Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2013, Blaðsíða 62
62
Hinsegin félagasamtök á Íslandi
Hinsegin dagar í Reykjavík
www.reykjavikpride.com – Facebook, Twitter, YouTube
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride eru sjálfstæð
sjálfboðaliðasamtök sem árlega skipuleggja Hinsegin daga í
Reykjavík aðra helgi í ágúst. Allir sem styðja markmið hátíðarinnar
og vilja vinna með félaginu geta gerst félagar með því að greiða
árgjaldið, 1000 kr.
Samtökin ’78 – félag hinsegin fólks á Íslandi
www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is – Facebook
Samtökin ’78 eru elstu og stærstu samtök hinsegin fólks
á Íslandi og undir forystu þeirra hafa unnist miklir sigrar í
mannréttindamálum á liðnum árum. Markmið félagsins er tvíþætt:
Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum hinsegin fólks í því
skyni að vinna því jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins,
og að skapa félagslegan og menningarlegan vettvang til þess að
styrkja sjálfsvitund þess, samkennd og samstöðu um sérkenni
sín. Í miðstöð félagsins á Laugavegi 3 starfar fólk að fræðslu og
ráðgjöf, þar hittist ungliðahópur einu sinni í viku og þar er vandað
almenningsbókasafn með hinsegin efni, bókum, tímaritum og
kvikmyndum.
Q – Félag hinsegin stúdenta
www.queer.is – Facebook
Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999. Það heldur
uppi öflugu félagsstarfi meðal ungs fólks og hittist á Q-kvöldum í
félagsmiðstöð Samtakanna ’78. Eitt af markmiðum félagsins er að
vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á Íslandi og í forsvari
þar þegar málefni hinsegin fólks ber á góma. Félagið er virkur
þátttakandi í tveimur samtökum ungs fólks í Evrópu, ANSO og
IGLYO.
Trans-Ísland
transiceland@gmail.com – Facebook
Trans-Ísland var stofnað árið 2007 og hefur að markmiði sínu að
skapa transfólki og fjölskyldum þess menningarlegan vettvang og
styrkja þannig sjálfsvitund þeirra, vinna að laga- og réttarbótum,
auka fræðslu og eiga samstarf við sambærileg samtök hérlendis
og erlendis. Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar hittist Trans-Ísland í
félagsmiðstöð Samtakanna ’78.
Íþróttafélagið Styrmir
ststyrmir@gmail.com – Facebook
Íþróttafélagið Styrmir var stofnað árið 2006 og er ein af
blómlegustu grasrótarhreyfingum hinsegin fólks á Íslandi. Á
vegum félagsins æfir fólk fótbolta, sund og blak og boðið er upp
á fjölmarga íþróttaviðburði í hverri viku. Árlega tekur félagið þátt í
íþróttamótum á erlendum vettvangi.
KMK – Konur með konum
kmk@kmk.is – Facebook
Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía
laust fyrir 1990. Tilgangurinn er ekki síst að efla sýnileika lesbía,
styrkja samstöðu þeirra, gefa þeim tækifæri til að skemmta sér
á eigin forsendum. Stúlkurnar í KMK stunda íþróttir af kappi,
einkum blak, og hafa keppt á alþjóðlegum leikum.
MSC Ísland
www.msc.is / msc@msc.is
MSC Ísland var stofnað árið 1985. Klúbburinn hefur sínar
klæðareglur, leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan
er einfaldlega sú að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega
klædda og þá heldur ýkt í þá áttina en hina. MSC Ísland hefur
ferðamennsku og fyrirgreiðslu við erlenda ferðamenn á stefnuskrá
sinni og er aðili að Evrópusamtökunum ECMC sem lagt hafa mikið
af mörkum til baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð.
Félag hinsegin foreldra
gayforeldrar@gmail.com – Facebook
Félag hinsegin foreldra eru yngstu samtökin í flóru hinsegin
hreyfinga á Íslandi. Þau hafa það að markmiði að gera lífið
skemmtilegra fyrir börn sín, gefa þeim kost á að kynnast og miðla
reynslu af foreldrahlutverkinu.
Thanks to the Queer Community
The LGBT community in Iceland has joined forces to celebrate
Reykjavík Pride 2013 with festivities in Reykjavík during
the second weekend in August. We would like to thank
seven organizations and activity groups: the National Queer
Organization, Samtökin ’78; The Association of Queer Students,
Q; the women’s group Women with Women, KMK; the
transgender association Trans-Iceland; the leather men’s club,
MSC Iceland; Styrmir Sports Club, and Queer Parents’ Association.
Útgefandi:
Hinsegin dagar í Reykjavík
Laugavegi 3, – 101 Reykjavík
www.reykjavikpride.com
Ritstjórn: Jón Kjartan Ágústsson (ábm.).
Textar: Árni Heimir Ingólfsson, Ásta K. Benediktsdóttir, Baldvin K.
Sveinbjörnsson, Böðvar Björnsson, Erlingur Ó. Thoroddsen, Húbert
Nói Gunnarsson, Jón Kjartan Ágústsson, Lilja Sigurðardóttir og
Þorvaldur Kristinsson.
Auglýsingar: Birtingahúsið, Eva María Þórarinsdóttir Lange,
Gunnlaugur Bragi Björnsson, Hvíta húsið, Kristín Sævarsdóttir og
Þorvaldur Kristinsson.
Ljósmyndir: Pressphotos, Davíð Terrazas, Bára, Jóhann Smári
Karlsson, Alísa Kalyanova, Geir Ragnarsson, Páll Guðjónsson,
Sigrún Björk Einarsdóttir og fleiri. Hinsegin dagar í Reykjavík
þakka Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir lán á myndum.
Merki Hinsegin daga: Aðalbjörg Þórðardóttir.
Hönnun dagskrárrits: Davíð Terrazas.
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi
Stjórn og samstarfsnefnd um Hinsegin daga í Reykjavík
Fjölmargt fólk leggur hönd á plóg til að gera hátíð Hinsegin daga
að veruleika á hverju ári. Sum sýna þó meira úthald en önnur við
undirbúninginn og vinna hörðum höndum árið um kring áður en
kemur að sex daga stórhátíð. Í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík
2013 sitja Eva María Þórarinsdóttir Lange, formaður, Baldvin
Kári Sveinbjörnsson, varaformaður, Kristín Sævarsdóttir, ritari,
Gunnlaugur Bragi Björnsson, gjaldkeri, og Jón Kjartan Ágústsson,
meðstjórnandi. Við hlið þeirra starfar samstarfsnefnd að verkefnum
ársins. Allir þeir sem gerast félagar Hinsegin daga og greiða
félagsgjöld geta starfað með henni. Þegar hátíðin nálgast kallar stjórn
síðan til nokkur hundruð sjálfboðaliða sem veita ómetanlega aðstoð
við að skapa litríka daga.