Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 39
stod2.is Andrými er yfirskrift sýn­ ingar í sýningarýminu Glettu í Hafnarhúsinu á Borgarfirði eystri. Þar sýna Anna Hallin, Inga Þórey Jóhannsdóttir, Kristín Reynisdóttir og Olga Bergmann verk sín. Andrými er önnur sýningin í þriggja sýninga röðinni Super­ structure, sem ´uns skipuleggur á Borgarfirði eystri. Guðrún Benón­ ýsdóttir, sýningarstjóri sýningar­ innar, er eigandi ´uns, sem byrjaði sem bókverka útgáfa en í framhaldi fór hún að þróa sýningarstefnu og hefur skipulagt sýningar á ýmsum stöðum, þar á meðal í Berlín þar sem hún hefur búið og starfað sem myndlistarmaður. „Þetta verkefni mitt er á sífelldri hreyfingu og hefur núna fundið sér stað á Borgarfirði eystri og þar sem ég bý á meðan sýningarnar standa yfir,“ segir hún. Skúlptúr sem hugmynd Fyrsta sýningin í Superstructure­ röðinni var Endaleysa, samsýning listamannanna Elísabetar Bryn­ hildardóttur, Eyglóar Harðardótt­ ur og Guðrúnar Benónýsdóttur. Seinasta sýningin í röðinni verður í lok júlí, en þá sýna þau Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar og Esteban Rivera. Listamennirnir fjórir sem eiga verk á sýningunni Andrými unnu þau sérstaklega fyrir sýningarýmið. Á sýningunni er að sjá skúlptúra og teikningar. „Sýningarstaðurinn, Hafnar­ húsið, er skúlptúr í sjálfu sér, mjög nútímaleg, steinsteypt bygging staðsett í fallegu sveitaumhverfi og hefur verið tilnefnt til arki­ tektúrverðlauna,“ segir Guðrún. „Þar má segja að form, ljós og efni móti heildrænan strúktúr. Áhersla þessarar sýningar er að skoða skúlp­ túrinn sem hugmynd um rými sem geta verið bæði efniskennd eða flöktandi, jafnvel andleg.“ Heimili og flug Verk Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur, Út fyrir efnið, er unnið út frá hug­ myndum um heimilið og þau efni Form, ljós og efni Hér sjást verk eftir Önnu Hallin, Ingu Þóreyju Jóhannsdóttur og Olgu Bergmann. MYND/AÐSEND Verk Kristínar Reynisdóttur er samsetning sjö hringforma. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is kolbrunb@frettabladid.is Óperetta valsakóngsins Johanns Strauss, Nótt í Feneyjum, er verk­ efni óperudeildar Söngskóla Sig­ urðar Demetz í ár. Leiðbeinandi og leikstjóri deildarinnar er Þorsteinn Bachmann. Óperettan verður sýnd tvisvar í Vonarsal SÁÁ, sunnu­ daginn 30. maí, klukkan 17.00 og klukkan 19.30. Verkið hefur verið aðlagað nútím­ anum og tekið er mið af þörfum nemendanna. Leikurinn gerist nótt eina í Feneyjum þar sem haldinn er mikill grímudansleikur langt fram á nótt. Allt gengur kaupum og sölum og meira að segja ástin og helgustu tilfinningar manna og kvenna virð­ ast falar fyrir rétta upphæð. Antonía Hevesi er tónlistarstjóri deildarinnar í vetur og leikur með söngvurunum á píanóið á sýning­ unum næsta sunnudag. Hrafnhildur Eva Guðmundsdóttir leiðbeinir í dansatriðum og sviðshreyfingum. Verkefnastjórn var í höndum skóla­ stjóra Söngskóla Sigurðar Demetz, Gunnars Guðbjörnssonar. Miða­ pantanir fást með því að senda póst á netfangið gunnar@songskoli.is. n Nótt í Feneyjum Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz flytur Nótt í Feneyjum. kolbrunb@frettabladid.is Stórsveit Reykjavíkur heldur tón­ leika í Flóa, Hörpu, á morgun, föstu­ daginn 28. maí, klukkan 20. Um er að ræða árlega tónleika undir yfir­ skriftinni Ný íslensk tónlist. Níu verk verða frumflutt. Höfundar í ár eru: Ari Bragi Kárason, Elvar Bragi Kristjónsson, Guðmundur Péturs­ son, Hafdís Bjarnadóttir, Kjartan Valdemarsson, Samúel J. Samú­ elsson, Stefán S. Stefánsson, Úlfar Ingi Haraldsson og Úlfur Eldjárn. Samúel J. Samúelsson stjórnar. n Ný íslensk tónlist sem mikilvægt er að taka með sér þegar flutt er á nýjan stað. Í skúlptúr hennar sameinast frumefnin í formi framandi borðspils á meðan þula les breytingar á leikreglum aftur og aftur í vídeói og hljóðverki. Loft­ myndir, verk Önnu Hallin, er röð blekteikninga sem sækja innblástur í loftmyndir af f lugmannvirkjum og hinum ýmsu tengingum á milli þeirra. Hún veltir fyrir sér brottflugi og aðflugi í loftrýminu og vegakerf­ inu sem mótað er í svörðinn. Olga Bergmann sýnir samsettan skúlptúr úr einingum sem eru unnar úr fundnu efni, aðallega trjá­ bolum sem hún hefur hirt í görðum þar sem tré hafa verið felld, eða fundið á haugunum eftir að trjánum hefur verið fleygt. Verkið, sem nefn­ ist Paradox, fjallar um þá þversögn sem felst í manngerðri náttúru og skoðar skynjun okkar og skilning á náttúrunni og hvernig sú upplifun er klippt og skorin. Verk Kristínar Reynisdóttur Endurvarp er samsetning sjö hring­ forma sem mynda súlu. Hringurinn, hin endalausa lína, mótar rými þar sem efnið endurvarpar umhverfinu til áhorfandans. Hugmyndin er frá upplifun listamannsins frá göngu sólríkan sumardag sumarið 2020 að Dyrfjöllum. Sýningin stendur til 24. júní og er opin alla daga vikunnar á milli klukkan 12.00 og 16.00. n Menning 23FIMMTUDAGUR 27. maí 2021

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.