Bændablaðið - 12.05.2021, Síða 30
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 202130
Félag garðplöntuframleiðenda,
sem samanstendur af 14 fram
leiðendum um allt land, fer senn
af stað með átaksverkefnið Þinn
garður – þín kolefnisbinding til að
auka áhuga, þekkingu og þátttöku
almennings á ræktun gróðurs með
tilliti til kolefnisbindingar. Með því
vill félagið vekja fólk til vitundar
um að allur gróður og græn svæði
binda kolefni og allir geta lagt sitt
af mörkum.
Það er von félagsins að með
fræðslu og kynningu aukist áhugi
fólks á að rækta meira á sínu
heimasvæði og stuðla þannig að eigin
kolefnisbindingu.
„Við erum að fara af stað með
þetta spennandi verkefni þar sem
ætlunin er að fá almenning í lið
með okkur til að virkja græna fingur
landsins, fræða fólk um kosti þess
að hlúa vel að eigin garði, svölum
og sumarbústaðalöndum með því að
planta meira af trjám og blómum
ásamt því að rækta eigin matvæli.
Það geta allir lagt sín lóð á vogar
skálarnar til að hafa jákvæð áhrif á
umhverfið og samfélagið í heild,“
segir Erla Hjördís Gunnarsdóttir,
verkefnisstjóri verkefnisins, sem
bendir jafnframt á að stærsta og
fjölbreyttasta ræktunarverkefni á
Íslandi sé ræktun gróðurs í þéttbýli
og sumar bústaða löndum.
Fræðsla og ráðgjöf
við val á plöntum
Inni á heimasíðu garðplöntu
framleiðenda, gardplontur.is,
getur almenningur fundið lista
yfir garðplöntuframleiðendur og
leitað að upplýsingum um plöntur,
ræktunarskilyrði og fleira. Auk þess
prýðir fjöldi mynda gagnagrunninn,
notendum til glöggvunar.
„Inni á síðunni má finna hvaða
plöntur og tré er heppilegast að rækta
miðað við þær aðstæður sem hver og
einn býr við. Fræðsla og ráðgjöf um
val á plöntum og ræktun mun standa
til boða bæði með þjónustu sem veitt
er við kaup á plöntum í garðplöntu
stöðvum sem og á netinu,“ útskýrir
Erla Hjördís og segir jafnframt:
„Til að vekja athygli á átakinu
munum við vera sýnileg í sumar á
ýmsum miðlum og taka allir garð
plöntuframleiðendur landsins þátt í
átakinu með því að fræða gesti sína
um hinar fjölmörgu tegundir sem
í boði eru hérlendis og hvað henti
fyrir hvern og einn með tilliti til
aðstæðna. Ræktun í heimilisgarði
hreinsar mengun og skaðleg efni úr
umhverfinu og þar sem allar plöntur
ljóstillífa og binda kolefni þá skipt
ir framlag hvers og eins máli þegar
kemur að kolefnisbindingu.“
LÍF&STARF
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn
Ríkiskaupa í síma 530 1400
eða í gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI ÓSKAR EFTIR
TILBOÐUM Í SUMARHÚS TIL FLUTNINGS
Tilboð óskast í sumarhús til flutnings, staðsett á lóð Verkmennta
skólans á Akureyri og byggt af nemendum í húsasmíði, rafvirkjun
og pípulögnum.
Um er að ræða timburhús, 53 m2 að grunnfleti með svefnaðstöðu
og geymslu á lofti. Að utan er húsið klætt olíugrunnaðri band
sagaðri vatnsklæðningu og bárujárni, örlítil vinna er eftir í frágangi
klæðningar. Þak er bárujárnsklætt. Í húsinu eru timburgluggar og
úthurðir. Lagt er fyrir rafmagni og neysluvatni í húsinu, búið er að
leggja fyrir gólfhita, þá er eftir að setja gólfniðurföll í sturtu og í
þvottahús.
Húsið verður til sýnis eftirfarandi daga; miðvikudaginn 12. maí
kl 16:30-18:30 og þriðjudaginn 18. maí kl. 15-18.
Húsið er tilbúið til flutnings og þarf kaupandi að fjarlægja það eigi
síðar en 15. ágúst 2021.
Tilboðum skal skila rafrænt á heimasíðu Ríkiskaupa fyrir kl. 12:00
mánudaginn 24. maí n.k. merkt Sumarhús VMA 21445.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is.
Verð: Tilboð óskast.
Erla Hjördís Gunnarsdóttir, verkefnastjóri verkefnisins Þinn garður – þín
kolefnisbinding, ásamt gjaldkera Félags garðplöntuframleiðenda, Guð
mundi Vernharðssyni, eiganda Gróðrarstöðvarinnar Markar í Fossvogsdal
í Reykjavík.
Inni á heimasíðu Félags garðplöntu
framleiðenda má finna plöntuleit
þar sem ítarefni er að finna með
myndum um hátt í 1.200 plöntur sem
til eru hérlendis.
Hvetja almenning til að rækta garðinn sinn
– Hvert framlag skiptir máli
Bestu birkimyndböndin
– Efnt til keppni meðal grunn- og framhaldsskólanema
Átak til að auka útbreiðslu
birkiskóga, með söfnun og sán-
ingu á birkifræi, hófst á síðasta
ári. Fjöldi fólks tók þátt í því og
umtalsverðu magni af birkifræi
var safnað. Til að glæða enn frekar
áhuga landsmanna var ákveðið að
efna til myndbandakeppni meðal
grunn- og framhaldsskólanema.
Keppnin hófst í lok apríl og lýkur
30. september. Ástæðan fyrir svona
löngum keppnistíma er sú að án efa
vilja einhverjir mynda birkið frá því
að það lifnar að vori og þar til það
stendur í haustlitum með fullþrosk
að fræ.
Keppt verður í tveimur
flokkum, grunnskólaflokki og
framhaldsskólaflokki. Í boði eru
vegleg verðlaun sem fyrirtækin
Heimilistæki og Tölvulistinn gáfu til
keppninnar. Sjá nánar á heimasíðunni
http://www.birkiskogur.is.
Hver þátttakandi getur sent inn
fimm myndir inn í sinn flokk. Engar
hömlur eru settar hvað varðar tæki
sem eru notuð við gerð myndbanda.
Sama gildir um efnismeðferð. Hins
vegar eru gerðar kröfur um að
myndin/myndirnar frá hverjum og
einum fjalli um birki á Íslandi, lengd
innsendra myndbanda fari ekki yfir
60 sekúndur og að skráningarformið
sé fyllt út. Einn höfundur skal skrif
aður fyrir hverju myndbandi.
Aldurstakmörk á samfélagsmiðl
um eru 13 ár á Íslandi. Ef þátttakandi
er yngri en 13 ára verður hann að
hafa leyfi foreldra/forráðamanna til
að taka þátt.
Á síðunni www.birkiskogur.is er
skráningarform sem þátttakandi þarf
að útfylla. Þar þarf m.a. að koma
fram nafn höfundar, heiti Instragram
reiknings, sími, netfang og slóð inn á
myndbandið. Hægt verður að skoða
innsend myndbönd á síðunni www.
birkiskogur.is.
Hressir grunnskólakrakkar í Hafnarfirði.