Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 30
Vefurinn sundlaugar.com hefur það markmið að hjálpa landsmönnum að uppgötva allar fallegu sundlaugar landsins. Þar er hægt með einföldum hætti að halda utan um allar heimsóknir. Heiða Harðardóttir og kærasti hennar, Finnur Magnússon, hafa í sameiningu sett upp vefinn sundlaugar.com. Þar er hægt, með einföldum hætti, að halda utan um heimsóknir í sundlaugar landsins og sjá um leið hvaða sundlaugar er eftir að heimsækja. Hugmyndin er þó ekki ný af nálinni, heldur um fjögurra ára hugmynd sem hefur dúkkað reglulega upp að sögn Heiðu. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sundlaugum. Því minni og skrítnari, því betra. Þegar við Finnur vorum að kynnast fórum við í ferðalag um Vestfirði með vinafólki og einn daginn náði ég að heimsækja þrjár sundlaugar. Upp frá því fórum við að pæla í hversu margar sundlaugar væru á landinu og hvað það tæki langan tíma að fara í þær allar.“ Árangursrík samvinna Finnur, sem er tölvunarfræðingur, hóf að skoða hvernig leysa mætti tæknilegu hliðina, á meðan Heiða vann meira með hugmyndina sjálfa og listaði upp sundlaugar. Hugmyndin fór svo á flug þegar heimsfaraldurinn skall á og þau höfðu aðeins of mikinn tíma saman, að hennar sögn. „Það tók ekki nema viku frá því að við keyptum lénið sundlaugar.com þar til fyrsta útgáfan var komin í loftið. Finnur sér um tæknina og ég sé um efnistökin. Svo höfum við verið að grípa í þetta oftar eftir því sem áhuginn vex, til dæmis að sjá til þess að upplýsingarnar séu réttar og bæta við virkni á vefinn. Það er merkilega lítið rifist á reglulegum stöðu fundum við eldhúsborðið.“ Margra ára verkefni Hún segir vefinn vera eins og margar góðar hugmyndir, fyrst og fremst framkvæmdar til að leysa eigin vandamál, sem í þeirra tilfelli var að halda utan um markmiðið að heimsækja allar sundlaugar á landinu. „Það er bara frábært ef fleiri koma með og setja sér svipuð markmið. Þetta verður margra ára verkefni svo það er nauðsyn- legt að hafa gott bókhald meðan við vinnum okkur í gegnum allar laugarnar.“ Hún segir þau vera að skilgreina reglurnar fyrir sig sjálf og þar með alla aðra notendur vefsins. „Fljót- lega ákváðum við að skrá eingöngu sundlaugar þar sem hægt er að borga sig inn og skola af sér. Við viljum leyfa náttúrulaugunum að vera svolítið dularfullar áfram og finnst það ekki vera okkar að auglýsa þær. Svo eru þær flestar á einkajörðum sem flækir málið enn meira. Þannig að markmiðið er eiginlega bara að hjálpa fólki að uppgötva allar fallegu sundlaug- arnar okkar hringinn í kringum landið og hvetja það til að heim- sækja sem flestar.“ Mikill áhugi á vefnum Stutt er síðan vefurinn fór í loftið og hefur hann helst verið aug- lýstur meðal vina og ættingja. „Ef við skoðum skráða notendur í dag sýnist mér meðaltalið fyrir fjölda sundlauga vera nálægt þrjátíu svo þau sem hafa skráð sig hingað til eru líklega fólk sem er jafn galið og við. Það er samt áhugavert að segja frá því að það eru bara sex- tán aðilar sem hafa farið í f leiri en fimmtíu laugar. Metið er 91 laug!“ Hún segist skynja mikinn áhuga á vefnum og að fjölskyldur hafi til dæmis sameinast í að merkja við sínar laugar og ætla sér stóra hluti í sumar. „Svo vitum við af allavega einum saumaklúbbi sem ætlar í metnaðarfulla keppni. Skömmu eftir að við fórum í loftið fréttum við líka af vinnustaðakeppni sem hefur verið haldin árlega þar sem starfsfólk verkfræðistofu keppir í sundlaugaferðum. Við fengum sent afrit af excel-skjali þeirra sem sjá um keppnina og erum að klóra okkur í hausnum yfir því hvernig við gætum hugsanlega sett upp eitt- hvað í líkingu við það. Við viljum endilega hvetja fólk áfram með því að hafa þetta svolítið keppnis.“ Sjálf fer Heiða oftast í Vestur- bæjarlaug og í Laugardalslaugina, sérstaklega ef hún ætla að synda. „En ætli uppáhaldslaugin mín sé ekki laugin í Heydal fyrir vestan og laugin í Selárdal er svo í öðru sæti.“ Sundlaugar landsins munu skipa stóran sess í lífi þeirra í sumar. „Nú er kerfið að verða tilbúið svo mark- miðið að klára allar sundlaugar landsins er rækilega komið á kortið. Við hvetjum fólk bara til að koma með okkur í þetta ferðalag og skrá sig á sundlaugar.com. Svo er líka hægt að fylgjast með okkur á Facebook (Sundlaugarnar) og Instagram (@sundlaugar_com).“ ■ Heimsækja allar sundlaugar landsins „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sundlaugum. Því minni og skrítnari, því betra,“ segir Heiða Harðardóttir, annar stofnenda sundlaugar.com. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sundlaug við Reykjafjörð í Arnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Þetta kom fram í forsíðu- viðtali við rapparann í bandaríska tímaritinu GQ þar sem hann ræddi nýju plötuna, sem fylgir í kjölfar TESTING, sem kom út árið 2018. Platan er ekki komin með útgáfudag enn þá, en í viðtalinu sagði Rocky, sem heitir réttu nafni Rakim Mayers, að hún væri 90% tilbúin. oddurfreyr@frettabladid.is Samstarfið við Morrissey, sem var áður söngvari sveitarinnar The Smiths, kemur mörgum á óvart, en Rocky sagði að Morrissey hefði verið að semja, framleiða og syngja fyrir plötuna og hvað sem hann þurfi að fá Morrissey til að gera, þá mæti hann og geri það. Morrissey er umdeildur, en hann hefur látið hafa eftir sér ýmis óvinsæl ummæli á opin- berum vettvangi og lýst yfir stuðningi við öfgahægrif lokk í Bretlandi. Rihanna er stóra ástin Í viðtalinu staðfesti Rocky einnig ástarsamband sitt við söngkonuna Rihönnu og kallaði hana stóru ástina í lífi sínu. Orðrómur um samband þeirra fór af stað árið 2013 en þau hafa ekki gefið upp mikið af smáatriðum varðandi sambandið. Enn þann dag í dag reyna þau að láta ekki ná sér saman á mynd, samkvæmt GQ og í greininni er sagt frá því hvernig þau reyna að forðast blaðaljósmyndara með því að mæta hvort í sínu lagi á viðburði. Rapparinn sagðist mjög ánægð- ur í sambandinu. „Ég held að þegar þú vitir það, vitirðu það. Hún er sú eina rétta,“ sagði hann. Parið er víst líka opið fyrir barneignum og Rocky sagðist viss um að hann yrði æðislegur pabbi. Rocky sagði einnig að stór hluti af nýju plötunni hefði verið sam- inn og framleiddur á meðan hann keyrði þvert yfir Bandaríkin með Rihönnu. „Að geta keyrt og ferðast um án þess að það sé einhver kvöð eða vinna, mér finnst það einstök upp- lifun,“ sagði hann. Ekki hefur verið staðfest hvort Rihanna kemur fram á plötunni, en Rocky segir hana hafa haft mikil áhrif á verkefnið og sagði mikilvægt að geta rætt skapandi hugmyndir við einhvern annan til að fá annað sjónarhorn. Rocky sagði að nýja platan væri ástarsaga úr fátækrahverfi og mun þroskaðri en fyrra efni hans. Ekki illa við Svíþjóð Rapparinn ræddi einnig hand- töku sína og fangelsisvist í Svíþjóð árið 2019, sem átti sér stað eftir að hann lenti hann í átökum við aðdáendur. Þar þurfti hann að dúsa í einangrun í mánuð og sagði að það væri líklega það leiðinleg- asta sem væri hægt að hugsa sér. Hann sagði samt að hann hefði heimsótt landið síðan og að hann ætli sér að gera það aftur. Málið vakti athygli Donalds Trump, þáverandi Bandaríkja- forseta, en Rocky sagði að það væri misskilningur að Trump hafi hjálpað til við að frelsa hann. „Hann hjálpaði ekki. Hann reyndi og hann vildi að ég kæmist heim, en hann frelsaði mig ekki,“ sagði rapparinn. ■ A$AP Rocky vinnur með Morrissey A$AP Rocky er að vinna með Morris- sey fyrir nýju plötuna sína. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við: Jóhann Waage Markaðsfulltúi Fréttablaðsins johannwaage@frettabladid.is eða 550-5656 FERÐALÖG INNANLANDS Föstud ginn 4. júní gefur Fréttablaðið út stórt og f ott Ferðaþema. Nú er það undir okkur komið að halda hjólum ferðaþjónustunnar gangandi og vera dugleg að ferðast innanlands í sumar og væntanlega fram á haust. Og þá er það ferðaþjónustunnar að vera dugleg að auglýsa hvað er í boði fyrir hinn almenna ferðamann, tilboð á gistingu, afþreyingu og veitingum. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna da blaði landsins. 4 kynningarblað A L LT 22. maí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.