Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 61
„Þetta er
okkar
hjartans
mál“
Samtal fyrrverandi forseta, fyrrverandi
framkvæmdastjóra og núverandi
formanns Hinsegin daga í Reykjavík
Heimir Már Pétursson var aðalhvatamaðurinn að stofnun
Hinsegin daga í Reykjavík árið 2000 og sinnti stöðu
framkvæmdastjóra hátíðarinnar frá upphafi til ársins
2011. Hann hefur starfað sem fréttamaður frá unga aldri,
gefið út fjórar ljóðabækur og eitt ljóðablað. Þá hefur
hann samið texta við lög bróður síns, Rúnars Þórs, á um
15 hljómplötur, gefið út geisladisk og annan með Þór
Eldon undir nafni Hnotubrjótanna.
Þorvaldur Kristinsson var forseti Hinsegin daga frá
því að félagið var stofnað árið 2000 til ársins 2012.
Þorvaldur er bókmennta- og kynjafræðingur að mennt
og hefur í áratugi starfað sem bókmenntaritstjóri og
rithöfundur. Meðal verka hans er bókin Lárus Pálsson
leikari sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2008.
Þorvaldur var formaður Samtakanna ´78 1986–1989,
1991–1993 og 2000–2005. Árið 2004 var hann sæmdur
riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín að
mannréttindamálum samkynhneigðra á Íslandi.
Eva María Þórarinsdóttir Lange hefur verið formaður
Hinsegin daga frá árinu 2012. Hún er ferðamálafræðingur
að mennt og plötusnælda í hjáverkum. Eva María hefur
starfað í ferðaþjónustu í rúman áratug, sem landvörður,
viðburðastýra og var lengst af markaðsstjóri hjá Eldingu.
Hún hefur einnig sinnt kennslu í ferðamálafræðum við
Háskóla Íslands. Hún á nú og rekur Pink Iceland, fyrirtæki
sem sérhæfir sig í skipulagningu ferða, afþreyingar og
brúðkaupa fyrir hinsegin ferðamenn.
Jón Kjartan Ágústsson skráði viðtalið.
61