Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2016, Qupperneq 4
Við bjóðum ykkur öll velkomin á átjándu hátíðahöld
Hinsegin daga í Reykjavík dagana 2.–7. ágúst 2016
og hlökkum til að deila með ykkur þeirri gleði og
baráttuanda sem einkennir hinsegin samfélagið á Íslandi.
Á dagskránni eru kunnuglegir viðburðir sem hafa öðlast
fastan sess, svo og nýir viðburðir sem vonandi vekja
áhuga gesta hátíðarinnar.
Þema hátíðarinnar í ár er sagan okkar. Við mótun
dagskrár hátíðarinnar var lögð áhersla á að varpa ljósi
á þessa mikið til óskráðu en jafnframt mikilvægu sögu
og meðal viðburða má nefna sögugöngu, sögukvöld og
hádegisfund um hinsegin réttindabaráttu á Íslandi fyrr
og nú. Þemað endurspeglast einnig í efni tímaritsins og
forsíðu þess þar sem nútíð og fortíð mætast. Myndin var
tekin á Árbæjarsafni og kápan var hönnuð af listrænum
stjórnanda tímaritsins, Guðmundi Davíð Terrazas. Meðal
efnis í blaðinu eru viðtöl við Önnu Kristjánsdóttur, fyrstu
opinberu trans manneskjuna á Íslandi, og Elísabetu
Þorgeirsdóttur, eina af stofnendum félagsins Íslensk-
lesbíska og Trúarhóps Samtakanna ‘78. Fyrrverandi
og núverandi forseti, formaður og framkvæmdastjóri
Hinsegin daga í Reykjavík eru einnig tekin tali og ræða
meðal annars um tilurð hátíðarinnar og þróun hennar.
Síðast en ekki síst er í blaðinu grein eftir Þorvald
Kristinsson um Hótel Borg, einn helsta samkomustað
hinsegin fólks á Íslandi lengi vel.
Sagan okkar er vissulega mjög víðfeðm og ómögulegt
að gera henni fullnægjandi skil hér. Það er þó von
ritstjórnar að lesendur blaðsins fái örlítinn nasaþef af
þeirri sögu sem liggur til grundvallar veruleika okkar í dag
og að það kveiki hjá þeim forvitni og hvetji þá til að leita uppi
ýmiss konar efni sem varðar sögu hinsegin fólks á Íslandi og
úti í heimi. Gleðilega Hinsegin daga 2016!
We would like to welcome you to the 18th Reykjavik Pride
festival which takes place 2–7 August. We look forward
to sharing with you the happiness and fighting spirit that
have put a special mark on the LGBTIQ community here in
Iceland. The theme for the 2016 festival is ‘Our History’ – the
history of queer people – and the programme, as well as the
interviews and articles in this magazine, focus on various
aspects of the theme and remind us that our history is vast,
complicated and varied. The present also meets the past on
the cover photo, which was shot at Árbær Open Air Museum in
East Reykjavik and designed by Guðmundur Davíð Terrazas.
We hope the festival programme will give you a tiny
insight into our history and encourage you to take a deeper
look into LGBTQI history in your own community.
Welcome to Reykjavik Pride 2016!
SAGAN OKKAR
– FRÁ RITSTJÓRN
OUR HISTORY
– FROM THE EDITORS
Jón Kjartan Ágústsson og
Ásta Kristín Benediktsdóttir
ritstjórar / editors
4