Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 51

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 51
Hvað er pankynhneigð? Um fræðslu Samtakanna ´78 Fræðsla um hinsegin málefni hefur lengi verið einn af hornsteinum starfsemi Samtakanna ‘78. Þessi þáttur hefur farið vaxandi undanfarin ár. Árið 2015 stóðu Samtökin ‘78 fyrir 102 fræðslufyrirlestrum, flestum í grunnskólum en einnig í þjónustumiðstöðvum, félagsmiðstöðvum og á fleiri stöðum. Í ár stefnir í að þeir verði enn fleiri enda hafa Samtökin nýlega gert viðamikinn samning um fræðslu við Hafnarfjarðarbæ og fleiri sveitarfélög huga að gerð slíks samnings. Hluta þessarar aukningar má rekja til þess að hinsegin fólk kemur nú fyrr út fyrir umhverfi sínu og ekki er óalgengt að börn og ungmenni komi út á grunnskólaaldri. Fyrir örfáum árum var algjörlega óhugsandi að þetta gæti gerst en þessi veruleiki er til marks um að samfélagið er orðið opnara. Þessu fylgja nýjar áskoranir fyrir grunnskólana. Málefni sem áður lágu í þögn eða var tæpt lítillega á í kynfræðslutímum eru allt í einu komin upp á yfirborðið með fleiri nemendum sem eru komin út sem hinsegin eða eiga hinsegin foreldra. Grunnskólastarfsfólk vill í kjölfarið gjarnan fræðast um málefni hinsegin fólks, hvernig þau geta stutt við hinsegin nemendur og hvernig þau geta frætt nemendur sína um söguna, hugtökin og samstöðuna sem er svo mikilvæg. Í fræðslu fyrir starfsfólk skóla, nemendur og aðra er farið yfir öll helstu hinsegin hugtökin, þ.e. þau sem tengjast kynhneigð, kynvitund og því að vera intersex. Einnig er fjallað um helstu baráttumál hópanna, skörun þeirra, staðalmyndir og fordóma. Þá er rætt hvernig bæði nemendur og starfsfólk geti gert skólann sem öruggastan fyrir hinsegin ungmenni. Um fræðslu í efstu bekkjum grunnskólanna og í framhaldsskólum sér öflugt teymi jafningjafræðara Samtakanna ‘78. Þau eru ungt fólk á aldrinum 16–30 ára sem fær þjálfun til að fræða um hinsegin málefni á persónulegan og faglegan hátt. Í vetur hafa 15 virkir jafningjafræðarar starfað hjá okkur. Starf jafningjafræðslunnar er ekki aðeins mikilvægt út á við heldur er hún líka mikilvægur þáttur í að byggja upp innviði hinsegin samfélagsins. Ungt hinsegin fólk fær í jafningjafræðslunni þjálfun í að koma fram og fjalla um hinsegin málefni. Það er fjárfesting til framtíðar fyrir hinsegin samfélagið. www.samtokin78.is | Sími: 552 7878 | netfang: skrifstofa@samtokin78.is | Suðurgötu 3, 101 Reykjavík „Jafningjafræðarar Samtakanna ´78 héldu fræðslu fyrir 10. bekkina okkar. Fræðslan var afar gagnleg bæði fyrir nemendur og kennara og hélt athygli unglinganna óskiptri. Fyrirlesararnir stóðu sig mjög vel og við erum alveg í skýjunum.“ – Edda Arinbjörnsdóttir, umsjónarkennari í 10. bekk Víðistaðaskóla. Jafningjafræðarar Samtakanna ´78 ásamt framkvæmdastýru. Ljósmyndari: Alda Villiljós Jón Ágúst Þórunnarson jafningjafræðari heldur fyrirlestur fyrir börn og fullorðna á Drangsnesi síðastliðið haust. 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.