Bændablaðið - 12.05.2021, Side 18
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 202118
LANDSJÁ
Rauða drottningin í Lísu í
Undralandi drottnaði yfir
furðulegu konungsríki. Hún
segir við Lísu að „í mínu kon-
ungsríki þarftu að hlaupa eins
hratt og þú getur til þess að
standa kjurr“. Það má segja
að konungsríki Rauðu drottn-
ingarinnar sé víða. Það er í það
minnsta staðan við framleiðslu
landbúnaðarafurða.
Sífelldar tæknibreytingar
draga úr kostnaði við framleiðslu
sem aftur skilar sér í að raunverð
matvæla lækkar og bændur þurfa
að hlaupa hraðar til að vera á sama
stað.
Vatnshalli í stuðningi og vöxtur
Um áratugaskeið hefur verið
vatnshalli í stuðningi við
framleiðslu landbúnaðarafurða.
Sá halli hefur leitt til þess – ásamt
vexti hagkerfisins – að á síðustu
þrjátíu árum hefur stuðningurinn
farið úr því að vera um 5% af
landsframleiðslu í að vera 0,5%.
Í myndinni hér að ofan sést
hvernig þetta hefur haft áhrif
á afurðaverð og stuðning við
framleiðslu á mjólk. Raunverðið
hefur lækkað í takt við lækkandi
framleiðslukostnað vegna
framfara. Þessi samanburður
byggir á því að taka greiðslur
skv. mjólkursamningi og setja
í samhengi við greiðslumark
hvers árs. Það er ónákvæmt,
hluti greiðslna sem bundið er
við greiðslumark hefur breyst
í gegnum árin. Þó gefur þetta
hugmynd um hver þróunin hefur
verið.
Smám saman dregst saman
vægi stuðningsins – vegna
vatnshallans og vegna þeirra
miklu aukningar sem hefur orðið
á framleiðslu, greiðslumark ársins
2004 var 105 m. lítra á meðan það
er 145 m. lítra á þessu ári. Á sama
tíma hafa íslensk stjórnvöld búið
þannig um hnútana að sífellt eykst
samkeppni við erlenda framleiðslu
með gerð viðskiptasamninga við
ESB og þá staðreynd að tollarnir
rýrast af verðgildi með árunum.
Hlauptu hraðar, segir rauða
drottningin.
Ný markmið í
búvörusamningum
Aukið vægi á loftslagsmál
hefur gert það að verkum að í
búvörusamningum eru komin ný
markmið, um að kolefnisjafna
mjólkurframleiðslu fyrir árið 2040.
Það er metnaðarfullt verkefni sem
kallar á að hver einasti bóndi fari
yfir sinn búrekstur og reyni að
átta sig á því hvar hægt sé að bæta
árangur. En það er fyrirsjáanlegt
að verkefnið muni koma til með
að auka framleiðslukostnað.
Það kallar á að greinin fari enn
upp um gír og hlaupi hraðar en
nokkru sinni fyrr. Það hefur þó
náðst árangur í því að stjórnvöld
hafa viðurkennt að tollaumhverfið
er hluti af starfsumhverfi
landbúnaðarframleiðslu, viðræður
eru hafnar við ESB um að
endurskoða tollasamninginn og
í drögum að landbúnaðarstefnu
var það sérstaklega dregið
fram að meta þyrfti bindingu
bænda á kolefni til fjár með
einhverjum hætti. Þetta er mjög
mikilvægt atriði. Vegna þess
að sé það ekki gert þá mun
kostnaðurinn við að kolefnisjafna
greinina leka út í verðlagið
og skerða samkeppnishæfni
mjólkurframleiðslunnar – eða
draga úr afkomu bænda.
Spurningar til þingmannsefna
Þeir þingmenn sem veljast inn á
Alþingi í haust munu væntanlega
afgreiða næstu endurskoðun
búvörusamninga. Fullt tilefni er
til þess að spyrja þingmannsefni út
í afstöðu til þessara mála. Hvaða
sýn hafa þeir? Taka þeir undir
með Rauðu drottningunni um
að bændur eigi að hlaupa sífellt
hraðar til þess að standa kyrrir?
Kári Gautason,
sérfræðingur hjá BÍ
Hlauptu hraðar, segir
Rauða drottningin
Kári Gautason.
Þróun í stuðningi og afurðaverði síðan 2004 á föstu verðlagi ársins
2020. Samanburðurinn er ónákvæmur þar sem að upphæðum
búvörusamninga er deilt niður á greiðslumark til þess að gefa hugmynd
um umfang stuðnings m.v. framleiðslu. Útreikningar höfundar eru
byggðar á gögnum frá Hagstofu Íslands og fjárlögum áranna 2004–2020.
Uppbygging ljósleiðarakerfisins á Íslandi:
Nýr strengur til Írlands í burðarliðnum
Staða ljósleiðaratenginga á
Íslandi er í dag með því allra
besta sem þekkist á heimsvísu. Þá
hefur rík áhersla verið lögð á það
á undanförnum árum að tryggja
öryggi í fjarskiptatengingum við
útlönd um fleiri sæstrengi. Eldgos
gætu þó haft talsverð áhrif á
þennan öryggisþátt landsins.
Þó ljósleiðari hafi verið lagður
að stórum hluta um allt land, þá
eiga símafyrirtækin eftir að ljúka
lagningu á ljósleiðara síðasta spott-
ann inn á fjölmörg heimili. Hefur
skapast kurr í fólki víða um land
út af þessu. Um þrettán þúsund
heimili í þorpum og bæjum eru
enn án tenginga. Þar hafa menn
borið við þeirri afsökun að slíkar
tengingar séu ekki nógu arðbærar.
Þá á enn eftir að bæta í grunnnetið
og tryggja hringtengingar og rekstr-
aröryggi á einstökum svæðum með
lagningu strengja á Suðausturlandi,
Austurlandi og á sunnanverðum
Vestfjörðum.
Haraldur Benediktsson, bóndi
og alþingismaður, hefur verið
ötull talsmaður uppbyggingar ljós-
leiðarakerfisins.
„Ég þekki til hundruð starfa
sem hafa verið flutt í íslenskar
sveitir eftir að tengingar bötnuðu.
Ísland á að taka forustu í að leiða
umræðu um þessa þróun og láta
sig hana varða. Við erum líklega
fyrsta landið í heiminum sem geng-
ur jafn hraustlega til verks,“ sagði
Haraldur í viðtali í Bændablaðinu
15. apríl síðastliðinn. Hvatti hann
Bændasamtökin til að leiða áfram
umræðuna um þessi mál og láta sig
hana varða.
Tveir fjarskiptastrengir til
landsins en gert ráð fyrir þrem
Í stefnu fyrir fjarskipti fyrir tímabilið
2019-2033 sem samþykkt var á
Alþingi 2019 kemur fram að þrír
virkir fjarskiptasæstrengir skuli
tengja Ísland við Evrópu á hverjum
tíma. Rökin eru margþætt en ör-
yggissjónarmiðin þó mikilvægust.
Jafnframt hefur atvinnulífið lagt
þunga áherslu á að nýr fjarskiptasæ-
strengur verði lagður á næstu árum
og að hann verði að fullu fjármagn-
aður af ríkissjóði.
Í dag erum við með tvær
tengingar, þ.e. Farice 1, sem tekin
var í notkun 2003 og er strengurinn
tekinn á land á Seyðisfirði og Danice
1 sem komst í gagnið 2009 og var
tekinn í land á Suðurlandi. Þessir
strengir tengja Ísland við Skotland
og Danmörku.
Nýr ljósleiðarastrengur
frá Írlandi
Til stendur að leggja þriðja strenginn
milli Írlands og Íslands sem lagður
verður næsta sumar með landtöku
við Grindavík. Eldgos á Reykjanesi
vekur spurningar um hvort land-
taka strengsins á þessum stað sé
heppileg. Tengingar þaðan inn á
meginkerfi landsins munu liggja
þvert yfir sprungur í brotabelti
Reykjanesskagans. Væntanlega er
í þessu áhætta sem erfitt er að kom-
ast hjá. Mikilvæg gagnaver eru t.d.
í Reykjanesbæ. Ef landtaka strengs
frá Írlandi yrði á svipuðum slóðum
og Danice strengurinn á Suðurlandi,
yrði tengingar inn á Reykjanesið líka
yfir sprungukerfi. Lagnir til höfuð-
borgarsvæðisins eru sama marki
brenndar, nema mögulega þær sem
koma hringleiðina að norðan.
Fjármögnun á nýjum
sæstreng til Írlands tryggð
Á ríkisstjórnarfundi í september
2020 var samþykkt tillaga sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra
og fjármála- og efnahagsráðherra
þess efnis að tryggja fjármögnun
nýs fjarskiptasæstrengs milli Íslands
og Írlands. Strengurinn, sem hlotið
hefur nafnið ÍRIS, mun liggja milli
suðvesturhluta Íslands (Grindavík)
og Galway á Írlandi og verður þriðji
fjarskiptastrengurinn sem tengir
Ísland við Evrópu. Ýmis tæki-
færi eru talin geta falist í beinni
tengingu milli Íslands og Írlands
fyrir íslensk fyrirtæki og almenning
enda er Írlands ein helsta netmiðja
Evrópu. Stefnt er að því að taka nýja
strenginn í gagnið fyrir lok árs 2022
og árið 2023 hið síðasta. Farice áætl-
aði stofnkostnað við strenginn um
50 milljónir evra.
Undirbúningur hófst með samn-
ingi fjarskiptasjóðs við Farice ehf. í
árslok 2018 um fyrsta fasa verkefn-
isins sem er botnrannsókn og hefur
sleitulaust síðan verið unnið skipu-
lega að margvíslegum undirbúningi.
Farice vann að undirbúningi verk-
efnisins á árunum 2019 og 2020 með
samningi við Fjarskiptasjóð. Farice
hefur samið við Subcom LLC um
framleiðslu og lagningu strengsins.
Félagið er leiðandi í framleiðslu
og framkvæmdum við neðansjávar
fjarskiptasæstrengi í heiminum og
hefur komið að slíkum verkefnum
víða um heim.
Farice ehf., sem nú er í fullri
eigu ríkisins, á og annast rekstur
strengjanna. Frá því að FARICE-1
og DANICE strengirnir voru teknir
í notkun hefur samfélagið orðið enn
háðara öruggum fjarskiptatenging-
um við útlönd.
Rof á fjarskiptasambandi
getur valdið miklu tjóni
Rof á fjarskiptasambandi, hvort sem
er stutt eða langt, getur haft í för með
sér verulegt tjón og óhagræði fyrir
einstaklinga, fyrirtæki og efnahag
landsins. Stjórnvöld hafa því lagt
áherslu á að fjarskiptatengingar
við Evrópu verði í gegnum þrjá
sæstrengi sem koma á land á mis-
munandi landtökustöðum.
„Það er nauðsynlegt að endurnýja
kerfið tímanlega þar sem Farice-
strengurinn er kominn til ára sinna.
Að auki er skjót uppfærsla útlanda-
sambanda jafnvel enn brýnni nú
þegar samgöngur í heiminum eru
takmarkaðar um ófyrirséðan tíma
vegna Covid-19,“ sagði Sigurður
Ingi Jóhannsson samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra á síðastliðnu
hausti.
„Til lengri tíma litið er enn
fremur mikilvægt út frá viðskipta-
sjónarmiðum og samkeppnishæfni,
að tryggja fullnægjandi tengingar
við umheiminn sem þjónað geta
kröfuhörðum og eftirsóknarverðum
viðskiptavinum. Betri tengingar við
landið styðja jafnframt við nýsköp-
un, þekkingariðnað og ýmis önnur
tækifæri til atvinnu-, menningar- og
verðmætasköpunar.“ /HKr.
Núverandi og fyrirhugaðar ljósleiðaratengingar Íslands við útlönd. FARICE
1 var tengdur árið 2003. DANICE var tengdur 2009 og fyrirhugað er að tengja
IRIS 2022.
FRÉTTIR
Alþingi samþykkir gerð iðnaðarstefnunnar fyrir Ísland
Ísland mun í fyrsta sinn í sögunni
setja sér sjálfbæra iðnaðar- og
atvinnustefnu, eftir að þings-
ályktunartillaga Pírata og tveggja
þingmanna Framsóknar þess
efnis var samþykkt á Alþingi
fimmtudaginn 6. apríl.
Markmið stefnumótunarinnar
verður ekki aðeins að bregðast við
fyrirséðum áskorunum framtíðar,
eins og aukinni sjálfvirknivæðingu.
Markmið hennar verður jafnframt
að styrkja og fjölga stoðum íslensks
atvinnulífs og styðja þannig við
fjölbreyttan og sjálfbæran iðnað.
Íslenskur iðnaður byggist í mörg-
um tilfellum á tiltölulega fáum stoð-
um. Það skapar hins vegar hættu
á kerfishruni við einstök áföll og
dregur slíkt fyrirkomulag úr sjálf-
bærni viðkomandi greinar.
Smári McCarthy, þingmaður
Pírata og fyrsti flutningsmaður
tillögunnar, segir Íslendinga hafa
stuðst við það sem hann kallar
„haglabyssuaðferðina“. Stjórnvöld
hafi hlaðið hagkerfið „ómarkvissum
tækifæriskornum og láta það skjóta
hingað og þangað. Vissulega mun
það stöku sinnum hæfa og jafnvel
skilja eftir sig varanlegt spor, en
það vita samt allir að hægt er að ná
meiri árangri með því að miða,“
segir Smári.
Fleiri stoðir, meiri sjálfbærni
Að mati Smára þarf að hverfa frá
óbilandi trú stjórnvalda á áfram-
haldandi vænleika „hvalreka-
hagkerfisins“ sem bar til Íslands
stórútgerðir, áliðnað, bankabransa,
makríl og nú nýlega ferðamanna-
straum. Slíkri handahófskenndri
nálgun megi ekki rugla saman við
hagstjórn.
Einn helsti tilgangur sjálfbærrar
iðnaðarstefnu er því að dreifa fram-
leiðni með þeim hætti að til verði
sveigjanleg framleiðslunet margra
smárra aðila frekar en fárra stórra
fyrirtækja. Slík tilhögun iðnaðar
stuðlar að byggðafestu og minni
hagsveiflum og dregur úr stað-
bundnum áföllum vegna samdráttar
í einstökum geirum eða gjaldþrot-
um einstakra fyrirtækja.
Hér á landi hefur fengist nokkur
reynsla af þess konar stuðningi við
einstök byggðarlög sem byggist
á stuðningi við tiltekna starfsemi.
Hins vegar er vænlegra að mati
flutningsmanna tillögunnar að
styrkja atvinnulíf byggðarlaga
almennt, frekar en afmarkaðar
atvinnugreinar. Það dragi úr áhættu
á að meginstoðir atvinnulífs í
viðkomandi byggðarlögum hrynji
vegna einstakra atburða. /HKr.
Bænda
Smáauglýsingar
56-30-300