Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2016, Blaðsíða 31
GLEÐIGANGAN
THE PRIDE PARADE
Vatnsmýrarvegi (BSÍ), laugardaginn 6. ágúst kl. 14:00.
Vatnsmýrarvegur (BSÍ), Saturday 6 August at 2 p.m.
sérstakt atriði, bíði með að slást í hópinn þar til síðasti vagninn
hefur farið framhjá.
Auglýsingar bannaðar
Hinsegin dagar eru stoltir af því að gleðigangan í Reykjavík
er ein af fáum sambærilegum göngum í heiminum þar
sem auglýsingar fyrirtækja og þjónustu eru óheimilar.
Með auglýsingabanninu er undirstrikað að gangan er
grasrótarviðburður og þátttakendur taka þátt til að styðja
baráttuna og málstaðinn en ekki til að styrkja eða auglýsa
fyrirtæki.
Í örfáum undantekningartilvikum eru auglýsingar
heimilar en þá þarf að sækja sérstaklega um undanþágu til
göngustjórnar. Athugið að allar ósamþykktar auglýsingar á
bílum og fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer af stað. Brot
á þessum reglum verður til þess að atriði er hafnað eða vísað úr
göngunni.
Leikstjórn og hvatningarverðlaun
Hinsegin dagar leggja áherslu á að þátttakendur vandi til verka
við skreytingar vagna og búninga. Skilaboðin geta verið með
óteljandi móti og þar skiptir hugkvæmni þátttakenda miklu
máli. Bestu atriðin kosta oftar en ekki litla peninga.
Hinsegin dagar bjóða aðstoð leikstjóra sem gefa góð ráð til
göngufólks. Ræðið hugmyndir ykkar við ráðgjafa okkar og þau
benda á leiðir sem kosta lítið en setja flottan svip á atriðin ykkar.
Sendið póst til Hinsegin daga í tæka tíð (pride@hinsegindagar.
is) og við aðstoðum ykkur við að komast í samband við leikstjóra
sem hafa langa reynslu af götuleikhúsi og uppákomum af öllu tagi.
Göngustyrkir
Hinsegin dagar veita minni háttar fjárstyrki til gönguatriða.
Umsóknir um þá skulu berast Gunnlaugi Braga Björnssyni,
fjármálastjóra hátíðarinnar, um leið og sótt er um þátttöku.
Netfang hans er gunnlaugur@hinsegindagar.is. Styrkir eru
einungis veittir gegn framvísun reikninga og skulu þeir hafa
borist til Hinsegin daga (b.t. fjármálastjóra), Suðurgötu 3, 101
Reykjavík, fyrir 31. ágúst. Ekki er veittur styrkur til að fjármagna
leigu á farartækjum eða eldsneyti. Gæði atriðanna skipta miklu
máli þegar kemur að því að meta hverjir fá styrk. Hinsegin dagar
áskilja sér rétt til að samþykkja eða hafna öllum beiðnum um
styrki í samræmi við fjárhag hátíðarinnar.
The Pride Parade
Groups that wish to participate in the parade must apply to
Reykjavik Pride before 25 July by filling out a form which can be
found on the website, www.hinsegindagar.is. For any further
information about the parade, please contact the parade
managers Ásta, Eva, Setta, Steina, Lilja and Anna by e-mail,
gongustjorn@hinsegindagar.is/en. The parade leaves from
Vatnsmýrarvegur, close to the Bus Terminal (BSI), and ends in front
of the concert stage at Arnarhóll in the city center. All participants
are asked to show up at the starting point at 12 a.m. on Saturday, 6
August. The parade starts at 2 p.m. sharp.
STARFSFÓLK FORLAGSINS Á FISKISLÓÐ
ERU SÉRSTAKIR HJÁLPARKOKKAR
GÖNGUSTJÓRNAR HINSEGIN DAGA OG
FÁ HLÝJAR ÞAKKIR FYRIR!
Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki velkomin í
gleðigöngu Hinsegin daga. Við göngum í þágu mannréttinda og mannvirðingar og biðjum
gæsa- og steggjapartí vinsamlegast að virða það og finna sér annan vettvang.
31