Bændablaðið - 12.05.2021, Qupperneq 34

Bændablaðið - 12.05.2021, Qupperneq 34
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 202134 UTAN ÚR HEIMI Dýralæknanám í Slóvakíu nýtur vaxandi vinsælda meðal Íslendinga – Mikill áhugi, segir ræðismaður landsins, en BSc gráður frá Hvanneyri og Hólum stytta námið um tvö ár Vaxandi áhugi er fyrir að stunda nám við dýralæknaháskólann í Košice í Slóvakíu. Skólinn heitir University og Veterinary Medicine and Pharmacy og þar eru nú 24 Íslendingar við nám. Runólfur Oddsson, ræðismaður Slóvakíu á Íslandi, segir að síðast­ liðið vor hafi þrír íslenskir nem­ endur útskrifast frá háskólanum. Þá hófu 8 nemar nám við skólann haustið 2020. Þar af 5 sem eru í 6 ára námi og 3 sem fara í 4 ára nám eftir Bsc próf á Íslandi. „Þetta er 6 ára nám, en skól­ inn tekur gilt BSc gráður frá Landbúnaðar háskóla Íslands á Hvanneyri og frá Háskólanum á Hólum og er það metið sem ígildi tveggja ára náms við skólann,“ segir Runólfur. Í University og Veterinary Medicine and Pharmacy er starf­ ræktur dýra spítali og þar er einnig aðstaða fyrir ræktun dýra og rann­ sóknir á sjúkdómum. Í skólanum er bæði hægt að læra lækningar á gæludýrum sem og stærri dýrum eins og hestum. Margs konar og öflugt félagsstarf er stundað við skólann og klúbbar af ýmsu tagi, eins og veiðiklúbbur, klúbbur áhugamanna um býflugna­ rækt, smádýrarækt og fuglarækt. Þá er starfræktur fjallamennskuklúbbur og ýmislegt fleira. Áhugasamir geta kynnt sér skólann nánar á heimasíðu hans; www.uvlf.sk/en. Inntökupróf í sumar Inntökupróf við skólann verða haldin á netinu (online) þann 3. júní næstkomandi og er umsóknarfrestur til 21. maí. Annað inntökupróf verður svo haldið 1. júlí og er umsóknarfrestur í það til 17. júní. Þriðja inntökuprófið verður svo haldið 19. ágúst en umsóknarfrestur vegna þess er til 6. ágúst. Runólfur segir að nokkrir slóvanskir nemendur skólans sem lokið hafa námi hafi komið til Íslands til að auka sín réttindi. Þeir hafi unnið í sláturhúsum á Íslandi í eitt ár til að fá réttindi til matvæla­ skoðunar. Hafi þeir m.a. hælt fag­ legum vinnubrögðum í sláturhúsinu á Selfossi og sér í lagi hvað varðar meðferð dýra og virðingu fyrir dýr­ unum sem verið var að slátra. Hafi fólk hug á að komast í inntökupróf, þá veitir Runólfur Oddsson, ræðismaður Slóvakíu, góðfúslega nánari upplýsingar. Netfangið hjá honum er kaldasel@ islandia.is og hægt er að ná í hann í síma 820­1071. Stáliðnaðar- og menningarborgin Košice Košice er næststærsta borg Slóvakíu með um 260.000 íbúa, en höfuð­ borgin Bratislava er stærst með um 430.000 íbúa. Košice er höfuðstaður samnefnds sjálfstjórnarhéraðs í austurhluta landsins nærri Slovak Ore fjall­ garðinum (Slovenské rudohorie) sem er mesti fjallgarður Slóvakíu. Þar eru þrír háskólar, fjöldi safna, sýningarsala og nokkur leikhús. Á árinu 2013 var Košice útnefnd menningarhöfuðborg Evrópu ásamt Marseille í Frakklandi. Košice er mikilvæg iðnaðarborg fyrir Slóvakíu og stálbræðslan U.S. Steel Košice stærsti vinnustaðurinn í borginni og stærsti stálframleið­ andinn í Mið­Evrópu. Hefur fyrir­ tækið unnið að margvíslegum sam­ félagsverkefnum, eins og eitt sem nefnt er „Together for the Region“, sem gæti útlagst, gerum þetta saman fyrir samfélagið. Er það í samvinnu við Carpathian Foundation. Sex ver­ kefni eru þar nú í gangi samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins í þágu barna­, öryggis­, og umhverfismála í austurhluta Slóvakíu. Ekki langt frá Košice er borgin Prešov sem er þriðja stærsta borg Slóvakíu. Þá er Uzhhorod í Úkraínu aðeins í 97 km fjarlægð fyrir austan Košice, en borgin tilheyrði áður Tékkóslóvakíu. Uzhhorod var löngu áður þekkt undir nafninu Ungvár, en þaðan er nokkurn veginn jafnlangt til Eystrasalts (Baltic), Adríahafs og Svartahafs, eða um 650 til 690 kílómetrar. Um 25 km eru svo frá Košice til ungversku landamæranna. Íslendingar sækja líka í læknanám í Martin Borgin Martin er staðsett um 236 km fyrir vestan Košice, en meira en 200 Íslendingar stunda læknanám við Jessenius Faculty of Medicine (www.jfmed.uniba.sk/en). Þar hafa um 80 íslenskir læknar lokið námi. Lestir fara beint á milli borganna mörgum sinnum á dag. Ferðin tekur um 2 klukkustundir og 50 mínútur. Internet er í lestunum og matarvagn­ ar. Frábært útsýni er á leiðinni til Tatra fjalla. Inntökupróf verður í Jessenius Faculty of Medicine þann 5. júní og er umsóknarfrestur í það próf til 12 maí. Annað inntökupróf verður svo haldið 10. júní og í það er umsóknar­ frestur til 17. júní. Læknanám í Olomuc í Tékklandi Runólfur segir að Íslendingar hafi einnig sótt talsvert í tannlækna­ nám í Tékklandi sem er hinn hlut­ inn af gömlu Tékkóslóvakíu. Þar er Palaský University í borginni Olomouc á Haná svæðinu í Moravíu í austurhluta Tékklands. Olomouc er sjötta stærsta borg Tékklands og elsti hluti borgarinnar, „Old Town“ er á heimsminjaskrá UNESCO. Um 20.000 manns stunda nám í Palaský háskólanum sem er starf­ ræktur í mörgum deildum. Hafa nokkrir Íslendingar farið þar í nám í læknisfræði og í tannlæknadeild skólans. /HKr. Slóvakía í Austur-Evrópu varð sjálfstætt ríki þegar gömlu Tékkóslóvakíu var skipt upp í Tékkland og Slóvakíu árið 1993. Košice er næststærsta borg Slóvakíu með um 260.000 íbúa og er höfuðstaður samnefnds sjálfstjórnarhéraðs í austurhluta landsins nærri Slovak Ore fjallgarðinum. Á árinu 2013 var Košice útnefnd menningarhöfuðborg Evrópu ásamt Marseille í Frakklandi. Frá kennslu í dýralækningum í University og Veterinary Medicine and Pharmacy. Mynd / UVMP Öflug félagsstarf er í University og Veterinary Medicine and Pharmacy og klúbbar starfandi af ýmsu tagi. Frá Košice.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.