Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.01.2021, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 13.01.2021, Blaðsíða 17
Vetrarvertíðin hafin Þá er vetrarvertíðin 2021 hafin og þó nokkur fjöldi af bátum hefur verið við veiðar utan við Sandgerði og líka nokkrir utan við Grindavík. Stóru línubátarnir í Grindavík hafa verið að koma til Grindavíkur með afla og er það ánægjulegt að vita að bátarnir landi í sinni heimahöfn. Páll Jónsson GK kom t.d. með 130 tonn í land til Grindavíkur sem fékkst í fjórar lagnir. Það eru um 168 þúsund krókar og ef það er reiknað niður í bala. Þann mælikvarða nota ég við alla línubáta til þess að sjá saman- burð á milli báta en margir eru að veiða með balalínu og best að reikna alla í bala. Miðað við 420 króka í bala þá eru þetta 400 balar og það gerir 325 kíló á bala, og það er nú ansi góð veiði. Páll Jónsson GK var við veiðar fyrir vestan. Hrafn GK kom til Grinda- víkur með 33 tonn en hann var við veiðar utan við Grindavík. Trollbátarnir hafa ekki landað í heimahöfn, Sturla GK og Pálína Þórunn GK komu báðir með um 38 tonn til Ísafjarðar, og í næsta túr þá kom Pálína Þórunn GK til Sand- gerðis með afla. Langanes GK og Grímsnes GK eru áfram á ufsaveiðum við Suður- ströndina og hefur Grímsnes GK landað 9,7 tonnum í einni löndun og Langanes GK 33 tonn í tveimur, þar af 18,4 tonnum í einni. Nokkuð margir netabátar eru á veiðum frá Sandgerði en þeir eru núna sjö bátarnir og á eftir að bætast í þann hóp. Erling KE er kominn með 39 tonn í sex og mest 10,3 tonn, Maron GK 12,9 tonn í fjórum, Halldór Afi GK 4,1 tonn í tveimur og Sunna Líf GK 3,1 tonn í einni. Hinir bátarnir eru Hraunsvík GK sem byrjaði í Grindavík og kom þangað með 636 kíló í einni löndun, síðan færði báturinn sig til Sandgerðis, Guðrún GK sem kom með 3,5 tonn í einni löndun í fjórar trossur og Birna GK sem var í sinum fyrsta róðri á netum, kom báturinn með eitt tonn í þrjár trossur. Sá bátur er með nokkuð merkilega sögu og þá aðallega út af nafninu sem var á bátnum, því báturinn hét áður Íslandsbersi HF og var með því nafni í um 24 ár. Íslandsbersi á nefnilega tengingu við Keflavíkurhöfn en hvaðan kemur þetta nafn Íslandsbersi? Jú, Íslands- bersi var viðurnefni sem að Óskar Halldórsson hafði á sínum tíma. Óskar Halldórsson var útgerðar- maður og mikill framkvæmdamaður. Óskar fæddist árið 1893 og dó árið 1953. Hann kom til Siglufjarðar árið 1917 og hóf þar að bræða síld, byrjaði síðan árið 1919 að salta síld í miklu magni á Siglufirði. Hann var einn aðalhvatamaðurinn af því að stofna Síldarverksmiðjur Ríkisins en þær verksmiðjur voru með bræðslur víða um landið, t.d á Siglufirði, Reyðar- firði og Raufarhöfn. Óskar var mjög stórhuga og gerði sér lítið fyrir og keypti fjórtán risa- stór steinker sem höfðu verið notuð við innrásina í Normandí í júní árið 1944. Höfnin í Keflavík var eitt af þeim verkefnum sem Óskar tók sér fyrir hendur en hann lét gera hafskipa- höfn við Vatnsnes árið 1934 og hluti af þessum kerjum sem hann keypti í Normandi árið 1944 enduðu sem bryggja í Keflavík. Lengsti bryggju- hlutinn af Keflavíkurhöfn er t.d. gerður að nokkur leyti úr þessum risakerjum sem Óskar keypti. Fleiri tengingar má finna við þetta nafn, t.d. var bátur gerður út frá Reykjavík í 33 ár og hét sá bátur Óskar Halldórsson RE 157. Þessi sami bátur endaði sögu sína í Sand- gerði því að á árunum 2006 til 2009 réri báturinn frá Sandgerði og hét þá Óskar RE 157. Skipstjóri á honum þá var hinn mikli aflaskipstjóri Sævar Ólafsson frá Sandgerði og má nefna að vertíðina 2008 landaði báturinn 638 tonnum í 23 róðrum. Þannig að, já, þessi bátur Birna GK á sér ansi merkilega sögu og með þessum pistli fylgir með mynd- band sem tekið var fyrir nokkrum dögum síðan og sést meðal annars Birna GK koma til lands í Sandgerði bara nokkrum metrum á eftir öðrum netabáti. Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Sveitarfélagið Vogar óskar eftir að ráða sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Sviðsstjóri ber ábyrgð á daglegri starfsemi málaflokksins og gegnir jafnframt leiðandi hlutverki við stefnumótun í umhverfis-, skipulags- og byggingarmálum í samráði við viðeigandi nefndir. Sviðsstjóri sinnir jafnframt hlutverki byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins. SVIÐSSTJÓRI UMHVERFIS- OG SKIPULAGSSVIÐS Helstu verkefni og ábyrgð • Ábyrgð á stjórnun og starfsmannamálum sviðsins auk rekstri stofnana sviðsins • Skipulagsgerð og önnur verkefni er lúta að skipulagsmálum, lóðum og lendum • Fjárhagsáætlunargerð og gerð framkvæmdaáætlana • Ábyrgð á rekstri og viðhaldi mannvirkja í eigu bæjarins og verklegum framkvæmdum þeim tengdum • Umsjón með umhverfismálum, náttúruvernd, fegrun bæjarins og umhirðu, opnum svæðum, sorphirðu og sorpeyðingu, fráveitu og vatnsveitu og starfsemi þjónustumiðstöðvar • Yfirumsjón með umferðar- og samgöngumálum og ábyrgð á viðhaldi gatna og stíga, lýsingum, snjómokstri, hálkueyðingu og samskiptum við Vegagerðina • Skráning fasteigna og eftirlit með byggingaframkvæmdum • Undirbúningur funda sem tilheyra málaflokknum og ábyrgð á eftirfylgni mála • Stefnumótun, samhæfing og samþætting ásamt mati á verkefnum og þjónustu Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Viðkomandi þarf að uppfylla menntunar- og hæfnikröfur samkvæmt 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013. • Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 • Þekking og reynsla af stefnumótun í málaflokknum er kostur • Reynsla af stjórnun starfsmanna og verkefnastjórnun er æskileg • Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum • Nákvæmni, samviskusemi og skipulagshæfileikar • Góð almenn tölvukunnátta, ásamt kunnáttu í teikniforritum Sveitarfélagið Vogar er næst landstærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum með um 1.330 íbúa. Sveitarfélagið Vogar er mjög vel staðsett í nágrenni við þjónustu og vinnumarkað höfuðborgarsvæðisins, en býður upp á rólegt og vinalegt umhverfi þar sem stutt er í náttúruna. Framundan er mikil uppbygging, svo sem í tengslum við framkvæmdir við nýtt hverfi sem fullbyggt mun að minnsta kosti tvöfalda íbúafjölda sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar 2021. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Nánari upplýsingar um störfin veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is. aFlaFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár // 17

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.