Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 4
Þórunn Svein- bjarnardóttir leiðir framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi Þótt margt hafi gengið betur á Íslandi en annars staðar í barátt- unni við veiruna skulum við ekki gera lítið úr áhrifum sóttvarnaað- gerða og samkomutakmarkana á lífsgæði þeirra sem eru í framhalds- og háskólanámi. Eðlilegt félagslíf hefur ekki verið í boði og síðast liðið ár hefur einkennst af fjarnámi og félagslegri einangrun. n Katrín Atladóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins Hvað veldur því að stelpur hjóla síður en strákar? Konur 25-44 ára eru helmingi ólíklegri til að hjóla en karlar. Stelpur hafa því síður fyrirmynd í mæðrum sínum. Höfða hjólreiðar síður til stelpna? Eru foreldrar síður að hvetja þær til hjólreiða? Eru hjól ætluð stelpum ekki eins þægileg og góð og hjól sem eru ætluð strákum? Eru þau þyngri eða með færri gíra? Hafa þær áhyggjur af því að hjálmurinn rugli hárinu á þeim? n Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Söfn eru einhver öruggasti staður- inn í miðjum heimsfaraldri, það á helst ekki að snerta viðkvæma hluti, auðvelt er í flestum tilfellum að halda 2 metra regluna og sjaldan er múgur og margmenni á söfnum. Söfn eru vin í eyðimörkinni, rólegur staður til að njóta menningar og lista, sögu og fróðleiks, athvarf til að slappa af og anda að sér fersku lofti. n n Tölur vikunnar n Þetta sögðu þau 26.676 ferkílómetrar á Íslandi eru friðlýstir. 13,6 milljónir króna er samanlögð upphæð sekta sem lögreglan hefur rukkað einstaklinga og fyrirtæki um fyrir sóttvarna- brot. 70 prósenta samdráttur varð á losun gróðurhúsalofttegunda frá íslenskum flugrekendum milli 2019 og 2020. 97 milljónir króna er áætlað hæsta tap einstaklings á Íslandi vegna netsvindls. 323 bílaleiguökutæki voru nýskráð í ár. Þau voru aðeins 41 í fyrra. BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND, SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM. ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI RAM 3500 BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK. 9.202.300 KR. M/VSK. UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 Lögmenn Mjólkursam- sölunnar og Ólafs Magnúsar Magnússonar, fyrrverandi eiganda Mjólku, tókust á um fyrningarfrest skaðabótakröfu hins síðarnefnda í héraðsdómi í gær. Málið kemur í kjölfar staðfestingar Hæstaréttar á nærri hálfs milljarðs króna sekt Mjólkursamsölunnar vegna samkeppnisbrota. kristinnhaukur@frettabladid.is DÓMSMÁL Mjólkursamsalan telur skaðabótakröfu Ólafs Magnúsar Magnússonar og félagsins M-500, áður Mjólku, löngu fyrnda. Ólafur telur bótagrundvöllinn hafa orðið til eftir úrskurð dómstóla í stjórn- valdsmáli Samkeppniseftirlitsins og Mjólkursamsölunnar, sem lauk með nærri hálfs milljarðs króna sekt. „Ég trúi ekki öðru en að málið fái efnismeðferð,“ sagði Ólafur við Fréttablaðið í gær, þegar tekist var á um frávísunarkröfu Mjólkur- samsölunnar. Mál Ólafs og M-500 til viðurkenningar skaðabóta var upprunalega höfðað í júlí árið 2020 en þinghaldi frestað á meðan niður- staða kæmist í stjórnvaldsmálið fyrir Hæstarétti. Sú niðurstaða fékkst þann 4. mars, þegar Hæstiréttur staðfesti dóma héraðsdóms og Landsréttar. Var Mjólkursamsalan sektuð um 440 milljónir fyrir brot á sam- keppnislögum og um 40 milljónir fyrir að leyna gögnum. Ólafur segir helstu áskorunina að fá skorið úr um gildissvið búvöru- laga og samkeppnislaga og að Hæstiréttur hafi tekið stjórnvalds- málið inn til að skera úr um þetta atriði. „Við urðum að fá fullvissu um að þetta væri brot,“ segir hann. Í þinghaldinu hélt Sigurður Ágústsson, lögmaður Mjólkursam- sölunnar, því fram að hvorki Ólafur né M-500 hefðu hagsmuni af því að fá bótaábyrgð viðurkennda, því að óhjákvæmilega myndu koma pen- ingakröfur í kjölfarið og þær væru fyrndar. „Það hefur ekkert upp á sig fyrir sækjendur að að sækja þessa kröfu,“ sagði hann. Sagði hann fyrningarfrestinn hafa hafist þegar Ólafur fékk vitn- eskju um mögulegt brot. Það er, fékk senda kreditnótu fyrir hrámjólk árið 2012 og sendi í kjölfarið bréf til Samkeppniseftirlitsins í janúar árið 2013. En í bréfinu stóð að Mjólkur- samsalan rukkaði Ólaf um 17 pró- sentum hærra verð. Frestinum hefði þá verið lokið fjórum árum síðar, í janúar árið 2017. Ef fresturinn hefði ekki hafist í janúar 2013 þá hefði hann hafist í mars 2014, þegar lögmaður Ólafs greindi Samkeppniseftirlitinu frá hundraða milljóna króna tjóni í bréfi, eða við ákvörðun Samkeppn- iseftirlitsins í september sama ár. Hróbjartur Jónatansson, lögmað- ur Ólafs, benti á það fyrir dómi að í tvígang hefði áfrýjunarnefnd snúið við úrskurðum Samkeppniseftir- litsins og málið hefði dregist vegna aðgerða Mjólkursamsölunnar, það er, að leyna upplýsingum. Bóta- grundvöllurinn hefði ekki verið til staðar fyrr en með dómi héraðs- dóms í maí árið 2018, og málshöfð- unin því innan fyrningarfrests. Aðspurður um sættir segir Ólafur að þær hafi verið ræddar til mála- mynda. „Við höfum verið tilbúin til sátta en ég veit ekki með þá,“ segir hann. „Ef ég þekki mína menn í Mjólkursamsölunni rétt mun þetta taka einhvern lengri tíma fyrir dómstólum.“ n Deilt um fyrningu á skaðabótakröfu Ólafs á hendur Mjólkursamsölunni Hæstiréttur staðfesti 480 milljóna króna sekt Mjólkursamsölunnar í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Ef ég þekki mína menn í Mjólkursamsölunni rétt mun þetta taka einhvern lengri tíma fyrir dómstólum. Ólafur Magnús Magnússon, fyrrverandi eigandi Mjólku og Mjólkurbúsins 4 Fréttir 22. maí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.