Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 30

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 30
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni. Hinsegin dagar skipuleggja gleðigönguna og stýra hvaða atriði fá aðgang að henni en atriðin sjálf eru sprottin úr grasrótinni. Einstaklingar og hópar geta skipulagt atriði og sótt um þátttöku í göngunni en Hinsegin dagar setja sem skilyrði að öll atriði miðli skýrum skilaboðum sem varða veruleika hinsegin fólks á einn eða annan hátt. Uppstilling og gönguleið Byrjað verður að raða göngunni upp á Vatnsmýrarvegi (rétt hjá BSÍ) kl. 12 laugardaginn 6. ágúst. Þeir þátttakendur sem eru með atriði verða skilyrðislaust að mæta á þeim tíma til að fá sitt númer og stilla sér upp. Gangan leggur stundvíslega af stað kl. 14 og bíður ekki eftir neinum. Gönguleiðin liggur eins og undanfarin ár eftir Vatnsmýrarvegi, Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og framhjá Arnarhóli þar sem við taka glæsilegir útitónleikar (sjá kort bls. 32–33). Skráning og þátttaka Þátttakendur sem ætla að vera með atriði í gleðigöngunni skulu sækja um það til Hinsegin daga eigi síðar en 25. júlí. Nauðsynlegt er að skrá atriði með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað sem finna má á vefsíðunni www. hinsegindagar.is/gledigangan. Nánari upplýsingar veita göngustjórarnir Ásta, Setta, Steina, Lilja og Anna en hægt er að senda þeim póst á gongustjorn@ hinsegindagar.is. Öryggisstjórinn er Eva Jóa og hægt er að senda henni spurningar varðandi öryggi í göngunni í pósti á netfangið oryggisstjorn@ hinsegindagar.is. Athugið að ekki er hægt að veita fólki með atriði aðgang að göngunni nema rafræna umsóknin hafi verið fyllt út og send og skilmálar samþykktir. Hinsegin dagar leggja áherslu á að þeir sem vilja ganga með, en hafa ekki sótt um þátttöku og eru ekki með GLEÐIGANGAN THE PRIDE PARADE Vatnsmýrarvegi (BSÍ), laugardaginn 6. ágúst kl. 14:00. Vatnsmýrarvegur (BSÍ), Saturday 6 August at 2 p.m. 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.