Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2016, Qupperneq 66
Hinsegin dagar í Reykjavík /
Reykjavik Pride
www.hinsegindagar.is – pride@
hinsegindagar.is –
Facebook: reykjavikpride
Hinsegin dagar í Reykjavík – Reykjavík
Pride eru sjálfstæð sjálfboðaliðasamtök
sem árlega skipuleggja Hinsegin daga í
Reykjavík aðra helgina í ágúst. Allir sem
styðja markmið hátíðarinnar og vilja
vinna með félaginu geta gerst félagar.
Reykjavik Pride is an independent non-
profit organisation whose one and only
purpose is to organise the Pride festival
in Reykjavík every year. The organisation
is run solely by volunteers. Everyone who
supports queer rights and wants to help
with organising Reykjavik Pride can become
a member.
Samtökin ’78 – félag hinsegin
fólks á Íslandi /
The National Queer Organisation
www.samtokin78.is – skrifstofa@
samtokin78.is – Facebook: samtokin78
Samtökin ’78 eru elstu og stærstu
samtök hinsegin fólks á Íslandi og undir
forystu þeirra hafa unnist miklir sigrar
í mannréttindamálum á liðnum árum.
Markmið félagsins er tvíþætt: Að vinna að
baráttu- og hagsmunamálum hinsegin
fólks í því skyni að vinna því jafnrétti á
við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins og að
skapa félagslegan og menningarlegan
vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund
þess, samkennd og samstöðu um
sérkenni sín.
The National Queer Organisation of
Iceland is the oldest queer organisation
in Iceland and under its lead many
great achievements in relation to queer
rights have been made. The goal of the
organisation is twofold: To fight for queer
rights and interests and thereby aim for
equality in all fields of the society, and to
create a social and cultural context where
queer identity and solidarity can prosper.
Q – Félag hinsegin stúdenta /
Q – Queer Student Association
www.queer.is – queer@queer.is –
Facebook: qfelag
Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað
í janúar 1999. Það heldur uppi öflugu
félagsstarfi meðal ungs fólks og
hittist á Q-kvöldum í félagsmiðstöð
Samtakanna ’78. Eitt af markmiðum
félagsins er að vera sýnilegt afl innan
háskólasamfélagsins á Íslandi og í forsvari
þar þegar málefni hinsegin fólks ber á
góma. Félagið er virkur þátttakandi í
tveimur samtökum ungs fólks í Evrópu,
Transgender-Europe og IGLYO.
Q – Queer Student Association was founded
in 1999. It organises various events for
queer youth and students. One of its
main goals is moreover to be a visible
force and advocate for queer rights and
interests within the universities in Iceland.
Q is an active member of the European
organisations Transgender-Europe and
IGLYO.
Trans-Ísland / Trans Iceland
trans.samtokin78.is – trans@
samtokin78.is – Facebook: transisland
Trans-Ísland var stofnað árið 2007 og
hefur að markmiði sínu að skapa trans
fólki og fjölskyldum þess menningarlegan
vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund
þeirra, vinna að laga- og réttarbótum,
auka fræðslu og eiga samstarf við
sambærileg samtök hérlendis og
erlendis. Fundir Trans-Íslands eru haldnir
fyrsta miðvikudag hvers mánaðar í
félagsmiðstöð Samtakanna ’78. Trans-
Ísland hefur farið ört stækkandi á síðustu
árum í takt við trans samfélagið og
Kynsegin Ísland er nú formlega orðið
partur af félaginu.
Trans Iceland was founded in 2007. Its
goal is to create a cultural setting for
trans people and their families and
thereby bolster their sense of identity, to
work towards judicial improvement and
education on trans issues, and to cooperate
with other queer organisations. Trans
Iceland has grown alongside the trans
community and Non-Binary Iceland is now
an official part of the organisation.
Íþróttafélagið Styrmir /
Styrmir Sport Club
ststyrmir@gmail.com –
Facebook: styrmir.sport
Íþróttafélagið Styrmir var stofnað
árið 2006 og er ein af blómlegustu
grasrótarhreyfingum hinsegin fólks á
Íslandi. Félagið heldur úti reglulegum
æfingum í fótbolta, sundi og blaki
og er virkt í að halda stóra sem smáa
íþróttaviðburði. Árlega taka félagar þátt í
íþróttamótum á erlendum og innlendum
vettvangi og allir eru hjartanlega
velkomnir á æfingar félagsins, bæði
byrjendur og lengra komnir.
Styrmir Sport Club was founded in 2006
HINSEGIN FÉLAGASAMTÖK Á ÍSLANDI
LGBTIQ ORGANISATIONS IN ICELAND 2016
66