Bændablaðið - 12.05.2021, Side 47

Bændablaðið - 12.05.2021, Side 47
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 2021 47 Eftirfarandi tilkynning barst frá Ríkislögreglustjóra inn á vefsíðu Almannadeildar Ríkis­ lögreglustjóra fimmtudaginn 6. maí: Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vesturlandi, höfuð borgar svæðinu, Suður­ nesjum og Suðurlandi hafa ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almanna­ varna vegna hættu á gróður eldum. Svæðið sem um er að ræða nær frá Eyjafjöllum að sunnanverðu Snæfellsnesi. Þessi ákvörðun er byggð á því að lítið hefur rignt á þessu svæði undanfarið og veðurspá næstu daga sýnir heldur ekki neina úrkomu að ráði. Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings. Almenningur er hvattur til að sýna aðgát með opinn eld á þessum svæðum og öðrum þar sem gróður er þurr. Það þarf ekki mikinn neista til þess að af verði stórt bál. Vantar aðgerðaráætlun vegna gróðurelda í flestum sveitarfélögum „Í samtali við Morgunblaðið 6. maí sagði Bjarni K. Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð, að brýn nauðsyn væri á að bæta búnað og þekkingu til að takast á við gróðurelda í kjölfar gróðurelda sem urðu í Heiðmörk þann 5. maí,“ sagði Bjarni. Eðlilegt að hafa áhyggjur og menn hugsi um hvað sé að og hvað megi bæta eftir elda eins og í Heiðmörk, erfitt aðgengi, ekkert vatn í allra næsta nágrenni, ekki neinir slóðar sem hægt var að komast eftir til að vera nær eldinum og svo bilaði gömul vatnsskjóða í þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir aðeins 17 flugferðir. Eftir stóra brunann á Mýrum 2006 hefur nánast ekkert verið gert til að bæta í búnað sem þykir nauðsynlegur við að slökkva eld í gróðri, en mestu munaði þar um aðkomu bænda á traktorum með haugsugur við að slökkva eldana á Mýrum 2006. Margir hafa tjáð sig um brunann í Heiðmörk og þar á meðal er þyrluflugmaður sem sagði að ef til væru nokkrar sambærilegar „fötur“ og Landhelgisgæslan var með og bilaði hefði það ekki tekið nema 3-4 tíma að slökkva eldinn með þyrlum. Þegar ég spurði hver kostnaðurinn við svona „fötu“ væri taldi hann það ekki vera nema á milli 2 og 3 milljónir. Mér varð á orði; „oft hefur pening verið eytt í meiri vitleysu en að henda 10 milljónum í svona græjur.“ Fræðandi spjall við kanadískt par um gróður og skógarelda Fyrir nokkrum árum keyrði ég hringinn í kringum landið með kanadísku pari sem bæði unnu hjá slökkviliðum í Kanada. Ég hafði tekið eftir því að hann stoppaði upp úr þurru í þrígang í vegkantinum og tók nokkrar myndir í röð af sumarbústaðabyggðum í miklu kjarrlendi. Það var á Einarsstöðum á Héraði, upp í Vaðlaheiðina gegnt Akureyri og yfir Stardal við Ísafjörð. Eftir þriðja stoppið, sem var við Ísafjörð, spurði ég hann út í þennan áhuga hans á sumarhúsabyggðum og myndatökunum. Hann sagði mér að hann hefði óvart dottið inn í vinnuna sína, en hann hafi á þessum stöðum séð þétta húsabyggð í miklu kjarrlendi. Hann spurði mig á móti hvort engar reglur væru hversu nálægt mætti byggja og hversu þétt í kjarrlendi því það sem hann sá væri bannað í Kanada. Ég gat ekki svarað honum. Búa til eldfrí varnarsvæði Hans vinna er að gera aðgerðar- áætlun/áhættumat ef upp kemur eldur í skógum og hvernig bregð- ast ætti við til að verja byggingar og slökkva skógarelda. Samtalið var frekar langt og teiknaði hann margar skýringamyndir. Oftast var lausnin að fórna trjám með jarðýtum og koma svo á eftir með risa trukk sem setti „drulluleðju“ í sárið eftir jarðýturnar, en kærasta mannsins vann einmitt á einum svoleiðis bíl. Ekki ósvipaður bíll og við köllum „búkollur“ með risatank fullan af leðju (200 til 300 tonn stærstu leðjubílarnir í Kanada) sem lekur á jörðina og úr verður rofabelti sem eldurinn stoppar á. Einnig sagði hann mér að til væru kanadískar að- gerðaráætlanir í borgum og þorpum sem eru við skóglendi að í áætlun- inni væri að ryðja með jarðýtum ystu húsunum í bæjarfélögunum og leðja yfir rústirnar til að bjarga og verja þéttbýliskjarnann sem fyrir innan er. Mér fannst lýsingarnar margt forvitnilegar og skildi aðeins betur áhuga hans á brunavörnum og skógareldum eftir þetta spjall. Veit aðeins til þess að til sé aðgerð- aráætlun um skógar- og gróðureld í Skorradal. Er ekki kominn tími á að hugsa um hvað getur í versta falli gerst í þínu nærumhverfi (lesandi góður) og hvað væri hugsanlega hægt að gera? Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is st’ al og L or em ipsum Stál og stansar stalogstansar.is 2012 2020 Varahlutir í kerrur ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 TÓMT FLAK H FREKAR H SJÁVAR- DÝR BOLMAGN H PLÁSS BFYNDINN R O S L E G U R FJAS RKVABBUMKRINGDI E L L HÁLFAPI L E M Ú R UL K T HÖKTATUNGUMÁL S T A M A A HLJÓÐFÆRI ÞRAUT- SEIGJU G Í T A R VISTAR-VERA U Ö FJAR-STÆÐA DEKKTÁLKNBLAÐ Þ I L F A R TITTIR TVEIR EINSHYLJA S S BUGASVIÐI NÁTTERFIÐ HEYGÐU I R Ó F U Í RÖÐSKÍMA D E RÓSEMD S P E K T FYLKIG Þ R Ö N G KÍLL S Í K I SLITHNJÓTA L O KKLÍPA R A N G L TÓNN T MÓTMÆLAVEFJA A N D Æ F ASVEIMALDIN E R FLUTT FOKVONDUR TAFAR- LAUST Æ F U R UPP HINDRA N E Ð A NB Y BATALENGJA B Ó T A ÚTBÍAVARP Ú T A T A VELGJA T T R O Ð A TILBÚIÐHANDÆÐI K L Á R T KALLORÐHEILL H ÓÞRÖNGVA T Æ R A BYLTA F A L L MÆLI- EINING Í RÖÐ A L I N ÆTA EIN- HVERJIR U R M A I Ð R A MEÐ TVEIR EINS Á T S T A SKYNFÆRA M A T U SVIFDÝR G Á N T A AS FLOKKA H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 150 LAUMA LEIFAR ELEGANT SKVAMPA FÖLRI HUGLÍTIL ALDIN DRYKKUR GLOPPA SÝNI ÁSTÆÐA SNÍÐA HLJÓÐFÆRI SPIL HEGNI BERJA MÁLMUR NAGLAR TALA VÍNANDI KALLORÐ NEFNDI HÖRFAFLYTJA TVEIR EINS ENDA- FJÖL DRÚPA NÓTA RÍKI Í AFRÍKU GRASSERA TINA HVÍLA UMDÆMI PLANTA KVK NAFN TVEIR EINS SÍÐRI MESSING KVIÐSLIT ÞRAUT- SEIGJU AÐ- GREINING HORFT UPP HVÖSS TVEIR EINS SPJÖR BEINA TITILL FRÁNN ERFIÐA SAM- STÆÐA HVERSU DÆS HÓP TALA LIÐUR INNI- LEIKUR SKYLDIR KVAK DURTUR SKORTA MERKJA STUTT- NEFNI TÝTUBER H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 151 á gróðureldum Erlendur leðjutrukkur, en sú kanadíska var á enn stærri leðjutrukk. Verið að plægja stoppbelti á jarðýtu, en stundum er þetta eina lausnin til að stoppa útbreiðslu gróðurelda.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.