Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 65

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 65
E: Galdurinn er að sníða sér stakk eftir vexti og eiga góðan gjaldkera sem er skynsamur. Sum árin hafa verið mögur og þá hefur hátíðin þurft að herða mittisólína og til dæmis þurft að útiloka alþjóðlega skemmtikrafta. Í þessu samhengi er mikilvægt að muna að Reykjavíkurborg styrkir okkur um fimm milljónir króna á hverju ári sem skiptir miklu máli hvað varðar rekstur hátíðarinnar. Við skilum því til baka með þakklæti og aukinni starfsemi í miðborginni. Það væri áhugavert að setja hátíðina upp í Excel og skoða hvað hún í raun og veru kostar í ólaunuðu sjálfboðaliðastarfi og hvaða tekjur hún halar inn. Svo lengi sem gangan er grasrótarhreyfing mun hún halda velli. Ef markaðsskrifsstofur fara að stýra er voðinn vís. Það sem gerir Hinsegin daga öðruvísi er að við leyfum ekki auglýsingar í gleðigöngunni. Þetta er það fallega við göngudaginn; þar fá mannréttindi okkar og baráttan fyrir þeim að skína. Ég man dæmi frá 17. júní eitt árið þar sem ég fór með frændsystkini mín að hoppa í KFC- hoppukastala og ég hugsaði með mér: „vá hvað ég er fegin að hátíðin okkar er ekki uppblásinn hamborgari.“ Hvaða merkingu hefur hátíðin fyrir ykkur? H: Hinsegin dagar og gleðigangan eru jól, áramót og afmæli allt í senn. Ég tók þátt í því að búa þessa hátíð til og er gríðarlega stoltur af því. Ég segi oft að við sem sáum um skipulagningu hátíðarinnar höfum gert okkur grein fyrir að við værum búin að ná til allra þegar heldri frúrnar voru byrjaðar að mæta í gönguna. Oft gengur fólk upp að mér og segir að Hinsegin dagar hafi bjargað lífi þeirra. Þá finn ég að ég hef gert eitthvað sem er ekki bara fyrir mig, heldur hef ég gert eitthvað fyrir aðra, fyrir samfélagið, og að ég hef tekið þátt í að gera samfélagið á Íslandi aðeins betra en það var. Þ: Ég skal játa að eftir því sem hátíðin varð stærri og glæsilegri og samstarfið öruggara þá fór mér stundum að leiðast þetta ævintýri. Ég nærist meira á mótlæti en ég vil stundum viðurkenna og mér finnst ég vera til á jörðinni þegar ég er á leiðinni upp brekkuna. En lífið sér maður ekki fyrir og mitt í þessum leiða varð mér eitt árið litið til hliðar á gangstéttina þar sem við göngufólkið fórum hjá og sá þar mann sem ég hafði einu sinni átt við trúnaðarsamtöl um ástir og hneigðir sem hann leyndi eins og mannsmorði og þjáðist fyrir. Einn af þeim mönnum sem alla tíð hafði haldið sig víðsfjarri samfélagi okkar hommanna. En þarna var hann mættur og kannski slóst hann í hóp þeirra sem að lokum mynduðu hala göngunnar þann daginn, ég veit það ekki. En þá vissi ég að Hinsegin dagar höfðu breytt einhverju sem skiptir mig máli. E: Í hverri einustu gleðigöngu verður til ákveðið augnablik þar sem allar tilfinningar hátíðarinnar hellast yfir mig og ég enduruppgötva af hverju ég er að þessu og af hverju þetta starf er svona mikilvægt. Ég held að það mesta sem hátíðin gefi mér sé að vera virkur þátttakandi í því að gera heiminn að betri stað og ef ég get gert eitthvað til að við tökum tvö skref áfram en ekki aftur á bak, þá er það skylda mín sem manneskja að gera það. Þetta er okkar hjartans mál sem er ástæða þess að ég er formaður Hinsegin daga í dag. 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.