Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.01.2021, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 13.01.2021, Blaðsíða 22
Jón Ólafur tekur við kvennaliði Grindavíkur Jón Ólafur Daníelsson hefur tekið við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Grindavík í knattspyrnu og mun stýra liðinu í Lengjudeildinni á næsta keppnistímabili. Jón Ólafur tekur við þjálfun liðsins af Ray Ant- hony Jónssyni sem lét af störfum sem þjálfari liðsins í vetur. Grindavík fangaði sigri í 2. deild kvenna í haust og leikur því í Lengjudeildinni á næstu leiktíð. Jón Óli starfaði hjá félaginu um miðjan síðasta áratug og náði frá- bærum árangri hjá yngri flokkum félagsins. Hann er þrautreyndur þjálfari og kemur frá Vestmanna- eyjum þar sem hann hefur komið að þjálfun flestra flokka, allt frá yngri flokka þjálfun og upp í þjálfun meistaraflokka félagsins hjá báðum kynjum. „Við erum afar glöð með að hafa tryggt okkur þjónustu Jóns Óla við þjálfun meistaraflokksins á tíma- bilinu sem er framundan,“ segir Petra Rós Ólafsdóttir, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Grindavík. „Við erum að fá mjög hæfan þjálfara til starfa sem þekkir félagið mjög vel og hefur náð frábærum árangri á sínum ferli. Hann fær ungan en spennandi leikmannahóp í hendurnar og við erum þess full- viss um að hann geti gert okkar leikmenn enn betri. Við förum með tilhlökkun inn í nýtt ár og við teljum að ráðning Jóns Óla sé til marks um þann metnað sem við viljum sýna í kvennaknattspyrn- unni í Grindavík.“ Daníel Leó og félagar áfram í FA-bikarnum Daníel Leó Grétarsson átti endurkomu í byrjunarlið Blackpool þegar liðið mætti úrvalsdeildarliði West Bromwich Albion í FA-bikarnum á Englandi um síðustu helgi. Blackpool sem leikur í D-deild enska boltans sýndi sínar bestu hliðar og að venjulegum leiktíma loknum var staðan jöfn, 2:2. Því var farið í framlengingu þar sem ekkert mark var skorað en að lokum fagnaði lið Grind- víkingsins sigri eftir vítaspyrnukeppni. Daníel Leó átti fínan leik í vörninni og lék í 90 mínútur en var skipt út af fyrir framleng- inguna. Með sigrinum er Blackpook komið í fjórðu umferð bikarsins og mætir úrvalsdeildar- liði Brighton þann 23. janúar. Jón Axel og Skyliners á uppleið í Þýskalandi Jón Axel Guðmundsson og lið hans, Fraport Skyliners, unnu góðan sigur á Gottingen í úrvals- deildinni í Þýskalandi um helgina, 81:63. Eftir að hafa verið sex stigum undir eftir fyrsta leikhluta tóku Skyliners við sér og sigldu einkar öruggum sigri í höfn. Skyl- iners eftir leikinn komnir í átt- unda sæti deildarinnar en þegar að deildarkeppninni lýkur í vor fara efstu átta í úrslitakeppnina. Jón Axel var líkt og svo oft í vetur með þeim framlagshæstu í liði Skyliners. Á rúmum 25 mínútum spiluðum skilaði hann ellefu stigum, þremur fráköstum og fjórum stoðsendingum. Elvar Már leiddi Siauliai í sigri á Neptunas Elvar Már Friðriksson og Siauliai unnu Neptunas í litáísku LKL- deildinni, 88:94. Sigurinn var sá þriðji hjá Elvari og félögum í vetur en liðið hefur tapað níu leikjum. Elvar Már var framlagshæsti leikmaður Siauliai og á tæpum 33 mínútum spiluðum skilaði hann ellefu stigum, þremur frá- köstum, ellefu stoðsendingum og stal boltanum fjórum sinnum. Grindavíkurbær og Reykjanesbær auglýsa hér með sameiginlega skipulagslýsingu vegna endurskoðunar á gildandi deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi, skv.1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 6. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Viðfangsefni endurskoðunar deiliskipulagsins eru skipulagsskilmálar um umfang og fyrirkomulag mannvirkja, orkuvinnslu og atvinnustarfsemi, verndarsvæði, minjar og tækifæri fyrir ferðaþjónustu og útivist. Deiliskipulagssvæðinu verður skipt í tvo hluta við sveitarfélagsmörk Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæja. Skipulagslýsing er aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna: grindavik.is/skipulag og reykjanesbaer.is/skipulag. Ábendingar og athugasemdir skulu berast skriflega og má skila þeim til: Grindavíkurbæjar, b.t. Atla Geirs Júlíussonar, sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, Víkurbraut 62, 240 Grindavík eða í tölvupósti á atligeir@grindavik.is. Reykjanesbæjar, b.t. Gunnars Kristins Ottóssonar, skipulagsfulltrúa, Ráðhúsi Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ eða í tölvupósti á gunnar.k.ottosson@reykjanesbaer.is Athugasemdafrestur lýsingar er til og með 31. janúar 2021. Endurskoðun deiliskipulags iðnaðar- og orkusvæðis á Reykjanesi www. reykjanesbaer.is www.grindavik.is SIGTRYGGUR ARNAR farinn frá Grindvíkingum Sigtryggur Arnar Björnsson mun ekki leika meira með Grindavík í Domino’s-deild karla á tímabilinu. Arnar hefur samið við spænska liðið Real Canoe í Madríd sem leikur í LEB Oro-deildinni á Spáni. eða næstefstu deild. Brotthvarf Sigryggs Arnars er liðinu mikil blóðtaka. Hann var með 17,8 stig að meðaltali í leik á síðasta tímabili og hefur verið einn af lykilmönnum Grindvíkinga frá því að hann gekk til liðs við Grindavík vorið 2018. „Þetta tækifæri kom óvænt upp. Ég er mjög þakklátur stjórn körfu- knattleiksdeildar Grindavíkur fyrir að sýna þessu skilning og gefa mér heimild til að fara í atvinnumennsku. Stefnan var sett á að gera góða hluti með Grindavík eftir áramót. Þetta tækifæri er of gott til að sleppa því á þessum tímapunkti á mínum ferli. Ég vil koma á framfæri kveðju til stuðningsmanna Grindavíkur sem hafa tekið vel á móti mér frá fyrsta degi. Mér hefur liðið mjög vel hjá fé- laginu og mun fylgjast grannt með gengi Grindavíkur áfram,“ segir Sig- tryggur Arnar. Körfuknattleiksdeild Grindavíkur þakkar Arnari kærlega fyrir tíma sinn hjá félaginu og óskar honum alls hins besta í atvinnumennsku á Spáni. Leit að nýjum leikmanni til að leysa Arnar af hólmi er nú þegar hafin. Mikillar tilhlökkunar gætir hjá körfuboltaáhugafólki enda hefst keppni í efstu deildum að nýju í þessari viku. Ekki hefur verið leikið síðan í byrjun október vegna kórónuveirunnar og má búast við þéttri leikjadagskrá og miklu álagi á leikmenn liðanna ef deildirnar eiga að ná að klárast fyrir sumar. Engir áhorfendur verða leyfðir leikjunum enn sem komið er en vonandi er það versta yfirstaðið og Covid-19 fari nú að missa tökin sem það hefur haft á samfélagið svo lífið geti fallið í eðlilegar skorður. Í Domino’s-deild karla hafa Keflavík og Njarðvík haldið topp- sætunum í þrjá mánuði og Grind- víkingar því fjórða (liðin hafa aðeins leikið einn leik hvert) en í Domino’s- deild kvenna er Keflavík í fjórða sæti á meðan Grindavík og Njarðvík sitja í þriðja og fjórða sæti 1. deildar. Fyrsti leikur Suðurnesjaliðanna eftir hlé verður útileikur Keflavíkur gegn Breiðabliki í Domino’s-deild kvenna og fer hann fram 13. janúar kl. 19:15. Njarðvíkingar eiga fyrsta heimaleikinn í Domino’s-deild karla sem fer fram í Njarðtaksgryfjunni 14. janúar kl. 19:15, þá taka Grindvík- ingar á móti Þór Akureyri og Keflvík- ingar fá Þór Þorlákshöfn í heimsókn föstudaginn 15. janúar. Á laugardag leika Grindvíkingar gegn Vestra í 1. deild kvenna og Njarðvíkurstúlkur taka á móti Stjörnunni heima þann 19. janúar. Karfan (loksins) af stað Úr leik Njarðvíkur og Keflavíkur á síðasta tímabili. Mynd af umfg.is Petra Rós Ólafsdóttir, formaður meistaraflokksráðs kvenna, og Jón Ólafur, nýráðinn þjálfari. Mynd: UMFG Miðvikudagur 13. janúar 2021 // 2. tbl. // 42. árg.sport

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.