Bændablaðið - 12.05.2021, Side 34
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 202134
UTAN ÚR HEIMI
Dýralæknanám í Slóvakíu nýtur vaxandi
vinsælda meðal Íslendinga
– Mikill áhugi, segir ræðismaður landsins, en BSc gráður frá Hvanneyri og Hólum stytta námið um tvö ár
Vaxandi áhugi er fyrir að stunda
nám við dýralæknaháskólann
í Košice í Slóvakíu. Skólinn
heitir University og Veterinary
Medicine and Pharmacy og þar
eru nú 24 Íslendingar við nám.
Runólfur Oddsson, ræðismaður
Slóvakíu á Íslandi, segir að síðast
liðið vor hafi þrír íslenskir nem
endur útskrifast frá háskólanum.
Þá hófu 8 nemar nám við skólann
haustið 2020. Þar af 5 sem eru í 6
ára námi og 3 sem fara í 4 ára nám
eftir Bsc próf á Íslandi.
„Þetta er 6 ára nám, en skól
inn tekur gilt BSc gráður frá
Landbúnaðar háskóla Íslands á
Hvanneyri og frá Háskólanum á
Hólum og er það metið sem ígildi
tveggja ára náms við skólann,“
segir Runólfur.
Í University og Veterinary
Medicine and Pharmacy er starf
ræktur dýra spítali og þar er einnig
aðstaða fyrir ræktun dýra og rann
sóknir á sjúkdómum. Í skólanum
er bæði hægt að læra lækningar á
gæludýrum sem og stærri dýrum
eins og hestum.
Margs konar og öflugt félagsstarf
er stundað við skólann og klúbbar
af ýmsu tagi, eins og veiðiklúbbur,
klúbbur áhugamanna um býflugna
rækt, smádýrarækt og fuglarækt. Þá
er starfræktur fjallamennskuklúbbur
og ýmislegt fleira. Áhugasamir geta
kynnt sér skólann nánar á heimasíðu
hans; www.uvlf.sk/en.
Inntökupróf í sumar
Inntökupróf við skólann verða
haldin á netinu (online) þann 3. júní
næstkomandi og er umsóknarfrestur
til 21. maí.
Annað inntökupróf verður svo
haldið 1. júlí og er umsóknarfrestur
í það til 17. júní.
Þriðja inntökuprófið verður svo
haldið 19. ágúst en umsóknarfrestur
vegna þess er til 6. ágúst.
Runólfur segir að nokkrir
slóvanskir nemendur skólans sem
lokið hafa námi hafi komið til
Íslands til að auka sín réttindi. Þeir
hafi unnið í sláturhúsum á Íslandi í
eitt ár til að fá réttindi til matvæla
skoðunar. Hafi þeir m.a. hælt fag
legum vinnubrögðum í sláturhúsinu
á Selfossi og sér í lagi hvað varðar
meðferð dýra og virðingu fyrir dýr
unum sem verið var að slátra.
Hafi fólk hug á að komast í
inntökupróf, þá veitir Runólfur
Oddsson, ræðismaður Slóvakíu,
góðfúslega nánari upplýsingar.
Netfangið hjá honum er kaldasel@
islandia.is og hægt er að ná í hann í
síma 8201071.
Stáliðnaðar- og
menningarborgin Košice
Košice er næststærsta borg Slóvakíu
með um 260.000 íbúa, en höfuð
borgin Bratislava er stærst með um
430.000 íbúa.
Košice er höfuðstaður samnefnds
sjálfstjórnarhéraðs í austurhluta
landsins nærri Slovak Ore fjall
garðinum (Slovenské rudohorie)
sem er mesti fjallgarður Slóvakíu.
Þar eru þrír háskólar, fjöldi safna,
sýningarsala og nokkur leikhús.
Á árinu 2013 var Košice útnefnd
menningarhöfuðborg Evrópu ásamt
Marseille í Frakklandi.
Košice er mikilvæg iðnaðarborg
fyrir Slóvakíu og stálbræðslan U.S.
Steel Košice stærsti vinnustaðurinn
í borginni og stærsti stálframleið
andinn í MiðEvrópu. Hefur fyrir
tækið unnið að margvíslegum sam
félagsverkefnum, eins og eitt sem
nefnt er „Together for the Region“,
sem gæti útlagst, gerum þetta saman
fyrir samfélagið. Er það í samvinnu
við Carpathian Foundation. Sex ver
kefni eru þar nú í gangi samkvæmt
heimasíðu fyrirtækisins í þágu
barna, öryggis, og umhverfismála
í austurhluta Slóvakíu.
Ekki langt frá Košice er borgin
Prešov sem er þriðja stærsta borg
Slóvakíu. Þá er Uzhhorod í Úkraínu
aðeins í 97 km fjarlægð fyrir austan
Košice, en borgin tilheyrði áður
Tékkóslóvakíu. Uzhhorod var löngu
áður þekkt undir nafninu Ungvár, en
þaðan er nokkurn veginn jafnlangt
til Eystrasalts (Baltic), Adríahafs
og Svartahafs, eða um 650 til 690
kílómetrar. Um 25 km eru svo frá
Košice til ungversku landamæranna.
Íslendingar sækja líka
í læknanám í Martin
Borgin Martin er staðsett um 236
km fyrir vestan Košice, en meira en
200 Íslendingar stunda læknanám
við Jessenius Faculty of Medicine
(www.jfmed.uniba.sk/en). Þar hafa
um 80 íslenskir læknar lokið námi.
Lestir fara beint á milli borganna
mörgum sinnum á dag. Ferðin tekur
um 2 klukkustundir og 50 mínútur.
Internet er í lestunum og matarvagn
ar. Frábært útsýni er á leiðinni til
Tatra fjalla.
Inntökupróf verður í Jessenius
Faculty of Medicine þann 5. júní og
er umsóknarfrestur í það próf til 12
maí. Annað inntökupróf verður svo
haldið 10. júní og í það er umsóknar
frestur til 17. júní.
Læknanám í Olomuc
í Tékklandi
Runólfur segir að Íslendingar hafi
einnig sótt talsvert í tannlækna
nám í Tékklandi sem er hinn hlut
inn af gömlu Tékkóslóvakíu. Þar
er Palaský University í borginni
Olomouc á Haná svæðinu í Moravíu
í austurhluta Tékklands. Olomouc
er sjötta stærsta borg Tékklands og
elsti hluti borgarinnar, „Old Town“
er á heimsminjaskrá UNESCO.
Um 20.000 manns stunda nám í
Palaský háskólanum sem er starf
ræktur í mörgum deildum. Hafa
nokkrir Íslendingar farið þar í nám
í læknisfræði og í tannlæknadeild
skólans. /HKr.
Slóvakía í Austur-Evrópu varð sjálfstætt ríki þegar gömlu Tékkóslóvakíu var
skipt upp í Tékkland og Slóvakíu árið 1993.
Košice er næststærsta borg Slóvakíu með um 260.000 íbúa og er höfuðstaður samnefnds sjálfstjórnarhéraðs í
austurhluta landsins nærri Slovak Ore fjallgarðinum. Á árinu 2013 var Košice útnefnd menningarhöfuðborg Evrópu
ásamt Marseille í Frakklandi.
Frá kennslu í dýralækningum í University og Veterinary Medicine and
Pharmacy. Mynd / UVMP
Öflug félagsstarf er í University og Veterinary Medicine and Pharmacy og
klúbbar starfandi af ýmsu tagi.
Frá Košice.