Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2016, Qupperneq 31

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2016, Qupperneq 31
GLEÐIGANGAN THE PRIDE PARADE Vatnsmýrarvegi (BSÍ), laugardaginn 6. ágúst kl. 14:00. Vatnsmýrarvegur (BSÍ), Saturday 6 August at 2 p.m. sérstakt atriði, bíði með að slást í hópinn þar til síðasti vagninn hefur farið framhjá. Auglýsingar bannaðar Hinsegin dagar eru stoltir af því að gleðigangan í Reykjavík er ein af fáum sambærilegum göngum í heiminum þar sem auglýsingar fyrirtækja og þjónustu eru óheimilar. Með auglýsingabanninu er undirstrikað að gangan er grasrótarviðburður og þátttakendur taka þátt til að styðja baráttuna og málstaðinn en ekki til að styrkja eða auglýsa fyrirtæki. Í örfáum undantekningartilvikum eru auglýsingar heimilar en þá þarf að sækja sérstaklega um undanþágu til göngustjórnar. Athugið að allar ósamþykktar auglýsingar á bílum og fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer af stað. Brot á þessum reglum verður til þess að atriði er hafnað eða vísað úr göngunni. Leikstjórn og hvatningarverðlaun Hinsegin dagar leggja áherslu á að þátttakendur vandi til verka við skreytingar vagna og búninga. Skilaboðin geta verið með óteljandi móti og þar skiptir hugkvæmni þátttakenda miklu máli. Bestu atriðin kosta oftar en ekki litla peninga. Hinsegin dagar bjóða aðstoð leikstjóra sem gefa góð ráð til göngufólks. Ræðið hugmyndir ykkar við ráðgjafa okkar og þau benda á leiðir sem kosta lítið en setja flottan svip á atriðin ykkar. Sendið póst til Hinsegin daga í tæka tíð (pride@hinsegindagar. is) og við aðstoðum ykkur við að komast í samband við leikstjóra sem hafa langa reynslu af götuleikhúsi og uppákomum af öllu tagi. Göngustyrkir Hinsegin dagar veita minni háttar fjárstyrki til gönguatriða. Umsóknir um þá skulu berast Gunnlaugi Braga Björnssyni, fjármálastjóra hátíðarinnar, um leið og sótt er um þátttöku. Netfang hans er gunnlaugur@hinsegindagar.is. Styrkir eru einungis veittir gegn framvísun reikninga og skulu þeir hafa borist til Hinsegin daga (b.t. fjármálastjóra), Suðurgötu 3, 101 Reykjavík, fyrir 31. ágúst. Ekki er veittur styrkur til að fjármagna leigu á farartækjum eða eldsneyti. Gæði atriðanna skipta miklu máli þegar kemur að því að meta hverjir fá styrk. Hinsegin dagar áskilja sér rétt til að samþykkja eða hafna öllum beiðnum um styrki í samræmi við fjárhag hátíðarinnar. The Pride Parade Groups that wish to participate in the parade must apply to Reykjavik Pride before 25 July by filling out a form which can be found on the website, www.hinsegindagar.is. For any further information about the parade, please contact the parade managers Ásta, Eva, Setta, Steina, Lilja and Anna by e-mail, gongustjorn@hinsegindagar.is/en. The parade leaves from Vatnsmýrarvegur, close to the Bus Terminal (BSI), and ends in front of the concert stage at Arnarhóll in the city center. All participants are asked to show up at the starting point at 12 a.m. on Saturday, 6 August. The parade starts at 2 p.m. sharp. STARFSFÓLK FORLAGSINS Á FISKISLÓÐ ERU SÉRSTAKIR HJÁLPARKOKKAR GÖNGUSTJÓRNAR HINSEGIN DAGA OG FÁ HLÝJAR ÞAKKIR FYRIR! Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki velkomin í gleðigöngu Hinsegin daga. Við göngum í þágu mannréttinda og mannvirðingar og biðjum gæsa- og steggjapartí vinsamlegast að virða það og finna sér annan vettvang. 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.