Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 20
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@
frettabladid.is
Kristín Stefáns, sem er alla
jafna þekkt undir nafninu
Kristín í NoName, hefur
ávallt vakið athygli fyrir
fatastíl sinn og útgeislun.
Hún hefur verið öðrum
konum góð fyrirmynd þegar
kemur að klæðaburði og
förðun.
Kristín hugsar út fyrir boxið og
horfir á heildarmyndina þegar hún
tekur sig til og finnst ómissandi að
vera með fylgihluti, eins og frum-
legar töskur og falleg hálsmen.
Kristín er snyrti- og förðunarmeist-
ari að mennt og rekur dekurversl-
un á Garðatorgi sem ber heitið NN
Studio og selur NoName-snyrti-
vörur ásamt fatnaði og gjafavöru.
„Ég er ekkert ólík mörgum
konum að því leyti að ég hef alltaf
haft gaman af fötum og alla tíð
hef ég verið dugleg við að endur-
nýja fataskápinn reglulega,“ segir
Kristín. Þegar við spyrjum hana
út í nafnið á dekurverslun hennar,
NN Studio, svarar hún að NoName
hafi fest við hana síðan hún var
með förðunarskólann og vörurnar
forðum. „Ég held það verði sett á
legsteininn þegar tíminn kemur
en mér fannst upplagt að halda í
NoName áfram þegar ég ákvað að
opna verslunina enda skírskotun
í snyrtivörumerkið mitt og fyrir
hvað ég stend.“
Hrifin af stórum og víðum fötum
Kristín hefur ávallt haft skoðun á
því hvernig fötum hún vill klæðast.
„Það er engu tauti við mig komið
þegar ég vel minn stíl hverju sinni,
en ég breyti oft um stíl eftir árstíð-
um. Ég er hálfgerð alæta á klæðnað
og segi oft að við eigum að klæðast
því sem okkur líður vel í, ekki því
sem öðrum finnst við flottar í eða
hvernig tískan er hverju sinni. Ég er
til að mynda voða hrifin af stórum
fötum, víðum og þægilegum
gollum sem hægt er að borða nóg í
án þess að þurfa að vera á innsog-
inu og þurfa að hneppa frá, til þess
finnst mér alltof gott að borða.“
Hvernig myndir þú lýsa fatastíl
Dásamlegt að klæðast fallegu og litríku silki
Kristín í einum
af uppáhalds-
kjólunum sín-
um. Hún segist
geta notað
hann bæði fínt
og einnig með
gallajakka, enda
elskar hún víðar
og rúmar flíkur.
Taskan, ein af
hennar nýjustu,
er öll handunnin
úr leðri og engar
tvær eins hjá
hönnuði, ótrú-
lega flott, stór
og rúmgóð.
Kristín á nokkra
Angelle Milan
kjóla, bæði ein-
lita og munstr-
aða, þettur eru
mjög klæðilegir
kjólar sem er
hægt að klæða
upp eða niður.
Kristín er í galla-
jakka sem hún
elskar og notar
hann við allt.
„Silki er mitt
uppáhald,“
segir Kristín
sem elskar silki
í litum, björtum
og skærum
litum. „Svo eina
merkjataskan
mín frá Marck
Jacobs úr leðri,
hliðartaska
sem ég hef oft í
stóru töskunum
mínum, tek svo
upp þegar ég
fer í verslun og
vil ekki burðast
með ferða-
töskuna, mjög
hentugt.“
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
þínum?
„Litríkum, þægilegum og mjög
fjölbreyttum, er eiginlega alæta á
fatnað.“
Ekkert fallegra og dásamlegra
en að klæðast silki
Þegar kemur að vali á sniðum, er
eitthvað sem heillar þig frekar en
annað?
„Ég elska allar gollur og er veik
fyrir kímonó. Bæði síðum, stuttum
og helst mjög skrautlegum sem ég
nota yfir allt þetta svarta sem ég á
í skápnum. Einnig er ég forfallinn
aðdáandi silkis og þá í sterkum
litum, ekkert er fallegra og svo
dásamlegt að klæðast silki. Svo
dett ég inn í aðsniðna kjóla af og
til, sem sagt alæta á fatnað. Ég er
mikil jakkakona, elska bleisera,
stutta jakka, síða og jakkapeysur
sem hægt er að para saman við
allt.“
Áttu þér þína uppáhaldsf lík?
„Erfið spurning, en ég held galla-
jakkinn minn sem er svo klæði-
legur með öllu og leðurjakki sem
ég keypti fyrir 20 árum og á enn
þá.“
Korsett-toppurinn í rókókóstíl
hefði orðið minjagripur
Áttu þinn uppáhaldshönnuð?
„Engan í dag en í þá gömlu góðu
um 1990 var Vivienne Westwood
mitt goð. Ég gleymi ekki korsett-
toppnum mínum sem var í rókókó-
stíl en ég keypti hann í verslun í
London og vakti mikla lukku hvert
sinn sem ég klæddist honum, sé
svo eftir að hafa gefið þá flík, væri
minjagripur í dag.“ Það tískuvöru-
merki sem heillar Kristínu mest
í dag er Angelle Milan. „Angelle
Milan er merki sem við flytjum inn
og er með eindæmum klæðilegt
fyrir konur á öllum aldri, klassískt
og klæðilegt.“
Elskar alla liti og finnst
litirnir létta lundina
Þegar kemur að litavali, fylgir þú
tískustraumunum hverju sinni eða
áttu þér þína uppáhaldsliti sem þér
finnst klæða þig best?
„Ég fylgi aldrei persónulega tísku-
straumum, er með minn eigin stíl
sem er svolítið út um allt og litapall-
etta á sterum. Ég elska alla liti, gula,
rauða, bláa og að sjálfsögðu íslenska
þjóðlitinn, svartan. Það sem litir
gera er að létta lundina, við eigum
alltaf að fara í eitthvað bjart og
litskrúðugt ef við eigum til dæmis
slæman dag, viti menn, allt gengur
mikið betur.“
Kristín er á því að sumartískan
verði fjölbreytt í ár. „Hún er mjög
fjölbreytt, sumartískan í ár, mikið
um blómamunstur, púfferma-
blússur og kjóla. Sjiffon-fatnaður
og litríkar buxur sem hægt er að
blanda saman við einlita toppa er
líklegur til vinsælda.“
Ómissandi að eiga
flotta tösku og hálsmen
Hvernig myndir þú lýsa skótískunni
sem þú heillast helst af?
„Þægilega fyrst og fremst, ég elska
stígvél og uppáhaldsmerkið mitt er
Timberland. Ég er búin að eiga eina
í að verða yfir 16 ár, er orðin svolítið
leið á gæðunum, langar svo í nýja,
en þeir eru bara ennþá eins og nýir.“
Þegar þú velur þér fylgihluti, hvað
finnst þér vera ómissandi að eiga í
dag?
„Flotta tösku, ég hef mikið
dálæti á töskum, öðruvísi töskum
sem ekki eru fjöldaframleiddar.
Ég er ekki mikið fyrir merkjavöru
en ef ég myndi fjárfesta í einni, þá
yrði það að vera ekta, ekki eftir-
líking. Svo fallegt hálsmen, núna á
hug minn allan Krákan eftir Láru
Björnsdóttur, íslensk hönnun
þar sem engin tvö eru eins og
allt handgert með ást og alúð, en
þær fást eingöngu hjá okkur í NN
Studio.“ n
Einnig er ég for-
fallinn aðdáandi
silkis og þá í sterkum
litum, ekkert er fallegra
og svo dásamlegt að
klæðast silki. Svo dett
ég inn í aðsniðna kjóla
af og til, sem sagt alæta
á fatnað.
Kristín Stefánsdóttir
4 kynningarblað A L LT 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR