Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 24
Gísli Jafetsson
er fararstjóri og
skipuleggjandi
ferða fyrir eldri
borgara.
MYND/AÐSEND
Þórshöfn í Færeyjum. Íbúar eru höfðingjar heim að sækja, segir Gísli.
Ferðaskrifstofa eldri borgara
hefur skipulagt sérhann
aðar ferðir fyrir fólk 60+.
Ferðirnar eru til Færeyja,
Grænlands og aðventuferðir
til Kaupmannahafnar, sem
hafa verið mjög vinsælar.
Ferðaskrifstofa eldri borgara starf-
ar undir hatti Niko ehf. Markmiðið
er að bjóða upp á áhugaverðar
ferðir á spennandi áfangastaði sem
henta vel eldra fólki. Meðal þeirra
áfangastaða sem boðið er upp á eru
Færeyjar en ein slík ferð var farin
í byrjun maí með Norrænu. Mikil
ánægja var með ferðina, að sögn
Gísla Jafetssonar fararstjóra, en
þetta var fyrsta hópferðin á Covid-
tímum. „Í ferðinni var farin hring-
ferð um Ísland ásamt því að aka
um Færeyjar. Ekið var frá Reykjavík
norðurleiðina til Seyðisfjarðar þar
sem stigið var um borð í Norrænu.
Í Þórshöfn var gist á nýju hóteli,
Brandan, og var tveggja rétta
kvöldverður og skoðunarferðir
innifalið í verðinu. Í bakaleiðinni
var ekið suðurleiðina til Reykja-
víkur. Færeyingar eru höfðingjar
heim að sækja,“ segir hann.
Næsta ferð verður farin um
mánaðamót júní/júlí en í þeirri
ferð verður flogið út með Atlantic
Airways. Eins og í fyrri ferðinni er
næstum allt innifalið og gist verður
á sama hótelinu. Þetta verður fimm
daga ferð og verður önnur eins
ferð farin í ágúst. Mikill áhugi er
á þessum ferðum,“ segir Gísli og
bætir við að ferðaskrifstofan reyni
að sérhæfa þessar ferðir að áhuga,
þörfum, ánægju og getu fólks á
þessum aldri.
Gísli er fólki innan handar alla
ferðina sem fararstjóri. Þriðja
ferðin verður farin í ágúst og síðan
verður önnur ferð með Norrænu í
október. „Við gistum alltaf á sama
hótelinu en síðan er farið í dags-
ferðir. Ef áhuginn verður mikill
getum við fjölgað ferðum,“ segir
hann.
Ferðaskrifstofa eldri borgara
býður jafnframt upp á ferðir til
Grænlands en mikill áhugi hefur
verið á þeim ferðum. Uppselt
er í fyrstu ferðina en önnur ferð
verður farin í september. „Þetta eru
fjögurra daga ferðir sem eru mjög
spennandi og greinileg eftirspurn
eftir,“ segir Gísli.
Loks má nefna hinar geysi-
vinsælu aðventuferðir til Kaup-
mannahafnar sem margir þekkja
enda verið farnar í mörg ár. „Fjórar
Færeyjar fyrir eldri borgara
aðventuferðir verða farnar að þessu
sinni í nóvember og desember. Við
erum með á döfinni ferðir til Pét-
ursborgar en það er enn óvissa með
þær vegna Covid,“ segir Gísli. n
Til að nálgast frekari upplýsingar
um ferðirnar er hægt að fara inn á
heimasíðuna: ferdaskrifstofaeldri-
borgara.is.
Ferðaskrifstofa eldri borga er
með Facebook-síðu. Sömuleiðis
er hægt að senda póst á hotel@
hotelbokanir.is eða hringja í síma
783 9300.
Bergþór Skúlason, tölvunar
fræðingur hjá Fjársýslu
ríkisins fór með fjölskyld
unni í ógleymanlega ferð
til Alhambra á SuðurSpáni
fyrir tuttugu árum. Alla tíð
síðan hefur höllin og allt það
sem hún stendur fyrir verið
Bergþóri ofarlega í huga.
johannamaria@frettabladid.is
Alhambra er glæsileg höll og virki í
Granada í Andalúsíuhéraði á Spáni.
Byggingin er þekkt fyrir að vera
síðasta valdasetur múslímskrar
menningar á Spáni. Upphaflega
var um að ræða virki sem var byggt
af Rómverjum árið 889. Á 13. öld
reis upp úr rústum þess músl-
ímsk höll byggð af Mohammed
ben Al-Ahmar, af Nasrid Granada
furstadæminu. Árið 1333 var höll-
inni breytt í konungshöll af Yusuf
I., soldáni Granada. Eftir að kristnir
menn tóku yfir svæðið 1492 urðu
hýbýlin að konunglegum vistar-
verum Ferdinands og Ísabellu og
var höllunum breytt að hluta til í
endurreisnarstíl. Karl I. af Spáni
lét svo árið 1526 byggja við höllina
nýja endurreisnarhöll í fullkominni
andstöðu við andalúsískan Nasrid-
arkitektúr.
„Ég vinn við rekstur tölvu-
kerfa en þar fyrir utan er ég mikill
áhugamaður um heimspeki og
pólitík. Uppáhaldið mitt er að lesa
hugmyndasögu þar sem heimspeki,
stjórnmál og vísindi mætast. Það
er svo áhugavert að velta fyrir sér
hvernig fólkið upplifði veröldina í
gamla daga. Hvað var fólk að fást
við? Hvernig urðu nútímavísindi
til? Saga Alhambra tengist sam-
einingu Spánar, landafundunum
og gríðarlegum umbrotatímum
sem áttu sér stað í sögu Spánar.
Ég sá þetta allt fyrir mér þegar ég
gekk um þessar fallegu hallir og
líka núna þegar ég hugsa til baka,
hvernig þetta mætist allt í sögu
svæðisins, arkitektúrnum, fólkinu
og öllum þessum smáatriðum,“
segir Bergþór.
Dagsferð sem enginn sá eftir
Fjölskyldan var stödd í sumarfríi
í húsi á Torrevieja-svæðinu fyrir
tuttugu árum. „Við fórum í dagsferð
til Alhambra. Ég kannaðist aðeins
við staðinn enda er þetta einn af
frægustu stöðum á Spáni. Foreldrar
mínir heimsóttu höllina á sínum
tíma og voru mjög hrifin. Einnig er
ég mikill tónlistaráhugamaður og
það er til gullfallegt gítarverk sem
nefnist Minningar frá Alhambra.
Svo þegar internetið kom gat maður
farið að sjá myndir frá staðnum.
Frá Torrevieja er um 3-4 klukku-
stunda akstur til Alhambra, sem er
náttúrulega frekar langt fyrir dags-
ferð, en við lögðum þetta á okkur.“
Fjölskyldan sá þó síður en svo eftir
þessum langa akstri enda er um að
ræða eitt glæsilegasta og einstæð-
asta dæmi um íslamska byggingar-
list og afríska menningu sem finnst
í hinum vestræna heimi.
Auðir fletir spegla tóma huga
„Fyrir mína parta, það sem ég
upplifði þegar ég skoðaði höllina,
var ástríðan. Það sem slær mann
fyrst eru öll þessi smáatriði, það eru
engir auðir fletir í þessum íslamska
kúltúr. Við Vesturlandabúar, með
okkar mínímalisma og tómu fleti,
sem endurspegla fátt annað en
tóma huga og dauðar sálir, erum
eins og andstæðan við þennan
íslamska kúltúr.
Þarna eru ótrúlega fín mynstur
skorin og hoggin út í veggina. Það er
þessi gríðarlega virðing fyrir smáat-
riðum. Fegurðin er í smáatriðum en
ekki stærðinni. Hallirnar og salirnir
í Alhambra eru ekki stór. Þarna er
allt lítið og elegant. En þegar við
förum aftur í kristna, vestræna
menningu þá er ekkert nema risa-
stórir salir og geymar. Hönnunin
í Alhambra, eins og ég upplifði
hana, var að þetta væru vistarverur
hannaðar fyrir fólk, það hefur farið
vel um fólkið sem bjó þarna. Svo má
ekki gleyma samspilinu við nátt-
úruna. Það er allt svo opið gagnvart
náttúrunni, en náttúran þarna er
bæði aðgengileg og þægileg enda
hlýtt í veðri og landslagið fallegt,“
segir Bergþór.
Miðalda-Trump
Alhambra-höllin stendur í miðju
þorpi. „Þegar kalífaveldið fer að
hrynja á Suður-Spáni og kristna
liðið kemur frá Norður-Spáni,
kristnir barbarar af verstu gerð;
hvað gera þeir þegar þeir ná yfir-
höndinni? Jú, þeir byggja hund ljóta
höll í miðju þorpinu, eins og til að
undirstrika að nú séu komnir nýir
yfirmenn.
Þetta er rosalega Trump-leg
og groddaraleg aðferðafræði.
Þarna mætast hinn kristni hroki
og músl ímski elegansinn á svo
sláandi máta. Þetta er ekki bara
ný hugmyndafræði að taka yfir,
heldur sýnir þetta svo mikinn
hroka, frekju og yfirgang. Músl-
ímsk menning hafði verið ráðandi
á Suður-Spáni í 800 ár, og kom með
márískum þjóðflokkum frá Afríku.
Kristnin hefur ekki verið ráðandi
á svæðinu nema í 500 ár. Afrísku
áhrifin eru sem betur fer ekki alveg
horfin af svæðinu því ef vel er að
gáð má greina þau víða í menn-
ingunni og matnum á svæðinu.
Sums staðar hefur þetta blandast
afar undarlega og annars staðar
aðeins betur.
Það má samt ekki gleyma því
þegar gengið er um þessar hallir í
Alhambra og maður dáist að öllu
þessu handverki og lúxus, hvað
það hefur farið vel um fólkið, að
ástæðan fyrir því að þetta er allt
saman til er sú að þetta var allt
smíðað og skorið út af þrælum, líkt
og nánast allar frægustu byggingar
sögunnar.
Þegar maður kemur inn á svona
staði þá finnur maður bókstaflega
fyrir pólitíkinni, bæði þeirri sem
var og þeirri sem er í dag og hugur-
inn reikar frjáls yfir í listir og jafnvel
tilgang lífsins. Það helsta sem við
getum kannski lært af þessu er
hve mannvænar þessar byggingar
eru. Hvernig stendur á því að við á
Íslandi sem eigum glás af peningum
framleiðum svona ljótar byggingar
og persónuleikalausan arkitektúr?“
spyr Bergþór.
Töfrar Suður-Spánar
„Suður-Spánn er líka gífurlega
skemmtilegt svæði og Sierra
Nevada-fjallgarðurinn er ótrú-
lega fallegt svæði sem gaman er að
ferðast um. Þarna er fullt af litlum,
heillandi þorpum, og þarna er
hægt að drekka lókal vín og borða
iberico-skinku í morgunmat,
hádegismat og kvöldmat fyrir
slikk. Spænsk menning er stór-
kostleg og það sem ég ráðlegg fólki
sem ætlar til Spánar er að borða
fiskinn þeirra. Spánverjar eru nátt-
úrulega snillingar í að framreiða
saltfisk og ferskan þorsk, en þeir
borða líka alls konar fisktegundir
sem við á Íslandi þekkjum ekki
á okkar matseðlum. Matreiðslan
er svo gífurlega skemmtileg og
fiskurinn er ótrúlega breytilegur á
milli menningarsvæða. Persónu-
lega finnst mér að það ætti að
banna fólki sem vill bara nautakjöt
með bernaisesósu að ferðast,“ segir
Bergþór og kímir. n
Undir álögum Alhambra
Bergþór
Skúlason hefur
gaman af því að
ferðast. Hér er
hann staddur í
Porto í Portúgal.
MYND/AÐSEND.
Sagan hreinlega seytlar í gegnum
fínlega útskorna blúnduveggina á
þessum töfrandi stað.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Hallirnar eru
engin risasmíð
en smáatriðin
eru þeim mun
meiri. Hver
flötur er fagur-
lega skreyttur
mynstri, flísum
og útskurði
og fólki hefur
greinilega liðið
vel í þessum
fallegu vistar-
verum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
4 kynningarblað 27. maí 2021 FIMMTUDAGURUTANLANDSFERÐIR