Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 44
Vegna aukinna verkefna viljum við fá fleira gott fólk
til liðs við okkar öfluga hóp burðarvirkjahönnuða.
Starfið felur í sér burðarvirkjahönnun í verkefnum
tengdum margskonar mannvirkjum s.s. opinberum
byggingum, skólabyggingum, íþróttahúsum,
flugstöðvarbyggingum, virkjunum, samgöngu-
mannvirkjum, iðnaðarhúsum og verslunum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í byggingarverkfræði eða byggingar-
tæknifræði með sérþekkingu í hönnun burðarvirkja
• Reynsla af hönnun burðarvirkja
• Þekking á BIM-aðferðafærðinni og notkun líkana
við hönnun er kostur
• Reynsla í notkun hönnunar- og teikniforrita,
t.d. Revit og Tekla
• Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli
• Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar, metnaður,
frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Nánari upplýsingar veita:
Elín Greta Stefánsdóttir mannauðsstjóri, egs@verkis.is
Áslaug Ósk Alfreðsdóttir, sérfræðingur í mannauðs-
málum, aoa@verkis.is
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí. Sótt er um á
umsokn.verkis.is
Hjá Verkís starfa yfir 300 manns að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Starfsfólkið hjá
Verkís myndar sterka liðsheild sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu og getur tekist á við krefjandi
verkefni. Við leggjum okkur fram við að tryggja starfsfólki okkar góðan og eftirsóknarverðan
vinnustað þar sem hver og einn nær að nýta hæfileika sína og þekkingu sem best.
VIÐ ERUM STERK LIÐSHEILD
Burðarvirkjahönnuður
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í fullt
starf. Framkvæmdastjóri sinnir margvíslegum verkefnum í umboði forstöðumanns, m.a. annast
hann daglegan rekstur Tilraunastöðvarinnar, sér um aðföng, skrifstofu- og starfsmannahald,
vinnur að gerð fjárlagatillagna og framkvæmd fjárhagsáætlana og hefur eftirlit með fjárreiðum
stofnunarinnar. Einnig hefur hann umsjón með viðhaldsverkefnum og öðrum framkvæmdum.
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum er háskólastofnun sem tengist læknadeild en hefur sérstaka
stjórn og sjálfstæðan fjárhag. Starfsemin er fjölþætt og aðferðum margra fræðigreina er beitt í rannsóknum og
þjónustu. Upplýsingar um hlutverk og starfsemi Keldna er að finna á www.keldur.is. Hlutverkið er tilgreint með
lögum nr. 67/1990 og lögum nr. 50/1986.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2021.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Ingvarsson – siguring@hi.is – 585 5123. Sótt er um starfið á starfatorg.is.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af fjármálaverkefnum og rekstri, þar á meðal áætlanagerð
• Leiðtogahæfni og stjórnunarreynsla, reynsla í stefnumótun og framfylgd stefnu
• Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði.
Þekking á fjárhags- og mannauðsupplýsingakerfum er kostur
• Geta til að tjá sig í ræðu og riti bæði á íslensku og ensku
• Reynsla af störfum í akademísku- og rannsóknamiðuðu umhverfi er æskileg
• Reynsla af verklegum framkvæmdum er kostur
• Góð samstarfshæfni og rík þjónustulund
FRAMKVÆMDASTJÓRI AÐ KELDUM
Mennta- og menningarmálaráðuneyti
leitar hér með eftir tilnefningum
æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka
um fulltrúa í Æskulýðsráð fyrir
tímabilið 1. júlí 2021 - 31. desember
2022 sbr. reglugerð nr. 1088/2007 um
skipan fulltrúa í Æskulýðsráð.
Tilnefna skal konu og karl til setu í
Æskulýðsráði til tveggja ára. Í
tilnefningunni skal koma fram vilji
tilnefndra einstaklinga til að taka
að sér setu í Æskulýðsráði. Með
tilnefningu skal fylgja yfirlit yfir
reynslu og þekkingu tilnefndra á
starfi æskulýðsfélaga eða
æskulýðssamtaka og yfirlýsing um að
viðkomandi uppfylli ákvæði 10. gr.
æskulýðslaga nr. 70/2007.
Tilnefningar þurfa að berast mennta-
og menningarmálaráðuneyti
Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík, í
síðasta lagi 14. júní 2021 á netfangið
mrn@mrn.is
Tilnefning í
Æskulýðsráð
14 ATVINNUBLAÐIÐ 22. maí 2021 LAUGARDAGUR