Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 35
Hin fimmtán ára gamla
Olivia Moultrie hafði betur
fyrir dómstólum gegn banda-
rísku NWSL-deildinni og fær
undanþágu frá aldurstak-
mörkum deildarinnar. Hún
er ein af efnilegustu knatt-
spyrnukonum heims en hefur
verið föst í unglingaliðum.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Olivia Moultrie sem er
ekki nema fimmtán ára gömul
heldur áfram að ryðja veginn fyrir
komandi kynslóðir knattspyrnu-
kvenna. Í vikunni tókst henni að fá
reglum NWSL-deildarinnar, banda-
rísku kvennadeildarinnar, um lág-
marksaldur breytt, svo að hún gæti
samið við félög í deildinni. Alríkis-
dómstóll í Portland komst að þeirri
niðurstöðu að reglan stæðist ekki
jafnréttissjónarmið og skyldi felld
niður til tveggja vikna á meðan
framtíðarlausn væri fundin, enda
væru félögin í deildinni tilbúin að
afnema hana.
„Ef ég væri frönsk, spænsk eða
þýsk væri mér heimilt að leika
knattspyrnu núna. Það eina sem ég
vil er að fá sama tækifæri og knatt-
spyrnumenn fá alls staðar í heimin-
um, meðal annars í Bandaríkjunum,
og sama tækifæri og knattspyrnu-
konur fá alls staðar í heiminum,
nema hér,“ sagði Moultrie þegar
dómstólar tóku málið fyrir.
Þrettán ára gömul tilkynnti
Moultrie að hún hefði ákveðið að
gerast atvinnukona og skrifaði
undir langtímasamning við Nike.
Stuttu seinna var hún komin í aka-
demíu Portland Thorns og gat tekið
þátt í æfingaleikjum með aðalliði
félagsins en barátta hennar fyrir
því að geta gerst atvinnumaður
hefur staðið yfir í tvö ár. Samkvæmt
stofnsamningi NWSL-deildarinnar
þurfa leikmenn að hafa náð átján ára
aldri til að fá leikheimild. Til saman-
burðar er engin slík regla til staðar
í MLS-deildinni, karladeildinni í
Bandaríkjunum. Frægt var þegar
Freddy Adu skrifaði undir samning
fjórtán ára árið 2004.
Þá var Alphonso Davies, leik-
maður Bayern München, ekki orð-
inn sextán ára gamall þegar hann
lék fyrsta leik sinn fyrir Vancouver
Whitecaps og á síðasta ári lék Erik
Duenas fyrsta leik sinn í MLS rétt
fyrir sextán ára afmælisdag sinn.
Um leið gera reglur Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins hinni fimmtán
ára gömlu Moultrie erfitt fyrir að
semja við lið erlendis, enda er bann
við slíkum skiptum undir átján ára
aldri nema þau standist ákveðnar
undanþágur frá reglunni. Hægt er
að sækja um undanþágu frá regl-
unni ef skiptin eiga sér stað innan
Evrópusambandsins, ef foreldrar
Táningsstúlka sem ryður veginn vestanhafs
Moultrie í
æfingaleik með
Portland Thorns
gegn OL Reign
fyrr á þessu ári.
Hún gæti fengið
eldskírn sína í
NWSL-deildinni
á næstu vikum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Olivia er ein af efni-
legustu knattspyrnu-
konum heims og um
leið er hún ótrúlega
metnaðargjörn.
Dagný Brynj-
arsdóttir
viðkomandi eru að flytja til tilheyr-
andi lands óháð skiptum leikmanns
í knattspyrnu, eða ef um er að ræða
nágrannaríki. Moultrie getur því
ekki samið við lið erlendis og var
því föst í unglingaliðum í Bandaríkj-
unum en nú ætti hún að geta fengið
eldskírn sína í deildinni á næstunni.
„Fjölskyldan hennar flytur með
henni til Portland þrettán ára gam-
alli til þess að hún geti æft með Port-
land Thorns og akademíunni hjá
félaginu. Það vantaði aðeins upp á
líkamlegan þroska í fyrstu, sem var
eðlilegt, enda var hún bara þrettán
ára en það sást alveg að tæknilega
var hún mjög góð. Svo þegar líða tók
á árið sá maður gríðarlegar framfarir
hjá henni og hún er búin að vera að
æfa með liðinu síðan þá,“ segir lands-
liðskonan Dagný Brynjarsdóttir sem
æfði með Oliviu hjá Portland Thorns.
„Olivia er ein af efnilegustu knatt-
spyrnukonum heims og um leið er
hún ótrúlega metnaðargjörn. Hún
er um leið að spila upp um tvo ald-
ursflokka í ótrúlega sterkum yngri
landsliðum Bandaríkjanna. Ég veit
ekki hvort að hún færi endilega strax
að spila í NWSL enda enn þá bara
fimmtán ára, en það verður gaman
að sjá hana taka þetta skref .“ n
Arkitektar óskast
til að hanna með okkur
vinnustað framtíðarinnar
Nýjar höfuðstöðvar
Við leitum að arkitektum til að skapa með okkur
vinnustað framtíðarinnar – vinnustað sem veitir
innblástur og uppfyllir fjölbreyttar þarfir starfsfólks.
Nýjar höfuðstöðvar okkar munu rísa á Flugvöllum 1
í Hafnarfirði og við stefnum á flutning fyrir lok árs 2023.
Óskað er eftir frumhugmyndum og skissum sem skal
skila eigi síðar en 21.júní nk.
Hefur þú áhuga? Sendu tölvupóst á hq@icelandair.is
og við sendum þér nánari upplýsingar.
icelandair.is
Íþróttir 19FIMMTUDAGUR 27. maí 2021