Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 4

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 4
Við bjóðum ykkur öll velkomin á átjándu hátíðahöld Hinsegin daga í Reykjavík dagana 2.–7. ágúst 2016 og hlökkum til að deila með ykkur þeirri gleði og baráttuanda sem einkennir hinsegin samfélagið á Íslandi. Á dagskránni eru kunnuglegir viðburðir sem hafa öðlast fastan sess, svo og nýir viðburðir sem vonandi vekja áhuga gesta hátíðarinnar. Þema hátíðarinnar í ár er sagan okkar. Við mótun dagskrár hátíðarinnar var lögð áhersla á að varpa ljósi á þessa mikið til óskráðu en jafnframt mikilvægu sögu og meðal viðburða má nefna sögugöngu, sögukvöld og hádegisfund um hinsegin réttindabaráttu á Íslandi fyrr og nú. Þemað endurspeglast einnig í efni tímaritsins og forsíðu þess þar sem nútíð og fortíð mætast. Myndin var tekin á Árbæjarsafni og kápan var hönnuð af listrænum stjórnanda tímaritsins, Guðmundi Davíð Terrazas. Meðal efnis í blaðinu eru viðtöl við Önnu Kristjánsdóttur, fyrstu opinberu trans manneskjuna á Íslandi, og Elísabetu Þorgeirsdóttur, eina af stofnendum félagsins Íslensk- lesbíska og Trúarhóps Samtakanna ‘78. Fyrrverandi og núverandi forseti, formaður og framkvæmdastjóri Hinsegin daga í Reykjavík eru einnig tekin tali og ræða meðal annars um tilurð hátíðarinnar og þróun hennar. Síðast en ekki síst er í blaðinu grein eftir Þorvald Kristinsson um Hótel Borg, einn helsta samkomustað hinsegin fólks á Íslandi lengi vel. Sagan okkar er vissulega mjög víðfeðm og ómögulegt að gera henni fullnægjandi skil hér. Það er þó von ritstjórnar að lesendur blaðsins fái örlítinn nasaþef af þeirri sögu sem liggur til grundvallar veruleika okkar í dag og að það kveiki hjá þeim forvitni og hvetji þá til að leita uppi ýmiss konar efni sem varðar sögu hinsegin fólks á Íslandi og úti í heimi. Gleðilega Hinsegin daga 2016! We would like to welcome you to the 18th Reykjavik Pride festival which takes place 2–7 August. We look forward to sharing with you the happiness and fighting spirit that have put a special mark on the LGBTIQ community here in Iceland. The theme for the 2016 festival is ‘Our History’ – the history of queer people – and the programme, as well as the interviews and articles in this magazine, focus on various aspects of the theme and remind us that our history is vast, complicated and varied. The present also meets the past on the cover photo, which was shot at Árbær Open Air Museum in East Reykjavik and designed by Guðmundur Davíð Terrazas. We hope the festival programme will give you a tiny insight into our history and encourage you to take a deeper look into LGBTQI history in your own community. Welcome to Reykjavik Pride 2016! SAGAN OKKAR – FRÁ RITSTJÓRN OUR HISTORY – FROM THE EDITORS Jón Kjartan Ágústsson og Ásta Kristín Benediktsdóttir ritstjórar / editors 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.