Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 66
Okkar ástkæra Ásta Garðarsdóttir frá Fáskrúðsfirði, lést á Grund fimmtudaginn 6. maí. Útförin fer fram frá Háteigskirkju, föstudaginn 28. maí klukkan 13.00. Jóhanna Jakobsdóttir Dennis Magditch Björg Jakobsdóttir Ómar Eyfjörð Friðriksson Hjörleifur Jakobsson Hjördís Ásberg Herdís Jakobsdóttir Guðmundur Ingi Guðmundsson Hjördís Þóra Hólm Þór Wium barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi okkar, Einar Björgvin Kristinsson Strikinu 2, Garðabæ, lést á Hjartadeild Landspítalans 11. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug. Steinunn Sigþórsdóttir Auður Einarsdóttir Ásbjörn Gíslason Einar Snær Ásbjörnsson Katrín Káradóttir Andri Steinn Ásbjörnsson Viktor Orri Ásbjörnsson Ásdís Eva Ásbjörnsdóttir Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir síðan 1996 Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararstjóri Ástkær móðir okkar , tengdamóðir og amma, Erla Hannesdóttir Hofteigi 23, lést laugardaginn 15. maí á Landspítalanum. Útför fer fram frá Laugarneskirkju 25. maí klukkan 13. Útförinni verður streymt á vefslóðinni: bit.ly/ErlaH Jarðsetning verður í Reykholti í Borgarfirði miðvikudaginn 26. maí kl. 11. Jóhannes Jóhannesson Lárus Jóhannesson Glenda Jóhannesson Hákon og Freya Sveinn Óttar og Birta Rós Jóhannes A. og Stefán C. Okkar ástkæri Arnþór Ingólfsson fv. yfirlögregluþjónn og kirkjuvörður, lést á Hrafnistu, Hraunvangi í Hafnarfirði, þann 16. maí. Útför auglýst síðar. Kristín Snæfells Arnþórsdóttir Sigurgeir Arnþórsson Ásdís Gígja Halldórsdóttir Friðbjörg Arnþórsdóttir Guðmundur Þór Sigurbjörnsson Margrét Arnþórsdóttir Elín Inga Arnþórsdóttir og fjölskyldur þeirra. Í galleríinu Ramskram á Njáls- götu 49 opnaði Einar Sebastian ljósmyndari sýningu um liðna helgi. Hann nefnir hana Images of 2 Lives. Hún snýst um tvær mis- langar ævir. gun@frettabladid.is „Útgangspunktur sýningarinnar eru tvær sjálfsmyndir og mynd af æsku- vini mínum. Mín lína táknar lífið og kraftinn af því ég er hér enn. Á móti eru sorgin og endalokin – ef það eru þá endalok,“ segir Einar Sebastian ljós- myndari, þar sem hann stendur framan við tvær myndaseríur á einum vegg í galleríinu Ram skram við Njálsgötu 49. Önnur serían tengist lífi hans sjálfs, en hin alltof skammri ævi æskuvinarins Björns Björnssonar sem lést úr alnæmi í árslok 1994, skömmu áður en lyf við sjúkdómnum kom á markað. Einar kallar sýninguna Images of 2 Lives. Hann kveðst hafa tekið aðra sjálfs- myndina stuttu eftir að Björn dó, með það í huga að þeir gætu verið saman á sýningu. „Nú er það orðið að veruleika, 27 árum síðar,“ bendir hann á. Fyrst leiðir hann mig gegnum myndirnar sem tengjast lífi Björns og hér stikla ég á stóru. Skólavörðustígur blasir við, þar var æskuheimili hans, Bjarg. „Rokkskór með þykkum hælum frá unglingsár- unum eru sterkir í minningunni, síðan var hann einn af strákunum á Borginni,“ segir Einar. Umbúðir lyfsins sem kom aðeins of seint til að bjarga lífi Björns eru á einni myndinni og á annarri kirkju- garður, sem merkir að hann er ekki lengur á meðal vor. Varð að eiga með kaffinu Skólabrú 2 er í forgrunni á fyrstu mynd- inni í seríu Einars. „Þetta er afa- og ömmuhús,“ útskýrir hann og bætir við brosandi: „Amma fékk alla þrjá syni sína í kaffi tvisvar á dag, tveir þeirra unnu í húsinu og sá þriðji á Alþingi, það var pabbi!“ Sá heimur sem Einari hefur þótt skemmtilegast að mynda, að eigin sögn, er leikhúsið og ballettinn. Á sýningunni er portrett af dansara í Skapanornunum eftir Auði Bjarnadóttur. Hann kveðst líta á það sem andlit Íslands og á sama hátt tengir hann aðra stúlkumynd ásjónu Asíu. Ein mynd er af f lugvelli, enda á Einar sterka tengingu við flug og kveðst víða hafa þvælst á eigin vél. „Svo er það mín elskaða Búenos Aíres,“ segir hann og bendir á mynd af torgi, umkringdu reisulegum byggingum. „Ég bjó við þetta torg í heilt ár á hóteli áður en ég keypti mér íbúð í nágrenn- inu,“ segir hann og dylur ekki þrá sína eftir borginni sem hann hefur búið í árum saman. „Búenos Aíres kallar á mig, gerði það sérstaklega í kuldanum í vetur, veirunnar vegna er ég þó örugg- ari hér. En þegar maður er orðinn vanur stórborg finnst manni samt Reykjavík ósköp lítil. Þær eru eins og stóra sviðið og litla sviðið!“ Eina ljósmyndagalleríið Einar kveðst afar ánægður með sýn- ingarrýmið í Ramskram. „Þetta gall- erí hennar Báru Kristinsdóttur er eina galleríið á Íslandi sem fókuserar á ljós- myndun og myndlist tengda henni. Það er yndislegt,“ segir hann og tekur fram að sýningin hans standi til 6. júní og sé sölusýning. n Eru loksins saman á sýningu Til vinar Götuljósin tindruðu einmana í nóttinni. Þú sem varst fordæmdur og kross þinn barst. Þeir biðu eftir þér á hæðinni og negldu þig upp. Þú sagðir ekkert. ES. Einar Sebastian og myndirnar tvær sem eru útgangspunktur sýningar hans, Images of 2 Lives. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TÍMAMÓT 22. maí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.