Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 2
Gulir dagar í Reykjavík Mazdack Rassi og Mark Burnett við Vogafjós í Mývatnssveit. MYND/INSTAGRAM Söngvari Dimmu og leiðsögu- maðurinn Stefán Jakobsson fór með hóp af stórstjörnum ofan í Lofthelli í Mývatns- sveit. Á morgun stígur Stefán loks aftur á svið í Bæjarbíói og segist varla geta beðið. benediktboas@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA „Ég kann betur við að fara á bíl upp í helli því þá getur maður kynnst hópnum betur áður en maður fer ofan í hellinn. Það er lítið hægt að ræða saman um borð í þyrlu,“ segir Stefán Jakobsson, söngvari þungarokkshljómsveitar- innar Dimmu og leiðsögumaður í Mývatnssveit. Stefán fór með hóp af stórstjörn- um ofan í Lofthelli. Þar voru á ferð Orlando Bloom, sem lék meðal ann- ars Legolas í Hringadróttinssögu, Mark Burnett, sem er hugmynda- smiður að flestum bestu sjónvarps- þáttum síðari ára, Mazdack Rassi, eigandi Milk Studios, og snjóbretta- kappinn Trevor Jacob. Lofthellir er 3.500 ára hraun- hellir í óbyggðum Mývatnssveitar. Fór hópurinn þangað með þyrlu frá Vogafjósi. Samkvæmt Instagram- reikningi stjarnanna skemmtu þeir sér vel. Stefán hefur verið leiðsögu- maður lengi og farið með margar stórstjörnur ofan í Lofthelli, sem er ísilagður allt árið um kring. Daginn eftir að Hollywood-stjörnurnar kvöddu fór hann með 10. bekk Odd- eyrarskóla ofan í hellinn. „Ég er öllu vanur í þessu. Einu sinni var ég að hita upp fyrir Slash með fulla Laugardalshöll að kyrja með mér í söng en daginn eftir var ég að spila á jólakökuhlaðborði eldri borgara í Þingeyjarsveit. Þetta eru öðruvísi verkefni en bæði skemmti- leg,“ segir Stefán. Talandi um þungarokk þá mun Stefán stíga loks aftur á svið með Dimmu á morgun og halda tónleika í Bæjarbíói. Dimma gaf út plötuna Þögn fyrir skömmu og blæs loks í rokklúðurinn fyrir áhorfendur. „Þetta er skrýtin tilfinning sem kraumar í maganum. Það er eigin- lega eins og ég sé að fara að gera eitt- hvað ólöglegt,“ segir Stefán og hlær. Söngvarinn hefur nýtt Covid-tím- ann til að gera upp bílskúrinn sinn í Mývatnssveit og hugmynd fæddist þegar Menningarfélag Akureyrar var í óvissuferð um sveitina. „Þau voru að fara í Jarðböðin en vantaði smá uppfyllingu þannig að ég blés í tónleika heima í skúr sem heppnuðust vel. Svo vel að ég er byrjaður að vinna að því að hafa tónleika þar einu sinni í viku í sumar. Ef fólk er á ferðalagi hér í sveitinni og vill kíkja á tónleika, þá er það í boði, enda er þá afskaplega stutt í vinnuna,“ segir Stefán. ■ Sýndi Hollywood-stjörnum ofan í undraheim Lofthellis Þetta er skrýtin tilfinn- ing sem kraumar í maganum. Það er eiginlega eins og ég sé að fara að gera eitthvað ólöglegt. Stefán Jakobs- son, söngvari Dimmu og leið- sögumaður. AÐALFUNDUR Aðalfundur Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra verður haldinn í húsnæði félagsins að Háaleitisbraut 13, fimmtudaginn 3. júní kl. 17,00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við 4. gr. í skipulagsskrá Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Stjórnin Sólin skín glatt þessa dagana á landsmenn og því kannski viðeigandi að í Austurstræti voru vaskir kappar að hengja línu með gulum veifum yfir götuna. Þótt áfram verði sólríkt í dag mun sú gula hverfa sjónum á suðvesturhorninu á morgun og vætutíð taka við um helgina – ef marka má Veðurstofu Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI gar@frettabladid.is SKIPULAGSMÁL Bæjarstjórn Kópa- vogs hefur samþykkt að breyta skipulagi fyrir miðbæjarsvæði Hamraborgar. Fram kemur í fundargerð bæjar- stjórnar að gert sé ráð fyrir niðurrifi þriggja bygginga fyrir atvinnuhús- næði sem alls sé 5.300 fermetrar á mest fjórum hæðum og byggja í staðinn nýtt húsnæði á allt að tólf hæðum. Á svæðinu verði allt að 270 íbúðir ásamt verslun og þjónustu. Áætlað sé að byggingarnar verði alls 18 þúsund fermetrar. Margir hafa barist hart gegn breytingunni, meðal annars á Facebook-síðunni Vinir Hamra- borgar. „Verktakamenning Kópa- vogs hefur enn og aftur lagt íbúa þessa bæjar að velli,“ segir á síðunni um nýja skipulagið. ■ Umdeilt miðbæjarskipulag samþykkt Í Fannborg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Gert er ráð fyrir allt að 270 nýjum íbúðum í miðbæ Kópavogs. gar@frettabladid.is KALIFORNÍA Að minnsta kosti átta létust í árás byssumanns við létt- lestarstöð í San Jose í Kaliforníu í gær. Haft var eftir lögreglu að byssu- maðurinn hefði stytt sér aldur eftir ódæðið. Margir eru sagðir særðir. Fram kom í fjölmiðlum vestan hafs að árásarmaðurinn hafi verið 57 ára starfsmaður samgönguyfir- valda í Santa Clara dal. Hann lét til skarar skríða er verið var að opna léttlestakerfið að morgni dags. Ráðamenn í Bandaríkjunum, þar á meðal Joe Biden forseti, voru í gær upplýstir um atburðarásina í San Jose. „Heimavarnaráðuneytið stendur á hverjum degi frammi fyrir alvarlegum og öflugum ógnunum við öryggi þjóðarinnar,“ sagði Alej- andro Mayorkas heimavarnaráð- herra á blaðamannafundi. „Þetta er hryllilegur dagur fyrir borgina okkar,“ sagði Sam  Licc- ardo, borgarstjóri San Joseid. Sagði hann alla finna til með fjölskyldum og vinnufélögum þeirra sem létu lífið. ■ Skaut átta til bana í Kaliforníu í gær Sorg ríkir í San Jose. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 2 Fréttir 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.