Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 84
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is n Lífið í vikunni 16.05.21 22.05.21 Vondar fréttir Daði Freyr, Gagnamagnið og þjóðin öll fengu vondar fréttir snemma á miðvikudag þegar Jóhann Sigurður Jóhannsson greindist með Covid-19 og ljóst varð að hópurinn gæti ekki flutt 10 years á sviðinu í Rotterdam. Öll fyrir einn Í kjölfar smitfregnarinnar voru þau boð látin út ganga að í keppninni yrði notast við upptöku af seinni æfingu hópsins. Þá kom fram að Gagnamagnið hefði einungis viljað koma fram allt saman og alls ekki viljað skilja neinn eftir utan sviðs. Pressan heillast Þótt Gagnamagnið hafi eiginlega ekki komið á dómararennslið á miðvikudagskvöld má segja að þeim hafi þó tekist að sjá og sigra, þar sem blaðamenn sem fylgdust með rennslinu töldu þau vera best. Ísland hlaut 68 stig hjá pressunni. Einn kátur í höllinni Á fimmtudaginn upplýsti glað- hlakkalegur Gísli Marteinn á Instagram að hann yrði í stuði og myndi lýsa keppninni beint frá Ahoy-höllinni en ekki hótelher- bergi, enda laus úr sóttkví eftir að hafa staðist Covid-próf í Hollandi. Laufey Helga, ritari FÁSES, telur alls ekki útilokað að Daði og Gagnamagnið geti haft sigur í Eurovision með myndbandsupptöku og er alveg örugg um að Ísland verði meðal þeirra fimm efstu. Hún segir stuðið í keppninni ekki hafa verið jafn mikið síðan hún var haldin í Bakú 2012. thorarinn@frettabladid.is „Það kom ekkert á óvart og við vorum alveg örugg með það,“ segir Laufey Helga Guðmundsdóttir, rit- ari Félags áhugafólks um Söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva, FÁSES, sem efaðist aldrei um að Daði og Gagnamagnið myndu kom- ast áfram í aðalkeppnina í kvöld. Hún er ekki síður bjartsýn fyrir keppnina í kvöld enda hafi reynsl- an af fimmtudagskvöldinu sýnt og sannað að það muni ekki standa Gagnamagninu fyrir þrifum að geta ekki f lutt lagið 10 years í beinni af sviðinu í Rotterdam. Þurfum engin samúðarstig „Ég held alls ekki að við töpum á þessu. Mér fannst upptakan koma rosalega vel út á fimmtudaginn. Sérstaklega vegna þess að hinir almennu sjónvarpsáhorfendur, þessar 200 milljónir, munu aldrei taka eftir því að Daði og Gagna- magnið eru ekki á staðnum.“ Laufey segist þó að sjálfsögðu finna til með Gagnamagninu sem er búið að vinna hart að því, af öllu hjarta, í tvö ár, að komast á sviðið en missa nú af því að „fá þessa ást og finna þennan kærleik“ sem streymi frá áhorfendum þegar lögin eru flutt uppi á sviðinu. „En ég held að þetta komi ekki að sök í keppninni. Einhverjir eru að tala um að við fáum einhver samúð- arstig og ég segi bara: Heyrðu vinur, við þurfum þau bara ekki rassgat.“ Daða faktorinn Laufey segist aðspurð hafa raun- verulega trú á því að Daði og Gagna- magnið geti staðið uppi sem sigur- vegarar. „Ég trúi því innst í hjarta mínu að við eigum séns af því að við eigum alltaf séns. Miði er möguleiki og við erum í úrslitum núna. En spámiðillinn í mér myndi kannski segja að það væri raun- hæfara að við verðum í topp fimm. Við erum með alveg frábært lag sem sker sig mjög mikið úr og á sam- félagsmiðlum er fólk mjög mikið að tala um þennan óútskýrða x-faktor sem Daði og Gagnamagnið hafa. The Daði factor. Bara: Je ne sais quoi, sko. Þarna er bara einhver gríðar- legur Eurovision-sjarmi.“ Grenjaði í viku Laufey er löngu orðin vön því að taka sér í það minnsta tveggja vikna frí í maí og elta fulltrúa Íslands á keppnisstaði en þetta er annað árið í röð sem hún fer hvorki lönd né strönd vegna heimsfaraldursins. „Þetta er orðið bara mjög þreytt, skal ég segja þér. Eurovision brást náttúrlega bara í fyrra þegar keppninni var af lýst. Ég held ég hafi grenjað samfleytt í heila viku, ég skal bara viðurkenna það,“ segir Laufey, sem hefur þangað til núna ekki misst úr keppni frá 2012. „Maður saknar aðallega erlendu Eurovision-fjölskyldunnar og bara andrúmsloftsins sem er alltaf í þeim borgum sem halda Eurovision. Það er alltaf stuð og stemning. Bara alltaf. Það er mjög skrítið að vera heima á Íslandi þegar það er Eurovision en við erum bara búin að vera að gera það besta úr þessu,“ segir hún um Eurovision-gleðina sem hún og félagar hennar í FÁSES hafa haldið gangandi alla vikuna á Kex. „Við erum búin að standa fyrir heljarinnar mikilli dagskrá á Kex og erum bara að reyna að gera það sem við getum til þess að þessi Euro- vision-tími verði svona sem eðli- legastur.“ Gleðin í hámarki Laufey segir tæra Eurovision- gleðina vera við völd, þrátt fyrir áföll, stór og smá, og að hún sé föst í Reykjavík þegar keppnin er í Rotter dam. „Að sjálfsögðu. Gleðin er sko alveg í hámarki, trúðu mér. Og maður er auðvitað voða glaður yfir því að við munum þó hafa lög til að kjósa um í kvöld og við fáum sigurvegara og það verður geggjað. Þetta verður alveg frábær keppni í kvöld. Maður hefur ekki séð svona mikla stuðkeppni bara síðan 2012 í Bakú,“ segir Laufey um keppnina í Aserbaísjan þar sem Gréta Salóme og Jónsi sungu Never Forget fyrir Íslands hönd og Loreen skilaði Svíum sigrinum með Euphoria. „Þeirrar keppni er minnst sem mikillar stuðkeppni enda mikið af hressum lögum, margt „over the top“ og mikið að gerast á sviðinu. Þetta er þannig keppni og það er varla pissupásu að finna í þessari rásröð í kvöld.“ n Mesta stuðið síðan 2012 „Klukkan 19 verða allir tilbúnir með sín stigablöð og það verður svaka fjör,” segir Laufey Helga um kvöldið í kvöld, þegar spennan hjá hennar fólki nær hámarki eftir stanslaust stuð á Kex alla vikuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Einhverjir eru að tala um að við fáum ein- hver samúðarstig og ég segi bara: Heyrðu vinur, við þurfum þau bara ekki rassgat. Laufey Helga Guðmunds- dóttir. 48 Lífið 22. maí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.