Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2016, Side 40
Fjölbreyttir og spennandi tónleikar þar sem hljóma verk eftir
nokkur helstu hinsegin tónskáld sögunnar, m.a. Pjotr Tsjajkovskíj,
Francis Poulenc, Benjamin Britten, Leonard Bernstein og Steven
Sondheim. Einnig verða flutt verk eftir franska barokkhöfundinn
Jean-Baptiste Lully og bandaríska framúrstefnutónskáldið
Henry Cowell. Flytjendur eru í fremstu röð meðal íslenskra
tónlistarmanna: Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari, Eyjólfur
Eyjólfsson tenór, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Júlía Mogensen
selló og Árni Heimir Ingólfsson píanóleikari sem jafnframt kynnir
efnisskrána á sinn lipra og skemmtilega hátt.
Many of the world’s leading composers have been gay, and this
concert celebrates their achievements. The programme includes
works by Tchaikovsky, Poulenc, Britten, Bernstein, and Sondheim,
as well as music by the French baroque composer Jean-Baptiste
Lully and the American avant-garde musician Henry Cowell.
The performers are among Iceland’s leading classical musicians,
including Ari Þór Vilhjálmsson (violin), Eyjólfur Eyjólfsson (tenor),
Hallveig Rúnarsdóttir (soprano), Júlía Mogensen (cello) and the
pianist Árni Heimir Ingólfsson.
Á HINSEGIN
NÓTUM
GAY CLASSICAL CONCERT
Iðnó, Vonarstæti 3,
miðvikudaginn 3. ágúst kl. 22:00.
Aðgangseyrir: 2.000 kr.
Pride-passi gildir.
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12,
Wednesday 3 August at 10:00 p.m.
Admission: 2.000 ISK. Pride Pass valid.
IMPROV ÍSLAND
IMPROV ICELAND
Improv Ísland sýnir spunasýningar út frá tillögum frá
áhorfendum. Ekkert er ákveðið fyrir fram og sýningar eru
aldrei endurteknar. Hópurinn hefur vakið mikla athygli fyrir
sprenghlægilegt grín og færri hafa komist að en vilja á vikulegar
sýningar þeirra í Þjóðleikhúskjallaranum. Á síðastliðnu ári hafa
þau einnig ferðast með sýningar sínar út um allt land og til
Bandaríkjanna. Á Hinsegin dögum mun Improv Ísland setja upp
sérstaka sýningu í tilefni hátíðarinnar.
Hópurinn sýnir ólík spunaform, meðal annars söngleik spunninn
á staðnum, og fær til sín óvænta gesti. Nánari upplýsingar um
Improv Ísland er að finna á www.improviceland.com
Improv Iceland performs improvised shows based on audience
suggestions. Nothing is decided in advance and the shows are never
repeated. They are known for great comedic skills and have just
finished a sold out run at Thjodleikhuskjallarinn Theatre. In the last
year the Improv Iceland has toured with shows around the country
and to the United States. At Reykjavik Pride Improv Iceland will put
on a special show. The group performs various forms of long-form
Improv, including an improvised musical, and will bring surprise
guests. Further information about Improv Iceland is available at
www.improviceland.com
Hörpu, Norðurljósasal,
miðvikudaginn 3. ágúst kl. 20:30.
Aðgangseyrir: 1.000 kr.
Pride-passi gildir.
Harpa, Norðurljós auditorium,
Wednesday 3 August at 8:30 p.m.
Admission: 1.000 ISK.
Pride Pass valid.
VIÐBURÐUR / EVENT
VIÐBURÐUR / EVENT
40