Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 62

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 62
Hvernig varð fyrsta gleðigangan til? Heimir Már (H): Það má rekja upphaf Hinsegin daga til sumarsins 1999 þegar Samtökin ‘78 stóðu fyrir svokallaðri Hinsegin helgi á Ingólfstorgi. Sú hátíð var haldin að frumkvæði forsvarsmanna Samtakanna ‘78 sem vöknuðu upp við það einn morguninn að 30 ár voru liðin frá Stonewall- uppreisninni og vildu minnast þess með veglegum hátíðahöldum fyrir opnum tjöldum. Þorvaldur (Þ): Það tiltæki átti sér raunar merkilegan undanfara því að 27. júní 1993 skipulagði hópur fólks úr Samtökunum ´78 göngu niður Laugaveg frá húsi félagsins á Lindargötu 49. Ári síðar tók félagið höndum saman við Félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra um sams konar göngu en það hafði verið stofnað árið áður eftir átök um það hvort nefna skyldi tvíkynhneigða í undirheiti Samtakanna 78. Þrátt fyrir blöðrur, blístrur og fána höfðu þessar göngur fyrst og fremst yfir sér kröfugöngusvip og líktust einna helst þeim göngum sem ég hef gengið með félögum okkar í Austur-Evrópu, það er að segja þeim sem komast leiðar sinnar án ofbeldis. Þetta voru friðsamar göngur, líklega allt of friðsamar og illa „markaðssettar“ enda töldu þær hvor um 70 manns. En þær gerðu viðstöddum afskaplega gott því leiðina til sjálfsvirðingar tökum við alltaf skref fyrir skref. Svo varð sá áfangasigur í sögunni árið 1996 að lög um staðfesta samvist tóku gildi og allt í einu urðum við miðlæg í þjóðfélagsumræðunni. Samkynhneigðir voru ekki nálægt því eins óttaslegnir og áður, ættingjar okkar fóru að sýna stuðning í stað þess að blygðast sín fyrir afkvæmin og smám saman varð til jarðvegur fyrir annars konar hátíð og fyrirferðarmeiri. H: Hinsegin helgin 1999 var stórglæsileg og vakti mikla athygli. Þá var engin ganga en haldin var stór útiskemmtun á Ingólfstorgi og stjórnmálamenn úr öllum flokkum mættu til að taka þátt. Það var á þessu augnabliki sem ég gerði mér grein fyrir að nú væri kominn vendipunktur í íslensku samfélagi varðandi viðhorf til samkynhneigðra. Ég sá viðburð, sem hafði einungis verið auglýstur á samskiptaneti samkynhneigðra, draga til sín 1500 manns til að syngja og gleðjast saman og mikla fjölmiðlaathygli. Þarna var enginn mættur til að gera grín að okkur. Aðstæður í þjóðfélaginu höfðu greinilega breyst; við vorum dýpra inni í skápnum en við þurftum að vera. Skömmu eftir Hinsegin helgina talaði ég við forsvarsmenn viðburðarins og sagði að við þyrtum strax að hefja undirbúning fyrir risahátíð á næsta ári og að á þeirri hátíð þyrfti að vera „parade“ eða gleðiganga eins og ég lagði til að hún yrði kölluð á íslensku. Viðbrögðin voru blendin og sumir spurðu hvort ég væri orðinn brjálaður! Undirbúningur Hinsegin helgarinnar hafði tekið margar vikur og þau sem höfðu staðið að henni voru svo uppgefin að þau voru ekki öll tilbúin að ræða frekari hátíðahöld. Ég taldi hins vegar að þetta væri verkefni af þeirri stærðargráðu að undirbúningur yrði að hefjast undir eins. Fljótlega þar á eftir boðaði ég til undirbúningsfundar í Samtökunum ‘78. Hvernig gekk undirbúningurinn að fyrstu gleðigöngunni? H: Fyrsti undirbúningsfundurinn var haldinn haustið 1999. Margir trúðu einfaldlega ekki á að í svona fámennu samfélagi eins og Íslandi myndi takast að halda nægilega stóra göngu, með vögnum og atriðum, að erlendum sið. Menn sögðu að íslenskir hommar og lesbíur myndu aldrei fást til að klifra upp á vagna og láta draga sig niður Laugaveginn, syngjandi og trallandi með regnbogafánann. Svo mikil var hræðslan. Hræðsla við að við yrðum aðhlátursefni 62
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.