Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.01.2021, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 13.01.2021, Blaðsíða 18
Tíu milljónir í hleðslustöðvar í Grindavík Orkusjóður hefur samþykkt að veita tíu milljónum króna til uppbyggingar hleðslustöðva í Grindavík og drög að samningi voru lögð fyrir bæjarráð Grinda- víkur á dögunum. Bæjarráð sam- þykkti samninginn og hefur falið sviðsstjóra skipulags- og umhverf- issviðs að vinna málið áfram. Á dögunum birtist grein í breska dagblaðinu The Guardian þar sem fjallað er um græna orku á Ís- landi. Fyrirtæki á Reykjanesi koma sérstaklega mikið við sögu í umfjölluninni þar sem m.a. er fjallað um endurnýtanlega orku, fiskeldi, og há- tækni gróðurhús. Fjallað er um Carbon Recycling í Svartsengi þar sem metanól er framleitt með endurvinnslu á koltrísýringsútblæstri og raforku. Nær Grindavík er gróðurhús Bioeffect þar sem vísindamenn hafa þróað prótín úr byggi. Þannig hafa orðið til húðvörur í hæsta gæðaflokki sem seldar eru um allan heim. Allt saman keyrt á grænni orku úr ná- grenninu. Fiskeldi Matorku við Grindavík er einnig meðal efnis í greininni en jarðhiti frá Reykjanesi er nýttur við starfsemina. Líftæknifyrirtækið Algalíf á Ásbrú ræktar örþörunga sem nýttir eru í fæðu- bótarefni. Í umfjöllun breska blaðsins er ítarlega greint frá framleiðsluferlinu sem er einkar áhuga- vert. Hið einstaka Bláa lón er að sjálfsögðu nefnt til sögunnar enda brautryðjandi í grænni ferða- mennsku á heimsvísu, segir á visitreykjanes.is Markmiðið að auka við menn- ingarflóruna í Grindavík með nýju hlaðvarpi Í lok síðasta árs fór Rödd unga fólksins af stað með nýtt hlað- varp, fyrsti þátturinn fór í loftið í desember en áður hafði birst kynningarþáttur. Þættirnir eru að- gengilegir bæði á Apple Podcast og Spotify. Inga Fanney Rúnarsdóttir er einn umsjónarmanna þáttarins og formaður Raddar unga fólksins. Hlaðvarp eða Podcast hefur í auknum mæli verið að ryðja sér til rúms enda tækjabúnaður ekki ýkja mikill sem þarf til; tölva, hljóðnemi og nettenging. „Markmið hlaðvarps unga fólksins er að auka við menningarflóruna í Grindavík. Ég, ásamt Sigríði Etnu, Bjarna Þórarni og Karín Ólu erum með yfirumsjón yfir hlaðvarpinu. Við ætlum að fá til okkar Grindvík- inga, unga sem aldna, í létt spjall um heima og geima. Hlaðvarpið ætti að gefa Grindvíkingum góða innsýn inn í líf viðmælanda og stefnan er á að gefa út þátt á ca. þriggja vikna fresti,“ segir Inga Fanney á vef Grindavíkur- bæjar. Inga Fanney segir hlaðvörp góða leið til heimildarsöfnunar fólks þar sem miklar upplýsingar koma fram á stuttum tíma. „Rödd unga fólksins hvetur alla, og þá sérstaklega Grindvíkinga, til að hlusta. Ef fólk er með hugmyndir af skemmtilegum viðmælendum þá má alltaf hafa samband við okkur,“ segir Inga Fanney að lokum. vf is Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á Bretar áhugasamir um græna orku á Reykjanesi Fis fór niður um ótraustan ís á Seltjörn Flugmaður fisvélar komst að sjálfsdáðum og ómeiddur í land eftir að hafa farið niður um ótraustan ís á Seltjörn á mánudaginn. Maðurinn hafði verið að æfa snertilendingar á ísnum þegar óhappið varð. Sjúkrabíll og tækjabíll frá Brunavörnum Suðurnesja voru kallaðir til ásamt lögreglu. Aðstoð frá Brunavörnum Suðurnesjum var fljótlega afturkölluð en lögregla rannsakaði vettvang og notaðist m.a. við öflugan dróna til að mynda svæðið. Fisið í vökinni á Seltjörn. Lögregla á vettvangi. Frá vettvangi óhappsins á Seltjórn á mánudaginn. VF-myndir: Hilmar Bragi 18 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.