Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 20
María Heba Þorkelsdóttir kynntist eiginmanni sínum aðeins tvítug. Hún segir reynslu þeirra af barnsmissi hafa styrkt samband þeirra en María missti barn í móður- kviði árið 2006. Hún segir hjartað slá í leikhúsinu en nýtur þess þó einnig að leika í sjónvarpi. María Heba Þorkelsdóttir Eddu- verðlaunaleikkona fer með stórt hlutverk í sjónvarpsþáttunum Systraböndum sem nýlega voru sýndir í Sjónvarpi Símans. Sagan segir frá því þegar ung stúlka hverf- ur á tíunda áratug síðustu aldar og því hvernig þrjár æskuvinkonur þurfa að horfast í augu við fortíðina þegar mannabein finnast á æsku- slóðum þeirra. María Heba leikur á áhrifamikinn hátt Rut, móður horfnu stúlkunnar, og segist hún ekki hafa þurft að hugsa sig lengi um áður en hún þáði hlutverkið. „Ég vissi f ljótt að þetta væri hlutverk sem ég vildi taka að mér,“ segir María Heba. „Það felst í því stór áskorun sem manni býðst kannski ekki á hverjum degi,“ bætir hún við og vísar til þess að sagan í Systraböndum gerist á tveimur tímabilum. „Það er mjög spennandi að fá að leika sömu manneskjuna á mis- munandi aldri. Svo var ég mjög áhugasöm um að vinna með Silju aftur en ég er búin að þekkja hana í mörg ár,“ segir María Heba. Silja Hauksdóttir er leikstjóri og einn handritshöfundur þáttanna. „Systrabönd eru mikið kvenna- verk og ég hef í gegnum tíðina unnið mikið með konum og í verkefnum tengdum konum,“ segir María Heba sem lærði bæði bókmennta- og kynjafræði í Háskóla Íslands áður en hún hóf nám í leiklist árið 1999. Hún lagði mikla áherslu á femínsk- ar bókmenntir í náminu og segir margt hafa breyst síðan þá. Mikilvægar breytingar „Í öllu samtali um femínisma megum við ekki gleyma því hvað þetta er gamalt kerfi sem við erum að brjóta niður, þetta er árþúsunda gamalt og breytingarnar eru að gerast mjög hratt þó okkur finn- ist þær stundum standa í stað,“ útskýrir María Heba. ,,Það að vera með unga konu sem dómsmálaráð- herra á tímum sem þessum er til dæmis mjög mikilvægt því sjónar- mið kvenna þurfa alltaf að vera inni á borðinu alls staðar og í allri ákvarðanatöku,“ bætir hún við. „Svo sannarlega er ýmislegt sem er ekki í lagi enn þá en við sjáum muninn til að mynda í Systra- böndum þegar við berum saman tvö mismunandi tímabil,“ segir María Heba. En karakter hennar í þáttunum opnar sig um kynferðis- of beldi við lögregluna sem gefur því gaum í rauntíma en ekki þegar ofbeldið á sér stað, á tíunda áratug síðustu aldar. „Hvað varðar svona lögreglumál og skýrslutökur yfir konum sem hafa orðið fyrir ofbeldi eru þessar breytingar gríðarlega mikilvægar. Í Systraböndum finnum við þennan mun þarna á milli, það eru áratugir búnir að líða og það er komin ný dögun og það er nýtt „setup“ á því hvernig við ætlum að tækla hlutina og hvernig við ætlum að koma fram við konu sem er þolandi ofbeldis.“ Barnsmissirinn mikið áfall Í Systraböndum leikur María Heba móður sem missir barnið sitt. Hún segir hlutverkið hafa verið krefjandi á ýmsan hátt en María Heba deilir þeirri upplifun með karakter sínum að hafa misst barn. „Við Kristófer misstum dóttur í móðurkviði í október árið 2006,“ segir María Heba. „Hún var annað barnið okkar en þarna var elsti strákurinn okkar eins og hálfs árs, hún var andvana fædd og ég var gengin rúmar 32 vikur,“ bætir hún við. Ég er ekki bara konan sem missti barnið sitt María Heba fer með hlutverk Rutar í Systraböndum sem nýlega voru sýnd í Sjónvarpi Símans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn @frettabladid.is María Heba var í hefðbundinni mæðraskoðun þegar í ljós kom að dóttir hennar og eiginmanns hennar, Kristófers Dignus leikstjóra, var látin. „Þetta var náttúrlega bara skelfilegt áfall að verða fyrir og eitt- hvað sem markerar mann á ein- hvern hátt,“ segir María Heba. Dóttir þeirra Kristófers fæddist andvana 9. október og á því sama afmælisdag og John Lennon. „Það var sérstaklega dýrmætt fyrir okkur að á eins árs afmælisdaginn hennar var friðarsúlan tendruð í fyrsta skipti. Við fórum litla fjöl- skyldan með strákinn okkar dúð- aðan í kuldagalla niður á Sæbraut og horfðum á það þegar súlan var tendruð,“ segir María Heba sem þykir alltaf vænt um þessa stund. „Mér þykir líka alltaf vænt um að þetta fallega ljós skíni upp til englanna á afmælisdaginn henn- ar,“ segir hún en Friðarsúlan sem stendur í Viðey er tendruð þennan dag ár hvert. Spurð að því hvort reynsla hennar af barnsmissi hafi nýst henni við hlutverk hennar í Systraböndum segir María Heba alla reynslu stækka hana sem listamann en að sem leikkona gráti hún ekki sinn eigin sársauka þegar hún er í vinnunni. „Sem leikari get ég ekki farið og sótt beint í mína reynslu eða minn sársauka þegar ég er að leika. Við Rut deilum þessari reynslu á einhvern hátt en hún er að gráta annað en ég, mín tár á dóttir mín og þau eru alveg heilög,“ útskýrir hún. María Heba segir hlutverkið ekki hafa ýft upp sorg hennar því að í lok dagsins sé leiklist plat. „Þetta er auðvitað ekki eins og hver önnur vinna en samt alltaf plat. Ef ég væri að vinna við að sópa stétt, þá bara sópa ég og geng svo frá kústinum og fer heim. En sem leikari tala ég með minni röddu og nota minn líkama en það er samt plat,“ segir hún. „Þó að mín reynsla kannski hjálpi mér að skilja sorg Rutar þá er það ekki þannig að ég hugsi til dóttur minnar og gráti sem Rut,“ bætir hún við. Tabú að tala um sorg Eftir barnsmissinn upplifði María Heba það að margir ættu erfitt með að tala um sorg og dauðann. Fólk sem hún þekkti vel tók jafnvel sveig þegar það sá hana úti á götu eða vissi ekki hvað það átti að segja þegar það hitti hana. „Öll verðum við fyrir sorg einhvern tímann á lífsleiðinni því það kemst enginn í gegnum lífið án þess að verða bitinn af því og því er í raun alveg merki- legt hvað fólk á erfitt með að tala um sorg,“ segir hún. „Ég get alveg speglað mig í því þegar fólk veit ekki hvað það á að segja við einhvern sem er í sorg af því maður verður svo vanmáttugur. Fólk hræðist það til dæmis að sá sem syrgir fari að gráta eins og það sé það versta sem gæti gerst." Margt hefur breyst varðandi and- vana fæðingar frá því að María Heba og Kristófer misstu dóttur sína. Til að mynda hefur félagið Gleym mér ei verið starfandi frá árinu 2013 en tilgangur þess er að vera til staðar fyrir þau sem missa á meðgöngu eða stuttu eftir fæðingu og veita stuðn- ing og fræðslu. Þá eiga foreldrar sem upplifa fósturlát eftir átján vikna meðgöngu eða andvanafæðingu eftir 22 vikna meðgöngu rétt til fæðingarorlofs. María Heba segir að eftir að hún missti dóttur sína hafi hana vantað staðfestingu á því að dóttir hennar hefði í raun verið lifandi. „Ég heyrði út undan mér að þetta hefði ekki verið raunverulegt og að þetta hefði ekki verið barnsmissir af því hún fæddist ekki lifandi,“ útskýrir hún. „En við setjum ekki sorg einnar manneskju á einhvern mælikvarða við sorg annarrar manneskju því við berum ekki saman sorg. Dóttir mín var sannarlega lifandi og hún var sannarlega barnið okkar,“ segir María Heba. Hún segir sorgina hafa styrkt samband þeirra Kristófers sem hafa nú eignast tvö börn til við- bótar. Eftir missinn var María Heba hrædd við að verða ófrísk á ný en sonur hennar beið að hennar sögn við dyrakarminn, svo spenntur var hann að fá að vera með í þessu lífi. „Ég var í leikferðalagi og við Krist- ófer höfðum ákveðið að byrja að reyna aftur þegar ég kæmi heim, svo bara reyndum við einu sinni og ég sagði honum að ég væri ekki tilbúin. Það þýddi þó ekkert því ég var orðin ólétt,“ segir María Heba og hlær. Með sálufélaganum í 27 ár Kristófer og María Heba hafa verið saman síðan hún var tvítug, eða í tæp þrjátíu ár. Hún kallar hann sálufélaga sinn og segist hafa áttað sig á því f ljótt eftir að leiðir þeirra lágu saman að hann væri maðurinn hennar. „Ung var ég Njáli gefin,“ segir María Heba glettin. Þau Kristófer vinna í sama bransa og hafa unnið saman að mörgum verkefnum. María Heba segir það skapa mikinn skilning þeirra á milli. „Í því felst líka mikill stuðningur varðandi vinnuna sem er frábært í hjónabandi,“ segir María Heba. „Ég hef oft leikið fyrir hann en ég hef líka sagt nei við hann ef ég tel mig ekki rétta manneskju í hlut- verkið,“ segir María Heba en þau unnu meðal annars saman að sjón- varpsþáttunum Fólkið í blokkinni og Áramótaskaupunum árin 2013 og 2015. Þau vinna nú saman að framhaldi þáttanna Jarðarförin mín, þáttum sem nefnast Brúð- kaupið mitt. Þættirnir verða teknir upp í sumar og fer María Heba með hlutverk í þáttunum og Kristófer leikstýrir. Hún segir þau hjónin ekki verða þreytt hvort á öðru þó að þau bæði vinni saman og búi saman. ,,Hann er besti vinur minn og sálufélagi og við höfum alveg gengið í gegnum okkar brekkur á þessum 27 árum sem við höfum verið saman en það er svo langt síðan ég tók ákvörðun um að ég ætlaði að vera með honum að það hefur lítil áhrif á okkar sam- band,“ útskýrir María. „Ég held nefnilega að ástin sé líka ákvörðun. Maður verður yfir sig ástfanginn af einhverjum og það er mikil hrifning en það er ekkert Við Rut deilum þessari reynslu á einhvern hátt en hún er að gráta annað en ég, mín tár á dóttir mín og þau eru alveg heilög. 20 Helgin 22. maí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.