Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 28
Lillý þjáðist á tímabili mikið vegna bjúgs í augum, sem olli því að blæddi. Ástandið kom til vegna þess að hún hafði farið til nuddara sem fór óvarlega sem orsakaði að það sprungu æðar í augum hennar. „Ég var fyrir vikið óskaplega þreytt í augunum og alveg helaum. Ég gat varla komið við augnsvæðið, það var svo viðkvæmt. Ég fór til læknis sem hélt fyrst að ég hefði fengið högg á höfuðið. Þá byrjaði ég að fá sprautur til þess að laga ástandið, fyrst mánaðarlega og svo með þriggja mánaða millibili. Þá kom í ljós að ég var einnig komin með minniháttar hrörnun í augn- botnum.“ Tíminn leið og ástandið virtist ekki ætla að lagast hjá Lillý. „Ég heyrði svo af AstaEye í gegnum hana Lilju Kjalarsdóttur, en við vorum báðar staddar á Djúpavogi í fermingu 2018. Við vorum saman í húsi og hittumst svo að segja fyrir tilviljun. Við hófum að ræða um heilsufar og hún minntist í fram- haldi á að SagaNatura væri að búa til bætiefni fyrir augu.“ AstaEye flutti Esjuna nær Í október sama ár byrjaði Lillý að taka AstaEye og fann fljótlega mun á augunum. „Þegar ég fór til læknis til að fá enn eina sprautuna sagði læknirinn að ástandið hefði stórlagast á augunum og að augnbotnahrörn- unin stæði í stað. Þá minntist ég á að ég væri byrjuð að taka AstaEye bætiefni með fram meðferðinni og spurði hvort það gæti verið að hjálpa. Læknirinn spurði á móti hvort ég tryði að það hjálpaði og ég jánkaði því og að kroppurinn væri mér sammála. Þá sagði hann að ég ætti endilega að halda áfram að taka bætiefnið. Það er nú svo að trúin flytur fjöll og í mínu tilfelli þá hefur Esjan færst töluvert nær, ekki bara vegna trúarinnar heldur finn ég líka að AstaEye gerir mér gott. Ég get ekki kvartað í dag. Ég er aldrei þreytt eða aum í augunum og ég þarf aldrei orðið að vera með gleraugun sem ég var farin að þurfa til að geta séð á sjónvarp eða annað. Þetta voru rosalega þykkir og þungir flöskubotnar sem mér líkaði aldrei við og nú hef ég alveg lagt þeim.“ Jákvæðni bætir og kætir „Fjölskyldan mín hefur fengið svo gott í kroppinn og ná flestir fjölskyldumeðlimir um og yfir 98 ára aldri. Sú yngsta af systk- inum mömmu, sem varð 97 ára, hún er 92 ára í dag og eldhress. Systir hennar er 99 ára. Við höfum fengið sterk eldrimannagen og það merkilegasta er að ekkert af þessu fólki gengur með gleraugu. Þetta var slysni hjá mér. En ég er þakklát að þetta gekk til baka hjá mér, þökk sé AstaEye og sprautu- meðferð. Ég má heldur betur vera ánægð að vera svona brött og sjá svona vel, 87 ára gömul. Ég er nú komin í litla íbúð á áttundu hæð með dásamlegu útsýni sem ég get notið til hins ýtrasta. Það gefur svo mikið að geta séð, sérstaklega þegar maður býr í svona fallegu landi. Svo skiptir öllu að vera jákvæður, það gefur þér alltaf nokkur ár í kaup- bæti við lífið,“ segir Lillý. Augnbotnahrörnun algengasta orsök lögblindu Lilja Kjalarsdóttir, framkvæmda- stjóri líftæknifyrirtækisins SagaNatura, segir að fyrirtækið hafi þróað AstaEye sem bætiefni til að viðhalda augnheilsu og koma í veg fyrir hrörnun augnbotna. „Augnbotnahrörnun er algeng- asta orsök lögblindu hjá fólki sem er 50 ára og eldra, en þessi tengsl hafa mikið verið rannsökuð. Þá sýndi AREDS2 rannsóknin sem framkvæmd var í Bandaríkjunum fram á að fólk sem fékk lítið af náttúrulegum litarefnum sem finnast m.a. í grænkáli og spínati í gegnum mataræði sitt og fengu fæðubót með þessum efnum, var 25% ólíklegra til þess að þróa með sér augnbotnahrörnun en viðmið- unarhópur á sama mataræði sem fékk ekki fæðubót. Þetta sýnir að næringar- og snefilefni sem finnast í heilsusamlegu mataræði eru gífurlega mikilvæg þegar kemur að augnheilsu,“ segir Lilja. Borðaðu regnbogann Þau litarefni sem eru mikilvæg fyrir sjónina getum við öll fengið úr fæðunni svo lengi sem við veljum nóg af litríku grænmeti og ávöxtum. „Við eigum að borða allan regnbogann svo að segja. En fæstir ná að borða nóg til þess að fá nægilegt magn af litarefnum til að viðhalda sjóninni. Og eftir því sem við eldumst minnkar upptaka næringarefna. Þess vegna getur það skipt verulegu máli að auka inntöku þessara efna með fæðu- bótarefnum eins og AstaEye.“ Þekkt blanda með lykilhráefni Til er fjöldi virkra fæðubótarefna á markaðnum fyrir augu, og líkt og flest inniheldur AstaEye bæði lútein og zeaxanthin sem eru mikilvæg fyrir augnþroska og sjón fullorðinna. Þá verja efnin augun fyrir útfjólubláum geislum og bláa ljósinu sem skín af tölvuskjám og snjalltækjum allt í kringum okkur. Einnig eru þar andoxunar- efnin C- og E-vítamín sem draga úr hrörnun á augnbotnum og skýjum á auga. Þá er zink í AstaEye, sem er mikilvægt fyrir melanínmyndun í augum, og kopar, sem kemur í veg fyrir blóðleysi sem getur tengst inntöku á zinki. „Það sem gerir AstaEye einstakt er að við höfum bætt við einu litar- efni í viðbót. Í einum dagskammti af AstaEye eru 4 mg af astaxanthin, sem er afar virkt andoxunarefni sem við fáum aðallega úr laxi. Rannsóknunum sem sýna jákvæð áhrif astaxanthins á augnheilsu fjölgar stöðugt, en þær eru ekki einungis bundnar við augnbotna- hrörnun heldur er líklegt að astaxanthin geti haft áhrif á fjölda annarra kvilla sem hrjá augun. Málið með astaxanthin er að það getur verið afar erfitt að fá nóg af því úr fæðunni. En til þess að fá þetta magn af efninu þarf að borða kíló af laxi. Þá inniheldur eldislax ekki náttúrulegt astaxant- hin líkt og sá villti. Astaxanth- inið í AstaEye og fleiri vörum frá SagaNatura ræktum við sjálf upp úr grænþörungum í Hafnarfirði, en í náttúrunni framleiða þessir smáþörungar astaxanthin til að verja sig gegn óæskilegum áhrifum sólarinnar.“ Fyrir fólk á öllum aldri Eitt af lykilatriðunum þegar verið var að setja formúluna af AstaEye saman, var að varan væri á skyn- samlegu verði fyrir fólk. „Við höfum ekki eytt miklu í auglýsing- ar en fólk hefur verið fljótt að átta sig á því hvað AstaEye er virk vara. Móttökurnar hafa verið algerlega frábærar. Þá taka margir íþrótta- menn og -konur inn AstaEye, því fyrir marga skiptir augnheilsa gífurlegu máli, til dæmis hjá fólki sem keppir í skotfimi. Fólk er alltaf að uppgötva meira og meira hversu miklu máli það skiptir að borða holla, fjölbreytta og litríka fæðu til að viðhalda góðri heilsu, en það getur verið erfitt í nútímanum að viðhalda því á hverjum degi. Þá koma fæðubótarefni eins og AstaEye sterk inn. Hvað varðar Lillý þá er ekki hægt að segja að hún sé fyrirbyggjandi dæmi. Hún var byrjuð í meðferð við bjúgi í augum og komin í lyfja- gjöf við hrörnun í augnbotnum, en hvorug meðferðin hafði sýnt fram á mikinn árangur. Hún ákvað að bæta AstaEye við og fljótlega tók læknirinn eftir að bæði blóð og bjúgur minnkaði tiltölulega hratt. Augnlæknar um allan heim þekkja næringarformúluna sem AstaEye byggir á og styðja við notkun á henni til þess að viðhalda augnheilsu. Þá höfum við bætt við astaxanthini, sem er íslensk fram- leiðsla og íslenskt hugvit, og við trúum því 100% að það auki enn fremur á virkni fæðubótarefnisins. Þetta er alger dúndurblanda fyrir augun, á hvaða aldri sem er í raun og veru. Ef fólk er svo með ættar- sögu af augnbotnahrörnun og/ eða háum blóðþrýstingi, þá er kjörið að byrja að taka strax inn fæðubótarefni eins og AstaEye til að fyrirbyggja áður en skemmdir koma fram.“ n Lillý byrjaði að taka AstaEye 2018 og hefur sjónin stór- lagast. Hún er hætt að þurfa stór og þykk gleraugu til að sjá á sjónvarpið og augnbotna- hrörnun sem hún greindist með hefur staðið í stað síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON Lilja Kjalarsdóttir, framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins SagaNatura, segir það mikilvægt að byrja að taka inn fæðubót fyrir augun til að viðhalda augn- heilsu fram eftir aldri. Sérstaklega ef augnbotnahrörnun er í ættinni. AstaEye fæðu- bót fyrir augu er einstök á markaðnum þar sem hún inni- heldur íslenskt astaxanthin ásamt öðrum þekktum nær- ingarefnum sem styðja við augn- heilsu. Ég er þakklát að þetta gekk til baka, þökk sé AstaEye. Ég er aldrei þreytt eða aum í augunum og ég þarf aldrei orðið að vera með gleraugun sem ég var farin að þurfa til að geta séð á sjónvarpið. Ingibjörg Árelíusar 2 kynningarblað A L LT 22. maí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.