleðigöngum síðan, í Reykjavík og Kaupmannahöfn þar sem ég er búsettur, og svo sannarlega finnst mér íslenska gleðin jafnast á þá dönsku á þessum dögum. Danir státa þó af fleira fólki og Kaupmannahafnargangan og mannmergðin bera þess merki. Þó verður andrúmsloftið og félagsskapurinn í fyrstu gleðigöngunni minni sumarið 2000 í Reykjavík ávallt efst í huga. Það var eitthvað einstakt og ógleymanlegt. Gleðilegan dag – og gleðigöngu! In the year 2000 Húbert Nói recalls his first Pride Parade, which also was the first Reykjavík Gay Pride Parade, in August 2000. He was barely twenty years old and it was a year of many firsts. He came out, found his first boyfriend, began his university studies and worked as a bartender at the hottest gay bar in town. At the parade he suddenly found himself replacing an ill- disposed participant on one of the parade floats, dressed as a young fairy prince. With such a prominent Pride debut, he discovered that he never again needed to inform friends and acquaintances of his sexual orientation. Húbert Nói now lives in Copenhagen, which boasts of its own colorful and impressive Pride Parade, but he can still smell the unique atmosphere of his very first Reykjavík Pride.

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.